Fréttablaðið - 18.05.2011, Page 2

Fréttablaðið - 18.05.2011, Page 2
18. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR2 Guðbrandur, ertu ekki hrædd- ur um að lömbin hverfi út í bláinn? „Jú, vissulega er sú hætta fyrir hendi en öfugt við kratana munu þau þá lenda á veisluborði hjá Evrópusam- bandinu og verða þar landi og þjóð til sóma.“ Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum í Steingrímsfirði úðaði fjögur lömb blá til að fá mæður þeirra til að sættast við tvö þeirra sem þær höfðu hafnað eftir burð. EFNAHAGSMÁL Semja þarf sérstak- lega um vikmörk gengis íslensku krónunnar við evru meðan á upp- töku evrunnar stæði í aðildarvið- ræðunum við ESB sem nú standa fyrir dyrum. Þá stæði Íslandi til boða stuðningur við krónuna frá Seðlabanka Evrópu en kanna þarf nánar hve mikill sá stuðningur gæti orðið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greinargerð sem birt var í gær í kjölfar rýnifundar í Brussel um efnahags- og peningamála- kafla samningaviðræðnanna. Einnig þarf að semja um hugs- anlegan stuðning ESB við afnám gjaldeyrishaftanna hér á landi. Ríki sem ganga í ESB verða að taka mið af sameiginlegri efna- hagsstefnu sambandsins og er þess vænst að ný aðildarríki taki þátt í myntsamstarfi Evrópu. Áður en ríki getur hins vegar tekið upp evruna þarf það að uppfylla Maastricht-skilyrðin svokölluðu. Eitt þeirra segir til um tveggja ára þátttöku í gjaldmiðilssam- starfi Evrópu (ERM II) sem er eins konar fordyri evrunnar. Meðan á þátttöku í ERM II stendur er stefnt að gengisstöðug- leika gagnvart evru með ákveðn- um vikmörkum. Stöðugleiki gjald- miðilsins er á ábyrgð seðlabanka hvers ríkis en jafnframt eru í boði takmarkaðar skammtímalánalín- um frá Seðlabanka Evrópu. Búast má við því að nánari útfærsla á þessum stuðningi verði fyrirferða- mikil þegar gengið verður frá efnahags- og peningamálakafla aðildarviðræðnanna. - mþl Línur eru farnar að skýrast fyrir viðræður Íslands við Evrópusambandið: Bjóða stuðning við krónuna eftir inngöngu GJALDEYRISHÖFT Semja þarf um hugsanlegan stuðning ESB við afnám gjaldeyrishafta í aðildarvið- ræðum við ESB. DÝRAHALD Hundurinn sem réðist á póstburðarkonu í Mosfellsbæ í fyrradag, með þeim afleiðingum að hún féll við og fótbrotnaði, mun gangast undir atferlismat á næstu dögum, en þar verður skorið úr um hvort dýrinu verður lógað. Hafdís Óskarsdóttir, hundaeft- irlitsmaður bæjarins, sagði í sam- tali við Fréttablaðið málið komið inn á borð til heilbrigðisfulltrúa bæjarins. Hún hafi þó strax í gær farið og kynnt eigendum hundsins næstu skref í málinu. „Þegar svona gerist verður hundurinn framvegis að vera með munnkörfu utandyra. Í framhald- inu fer hann svo í atferlismat sem sker úr um framhaldið.