Fréttablaðið - 18.05.2011, Side 4
18. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR4
LÖGREGLUMÁL Embætti ríkislögreglustjóra
getur ekki upplýst hvort íslensk lögregluyf-
irvöld hafi vitað af flugumanni bresku lög-
reglunnar sem kom hingað til lands til að
taka þátt í mótmælum Saving Iceland árið
2005.
Þetta kemur fram í
skýrslu greiningardeildar
ríkislögreglustjóra, sem
Ögmundur Jónasson innan-
ríkisráðherra gerði opin-
bera á vef ráðuneytisins í
gær.
Eins og upplýst hefur
verið í fjölmiðlum starfaði
breski lögreglumaðurinn
Mark Kennedy sem flugu-
maður lögreglunnar í röðum aðgerðasinna
og anarkista um sjö ára skeið. Kennedy, sem
kallaði sig Mark Stone, kom hingað til lands
á vegum aðgerðasinna innan raða Saving
Iceland árið 2005 og tók þátt í mótmælum
gegn Kárahnjúkavirkjun.
Í skýrslu greiningardeildarinnar er því
ekki svarað beint hvað íslensk lögreglu-
yfirvöld vissu um komu Marks Kennedy.
Þar segir orðrétt: „Við yfirferð gagna hjá
embætti ríkislögreglustjóra hafa ekki komið
fram upplýsingar sem gera kleift að skera úr
um hvort þessi flugumaður bresku lögregl-
unnar hafi verið hér á landi í samvinnu eða
með vitund lögreglunnar árið 2005.“
Í skýrslunni er þess getið að ríkislögreglu-
stjóri hafi ekki sett sérstakar reglur um
flugumenn, sem villi á sér heimildir til að
komast í raðir manna sem liggi undir grun.
Þar segir jafnframt að notkun slíkra aðferða
sé „tiltölulega fátíð rannsóknaraðferð
hjá lögreglu“, enda háð annmörkum í svo
fámennu landi þar sem maður þekki mann.
Í yfirlýsingu innanríkisráðherra sem birt-
ist á vef ráðuneytisins í gær, segir að sam-
kvæmt þessu finnist engin gögn sem bendi
til þess að vitneskja hafi verið um það hér
Óvíst hvort lögregla vissi af
flugumanni við Kárahnjúka
Ríkislögreglustjóri getur ekki svarað því með óyggjandi hætti hvort flugumaður bresku lögreglunnar hafi
verið hér á landi í samvinnu við íslensk lögregluyfirvöld. Tók þátt í mótmælum Saving Iceland árið 2005.
Gera verður þá kröfu til erlendra lögregluembætta
sem íslenskir lögreglumenn eiga í samstarfi við
að þau hafi að leiðarljósi siðferðisgildi sem leyfi
ekki framferði lögreglumanna líkt og það sem
Mark Kennedy er sakaður um, segir í yfirlýsingu
Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra.
Í yfirlýsingunni segir Ögmundur að sér finnist
„íhlutun yfirvalda með þessum hætti í mótmæli af
pólitískum toga beinlínis vera tilræði við lýðræðið“.
Aðgerðasinnar og anarkistar hafa mótmælt
starfsaðferðum bresku lögreglunnar harðlega
í máli Marks Kennedy. Kennedy viðurkenndi í
samtölum við fjölmiðla á síðasta ári að hafa átt í
kynferðissambandi við í það minnsta tvær konur á
meðan hann var innan raða aðgerðasinna.
Kennedy hefur einnig verið sakaður um að hafa
hvatt til harðra aðgerða mótmælenda og tekið
þátt í lögbrotum þeirra.
Í yfirlýsingu innanríkisráðherra segir að sé það
rétt að flugumenn erlendra lögregluembætta láti
ekki við það sitja að njósna um fólk heldur æsi
það til uppþota og jafnvel ofbeldis sé það for-
kastanlegt. Að stofna til kynferðislegs sambands
við konur úr röðum mótmælenda sé „skýlaust
brot á lögum og lögreglusamþykktum alls staðar í
siðuðum þjóðfélögum“.
Íhlutun lögreglu tilræði við lýðræðið
MARK KENNEDY
MÓTMÆLI Meðlimir í Saving Iceland mótmæltu Kárahnjúkavirkjun og álverum nokkur sumur í röð, meðal
annars með því að hlekkja sig við vinnutæki og leggjast á ökuleiðir að vinnusvæðum. MYND/SKESSUHORN
á landi að Kennedy hafi verið flugumaður
bresku lögreglunnar.
