Fréttablaðið - 10.05.2011, Síða 32

Fréttablaðið - 10.05.2011, Síða 32
24 10. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR Rokkhljómsveitin XIII leikur plötu sína Salt í heild sinni á tón- leikum á Faktorý á föstudags- kvöld. Sérstakir gestir verða In Memoriam og Hoffman. „Þetta er nú bæði vegna óska þeirra sem sýnt hafa XIII áhuga og okkur sjálfum til gamans,“ segir Hallur Ingólfsson, söngvari XIII. „Þetta verður ekki endurtekið. Þeir sem hafa verið að óska eftir lögum af Salt á tónleikum ættu því að grípa tækifærið núna.“ Salt var fyrsta plata XIII og kom út árið 1994 við mjög góðar undirtekt- ir. Sveitin gaf síðast út tvöföldu plötuna Black Box haustið 2010. Miðaverð á tónleikana er 2.500 krónur. XIII spilar plötuna Salt Nu er komið í ljós að leikarinn Nicolas Cage sleppur við fangelsisvist eftir að hafa verið handtekinn fyrir ölvun á almannafæri í New Orleans um miðjan apríl. Ekki er nóg með að Cage hafi verið ofur- ölvi heldur var hann einnig með dónaskap við vegfarendur og eiginkonu sína, hina korn- ungu Alice Kim. Fjölmiðla- fulltrúi leikarans segir að hjón- in séu ánægð með að málinu sé lokið og að Cage ætli sér ekki að láta þetta hafa áhrif á vinnu sína, en hann er staddur í New Orleans við tökur á kvik- myndinni Medallion. Sleppur við fangelsið LAUS ALLRA MÁLA Leikarinn Nicolas Cage sleppur fyrir horn eftir að hafa verið handtekinn um miðjan apríl fyrir ölvun á almannafæri. NORDICPHOTOS/GETTY Leiklist ★★★ Ótuktin Sýnt í Iðnó. Byggt á samnefndri bók eftir Önnu Pálínu Árnadóttur. Leikgerð, leikstjórn og undirleik- ur: Valgerð Skagfjörð. Flytjandi: Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Gamla góða Iðnó stendur fyrir sínu. Nú er þar enn ein sýningin í huggu- legu umhverfi þar sem saga er sögð og sungið á milli. Hræðilega erfið frænka kemur í heimsókn til ungr- ar konu í blóma lífsins. Frænkan var heldur leiðinleg hér áður fyrr og gaf bara vont súkkulaði og ljóta sokka í jólagjöf en nú er hún mætt og neit- ar að fara. Konan sem á húsið vísar henni í versta herbergið lengst í burtu en engu að síður er það frænk- an sem sigrar að lokum. Anna Pálína Árnadóttir, söngkona og þáttastjórn- andi hjá Ríkisútvarpinu, lést af völd- um krabbameins aðeins 41 árs að aldri árið 2004. Hún var áður búin að vinna hug og hjörtu landsmanna með söng sínum og hafði á allra síð- ustu árunum ferðast um og talað um þessa frænku, þennan óvelkomna gest sem engu að síður varð að fá sitt pláss. Hún kallaði hana Kröbbu frænku. Anna Pálína var allan tím- ann mjög opinská um sjúkdóm sinn og Ótuktin er af rakstur skrifa henn- ar um þetta erfiða einvígi. Valgeir Skagfjörð útbjó einleik eða öllu heldur tvíleik um Ótuktina og er það Katla Margrét Þorgeirs- dóttir sem fer með hlutverk söng- konunnar sem segir sögu sína sem síðan er brotin upp með söng og Val- geir sér um undirleik á píanó og leið- ir með henni nokkur samtöl. Þetta er að mörgu leyti hugljúf stund þó í lengra lagi væri. Katla Margrét kann listina að stilla á háu Lífinu ég þakka ljósin og hefur glettilega nærveru í erfiðum texta. Hún fer með hlut- verk ungrar söngkonu, eiginkonu og móður og lýsir baráttuaðferð hennar við illvígan sjúkdóm sem hún getur ekki sigrast á en verður að sætta sig við að lifa með. Sönglögum er fléttað inn í frá- sagnirnar. Það hefði mátt lýsa betur leikkonuna þó birtan svona rauðleit hafi vissulega líka sitt gildi. Kötlu Margréti tókst vel til við að glæða samtölin lífi, einkum voru samskipt- in við hinn fremur durtslega lækni lifandi og lýsandi. Þessi sýning er nauðsynleg og góð en það hefði frá leikrænu sjónarmiði farið betur á því að minnka aðeins textaflæðið og lyfta betur fram dramatískum atriðum með leiknum smámyndum í stað þess að hún var sífellt að segja frá því hvernig hún hefði brugðist við hinu og þessu. Skugginn átti sitt hlutverk og það var sterk og mögn- uð frásögn af því hvernig hann tók sér bólfestu í henni en henni tókst að bægja honum frá með ýmsum góðum ráðum, en engu að síður mætti hann aftur. Það er margt í þessari sýningu sem vafa lítið vekur fólk til umhugsunar, eins og t.d. hvernig á að tala við þann sem er með krabbamein, eða hvernig á krabbameinssjúklingur að hegða sér? Þegar hún situr