“ Hafdís segir að komi hundar illa út úr atferlismati séu þeir svæfðir, annars fái þeir að lifa með því skil- yrði að þeir séu með munnkörfu utandyra. Hafdís vill annars hvetja alla hundaeigendur til þess að kynna sér reglur um lausagöngu hunda og fylgja þeim. Ágústa Hrund Steinarsdóttir, talsmaður Póstsins, sagði í sam- tali við Fréttablaðið að bréfberar fyrirtækisins mættu sleppa því að bera út í hús, sé ógnandi hundur framan við húsið. Þá séu námskeið í umgengni við hunda reglulega í boði fyrir bréfbera. - þj Hundurinn sem réðist á bréfbera í Mosfellsbæ og stórslasaði: Atferlismat sker úr um framhaldið Í ATFERLISMAT Dalmatíuhundur sem réðist á bréfbera mun á næstunni gangast undir atferlis- mat til að skera úr um hvort hann verði svæfður. Myndin tengist fréttinni ekki beint. N O R D IC PH O TIS/G ETTY SPURNING DAGSINS Byrjaðu góðan dag vel – Fáðu þér létta ab mjólk á hverjum degi Nú fáanleg í handhægum ½ lítra umbúðum Létta AB mjólkin er einhver hollasti morgunverður sem völ er á. AB mjólkin inni- heldur milljarða gagnlegra mjólkursýrugerla sem valda því að óæskilegir gerlar eiga erfitt uppdráttar í meltingar- veginum. Regluleg neysla tryggir að meltingarflóran er alltaf í lagi og ónæmiskerfið starfar með hámarksafköstum. SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn Vestmannaeyja segir sam- gönguyfirvöld ráðlaus í öllu sem snúi að samgöngum á sjó við Vestmannaeyjar. „Ástandið er orðið algerlega óþolandi,“ segir bæjarstjórnin sem bendir á að dýpkunar skip fyrir Land- eyjahöfn sé bilað og gagnrýnir Ögmund Jónasson innanríkisráð- herra. Bæjarstjórnin segir frá- leitt hjá ráðherra að kenna nátt- úruöflum um „þær tafir og þann skaða sem Eyjamenn verða nú fyrir á degi hverjum.“ - gar Náttúruöflin valda ekki töfum: Fráleit afsökun hjá ráðherra FÓLK Innanríkisráðuneytið hefur veitt brasilísku söngkonunmi Jussanam Da Silva dvalarleyfi hér á landi. Forsaga málsins er sú að Vinnumálastofnun neitaði Juss- anam um fram- lengingu á starfsleyfi í ágúst í fyrra en hún hafði unnið á frí- stundaheimili hér á landi í tvö ár og var búin að gera starfs- samning um ár til viðbótar. Ástæða Vinnumálastofnunar var sú að Jussanam var á þeim tíma nýskilin við eiginmann sinn. Jussanam hefur getið sér gott orð hér landi fyrir sönghæfi- leika en hún hefur gefið út plötu og unnið með nokkrum þekktustu djasstónlistarmönnum landsins. Hún bíður nú svars við umsókn um ríkisborgararétt. - mþl Svipt starfsleyfi eftir skilnað: Jussanam fær dvalarleyfi JUSSANAM DA SILVA FORNLEIFAR Mun umfangsmeiri fornminjar hafa komið í ljós í uppgreftri í Urriðakoti, væntan- legu byggingarsvæði í Garðabæ, en sérfræðingar gerðu ráð fyrir. Við uppgröftinn hafa fundist minj- ar frá landnámi allt fram á mið- aldir en Urriðakots er fyrst getið í heimildum mun síðar, eða á 16. öld. Fornleifarannsóknir hafa stað- ið yfir í Urriðakoti á síðustu árum vegna fyrirhugaðra framkvæmda á svæðinu, en árið 2006 fólu bæj- aryfirvöld í Garðabæ Fornleifa- stofnun Íslands að fullvinna aðal- skráningu á fornleifum innan bæjarmarkanna. Ragnheiður Traustadóttir forn- leifafræðingur segir fundinn hafa komið verulega á óvart, enda á Urriðakot sér ekki langa sögu í heimildum en bæjarins er fyrst getið á 16. öld. „Fyrsta könnun var gerð í Urriðakoti 2007 en í fyrra átti að klára verkefnið. „Þá ákvað ég að opna á milli svæðanna sem voru til skoðunar. Ekkert sást á yfirborði og engar heimildir eru um eitt eða neitt á svæðinu en þarna fannst glæsilegt fjós frá landnámstíð.“ Ragnheiður segir að við upp- gröftinn hafi einnig fundist skáli, geymsla, búr og soðhola frá land- námi fram á 11. öld en nánari ald- ursgreining þarf að fara fram til að hægt sé að segja hvort minjarn- ar séu frá fyrstu tíð landnáms. Frá miðöldum – eða rétt eftir 1226 – hafa þá fundist leifar af búri, eldhúsi og skemmu, en ekki hefur komið í ljós neitt íveruhús frá þeim tíma en það kann að hafa staðið ofan við uppgraftarsvæðið. Varðveisluskilyrði eru ekki góð í Urriðakoti þannig að lífræn- ar leifar varðveitast illa. Fáir en merkilegir gripir hafa fundist á svæðinu, fyrst og fremst snæl- dusnúðar, annar skreyttur og hinn með rúnum. Fátítt er að finna gripi með rúnaristum á Íslandi. Auk þess hafa fundist tvær perlur frá víkingaöld, bökunarhellur, brýni, innflutt frá Noregi, járnhnífar, naglar og ýmsar bronsþynnur, að sögn Ragnheiðar sem segir margt benda til að í Urriðakoti hafi verið seljabúskapur en ekki föst búseta, en ekkert sel hefur verið að fullu rannsakað á Íslandi. Mannvistarleifunum í Urriða- koti verður gert hátt undir höfði í framtíðinni þó minjarnar sjálfar verði þar ekki áfram. Jafnvel verð- ur það gert með tenginu við Hof- staði, minjagarðinn í Garðabæ. Ragnheiður heldur fyrirlestur um uppgröftinn í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar klukkan þrjú í dag. svavar@frettabladid.is Óvæntur fornleifa- fundur í Urriðakoti Fornleifauppgröftur í Urriðakoti í Garðabæ hefur leitt í ljós mun umfangsmeiri mannvistarleifar en fornleifafræðingar bjuggust við. Minjarnar eru frá fyrstu árum Íslandsbyggðar en heimildir um byggð eru elstar frá 16. öld. Í URRIÐAKOTI Fornleifafundurinn fór fram úr björtustu vonum fornleifafræðinga. MYND/RAGNHEIÐUR TRAUSTADÓTTIR KJARAMÁL Félag forstöðumanna ríkisstofnana fer fram á að kjör þeirra verði leiðrétt strax. Félags- menn íhuga að fara með málið fyrir dómstóla. Umboðsmaður Alþingis hefur til umsagnar erindi frá félaginu sem telur sig beitt órétti af stjórnvöldum, eins og fréttastofa RÚV sagði frá í gær- kvöldi. Alþingi lækkaði laun um 200 forstöðumanna ríkisstofnana með lögum 2009 en þeirri frystingu var viðhaldið með lögum ári síðar en lauk 1. desember. Launafrystingu hefur því verið aflétt. Kjörin hafa ekki verið leiðrétt þótt lög um kjar- aráð segi til um að það skuli gert. Formaður kjararáðs segir málið til skoðunar. - shá Forstöðumenn ríkisstofnana: Vilja fá kjör sín leiðrétt án tafar BANDARÍKIN Þrýst er á Dominique Strauss-Kahn úr mörgum áttum um að stíga niður úr forstjórastóli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Fjármálaráðherra Austurríkis, María Fekter, hefur kallað eftir því að hann íhugi stöðu sína og stalla hennar frá Spáni, Elena Salg ato, hefur lýst yfir stuðningi við stúlkuna sem Strauss-Kahn er sakaður um að hafa reynt að nauðga. Strauss-Kahn situr nú í varð- haldi í hinu alræmda fangelsi á Rikers-eyju í New York en dómari féllst ekki á að honum yrði sleppt gegn tryggingu og fengi að dvelja hjá dóttur sinni í borginni. - shá Dominique Strauss-Kahn: Þrýst á afsögn úr forstjórastóli FYRIR DÓMARA Strauss-Kahn á yfir höfði sér þungan dóm, verði hann fund- inn sekur. MYND/NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.