og spjallar við hina sjúklingana sem haldnir eru þessu meini, alls konar fólk, tekst henni að bregða upp ansi skýrri mynd. Eiginmaður Önnu Pálínu, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, á ekki aðeins sinn stóra þátt í verk- inu heldur er hann jafnframt texta- höfundur að öllum þeim lögum sem flutt eru. Þar á meðal eru yndislegar perlur eins og Haustvísa eftir Erna Tauro þar sem Aðalsteinn þýðir hugljúfan texta Tove Jansson og eins lokasöngurinn Lífinu ég þakka sem Violetta Parra samdi á sínum tíma og Aðalsteinn hefur nú samið íslenskan texta við. Þó að þetta sé erfitt og sorglegt viðfangsefni er sýningin á köflum smellin. Óhætt að lofa enn einni góðri kvöldstund í Iðnó. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Erfiðu og sorglegu efni gerð skil á hjartnæman og oft smell- inn hátt. AÐSTANDENDUR VERKSINS Aðalsteinn Ásberg Sigurðs- son, Katla Margrét Þorgeirs- dóttir og Valgeir Skagfjörð. BARA GÓÐAR MYNDIR www.bioparadis.is ROUTE IRISH KURTEIST FÓLK BOY ÚRBANIKKA: LOS ANGELES PLAYS ITSELF REGÍNA BÖRN FORELDRAR 17:50, 20:00,22:10 18:00 18:00, 20:00, 22:00 20:00 18:00 20:00 22:00 MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS BAR & CAFÉ – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 48 72 0 5/ 11 SUNNY GREEN CHLORELLA Er svitalykt eða táfýla? Fyrir þig í Lyfju SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA EKKI Í BORGARBÍÓI 750 NÁNARI UPPLÝSINGAR OG MIÐASALA Á MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Í 3-D FAST FIVE KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 FAST FIVE Í LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 THOR 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 SCREAM 4 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16 HANNA KL. 8 - 10.25 16 RIO 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 - 5.45 L RIO 2D ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 L HOPP ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 L Gildir ekki í 3D 750 FAST FIVE KL. 5.45 - 8 - 10.20 12 THOR 3D KL. 5.40 - 8 - 10.15 12 A.E.T - MBL MBL AST FIVE KL. 5.20 – 9 12 HÆVNEN KL. 5.25 – 8 – 10.35 12 THOR 3D KL. 6 - 9 12 HANNA KL. 8 - 10.20 16 RIO 3D ÍSLENSKT TAL KL. 6 L Gildir ekki í Lúxus 950 Gildir ekki í 3D eða Lúxus 7 Gildir e ki í 3D 710005 Gildir ekki í 3D 750750 1050 FAST AND FURIOUS 5 7 og 10 POWER THOR 3D 5, 7.30 og 10 RIO - ISL TAL 3D 5 YOUR HIGHNESS 10 HOPP - ISL TAL 6 KURTEIST FÓLK 8 - EKKI TILBOÐ LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarÞriðjudagur er tilboðsdagur. 700 kr. 700 kr. 700 kr. 950 KR. Í 3D gleraugu seld sér 950 KR. Í 3D gleraugu seld sér T.V. -KVIKMYNDIR.ISA.E.T. -MBL POWE RSÝNI NG KL. 10. 00 T.V. - kvikmyndir.is www.laugarasbio.is -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar EKKI TILBOÐ ÁLFABAKKA EGILSHÖLL 12 12 12 12 12 12 12 12 KRINGLUNNI SELFOSS AKUREYRI FAST FIVE kl. 5:20 - 8 - 10:40 (Powersýning kl.10:40) FAST FIVE Luxus VIP kl. 5:20 - 8 - 10:40 SOMETHING BORROWED kl. 6 - 8:20 - 10:40 THOR 3D kl. 5:40 - 8 - 10:20 ARTHUR kl. 5:40 - 8 - 10:20 CHALET GIRL kl. 5:50 UNKNOWN kl. 8 SOURCE CODE kl. 10:40 FAST FIVE kl. 5:20 - 8 - 10:10 -10:40 Powersýning kl.8) SOMETHING BORROWED kl. 5:50 - 8 THE LINCOLN LAWYER kl. 8 - 10:20 RED RIDING HOOD kl. 5:50 SOMETHING BORROWED kl. 8 THE LINCOLN LAWYER kl. 10:20 ARTHUR kl. 8 - 10:20 FAST FIVE kl. 5:20 - 8 - 10:40 (Powersýning kl.10:40) THOR kl. 5:40 - 8 - 10:30 16 L L L L L L 7 7 7 7 7 7 V I P HÖRKUSPENNANDI ÞRILLER MEÐ MATTHEW MCCONAUGHEY, WILLIAM H. MACY, MARISA TOMEI OG RYAN PHILLIPE LINCOLN LAWYER BOXOFFICE MAGAZINE  BOXOFFICE MAGAZINE - IN TOUCH STÆRSTA OPNUN Í USA Á ÞESSU ÁRI RÓMANTÍSK GAMANMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR. ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND SEM ÞÚ MUNT ELSKA! THOR 3D kl. 5.20 - 8 - 10.30 SOMETHING BORROWED kl. 5.30 - 8 - 10.20 LINCOLN LAWYER kl. 8 - 10.30 ARTHUR kl. 5.20 - 8 RIO 3D ísl.Tal kl. 5.30 “Brjáluð afþreyingarmynd sem mun gefa þér nákvæmlega það sem þú sækist eftir, hvort sem þú ert aðdáandi seríunnar eða hasarfíkill almennt.” RÞ Ð UJ AD GS ÍB Ó I Í DAG ÐAMR YKKUÐ TRYGGI I Á WWW.SAMBIO. SI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.