Þar er þó jafnframt bent á að ríkislög-
reglustjóri eigi í góðu samstarfi við erlend
lögreglulið. Þar byggi miðlun upplýsinga
iðulega á því að viðtakandi þeirra sé ekki
upplýstur um hvernig þeirra sé aflað. Því
sé vafasamt að fullyrða hvaðan upplýsing-
ar sem fengust að utan fyrir mótmælin við
Kárahnjúka komu. brjann@frettabladid.is
KJARAMÁL Um 75 prósent aðildar-
félaga Samtaka atvinnulífsins
(SA) hafa samþykkt nýgerða
kjarasamninga á almennum mark-
aði. Fram kemur í tilkynningu
frá SA að 21,5 prósent þeirra sem
greiddu atkvæði hafi viljað hafna
samningnum, en 3,5 prósent hafi
ekki tekið afstöðu.
Atkvæðagreiðslan gildir um
kjarasamninga sem undirritaðir
hafa verið við ASÍ, VR, Eflingu,
Hlíf, VSFK, Rafiðnaðarsamband
Íslands, Samiðn, Starfsgreinasam-
band Íslands, Félag vélstjóra og
málmtæknimanna, Landssamband
íslenskra verslunarmanna, Mat-
vís, Félag bókagerðarmanna og
Mjólkurfræðingafélag Íslands. - bj
SA samþykkir kjarasamning:
75% samþykkja
samninginn
FÉLAGSMÁL Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, sem ráðinn hefur verið
framkvæmdastjóri Hjúkrunar-
heimilanna Eirar og Skjóls út þetta
sumar, fær 300
þúsund krón-
um lægri laun
en forveri hans
í starfi. Vil-
hjálmur fær og
greidda akst-
urspeninga
fyrir notkun á
eigin bíl sam-
kvæmt akst-
ursbók en ekki
fasta 200 þúsund króna greiðslu á
mánuði eins og var. Að frátöldum
greiðslum fyrir akstur verða mán-
aðarlaun Vilhjálms 920 þúsund
krónur.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu segist Vilhjálm-
ur ekki hafa sóst eftir starfinu og
ætlar ekki að sækja um þegar starf-
ið verður auglýst innan tíðar. - gar
Eir semur við forstjóra:
Launin lækkuð
um 300 þúsund
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
EFNAHAGSMÁL Rekstrarniðurstaða
samstæðu Reykjavíkurborgar var
jákvæð um 13,67 milljarða króna
árið 2010 en hún var neikvæð um
1,65 milljarða árið áður. Þetta
kemur fram í ársreikningi borgar-
innar sem lagður var fram á fundi
borgarstjórnar í gær. Stærstan
hluta viðsnúningsins má rekja til
hagstæðra gengisbreytinga sem
haft hafa áhrif á skuldir samstæð-
unnar.
Afkoma borgarsjóðs á árinu
var jákvæð um 1,5 milljarða sem
er mun betra en áætlanir gerðu
ráð fyrir. Skýrist það að mestu af
hærri útsvarstekjum vegna meiri
launahækkana en gert var ráð fyrir
og úttekta á séreignarsparnaði. Þá
voru tekjur af fasteignagjöldum
vanáætlaðar.
Í tilkynningu frá borgarstjórnar-
flokki sjálfstæðismanna segir að
þessi niðurstaða sýni að hagræðing-
araðgerðir fyrri meirihluta í borg-
inni, sem sjálfstæðisflokkurinn fór
fyrir, séu að skila sér í varanlegum
rekstrarbata.
Að þeirra sögn hrekur þetta einn-
ig málflutning núverandi meirihluta
um að skatta- og gjaldskrárhækkan-
ir séu óumflýjanlegar. - mþl, þj
Ársreikningur Reykjavíkur sýnir mikinn viðsnúning í rekstri samstæðunnar:
Afkoman jákvæð um 13,67 milljarða
RÁÐHÚSIÐ Afgangur upp á 1,5 milljarða
varð af rekstri borgarsjóðs árið 2009.
Áætlanir höfðu gert ráð fyrir 2,4
milljarða halla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐSKIPTI Árni Páll Árnason efna-
hags- og viðskiptaráðherra flutti
framsögu Íslands á samráðsvett-
vangi umsóknarríkja með fjár-
málaráðherrum Evrópusam-
bandslandanna í Brussel í gær.
Árni Páll ræddi hagstjórnar-
markmið Íslands fyrir árin 2011
til 2013. Hann sagði í framsögu
sinni að stöðugleika væri náð,
með frumjöfnuði og hagvexti.
Hröðun skuldaúrvinnslu, afnám
gjaldeyrishafta og opnun mark-
aða út á við væru helstu áskoran-
irnar nú. - þeb
Árni Páll Árnason:
Ávarpaði ráð-
herra í Brussel
GENGIÐ 17.05.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,7505
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,98 115,52
187,02 187,92
163,32 164,24
21,901 22,029
20,624 20,746
18,163 18,269
1,4057 1,4139
182,67 183,75
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
STÚDENTAGJAFIRNAR FÁST
HJÁ JÓNI OG ÓSKARI
Stúdentarósin 2011
úr 14 kt gulli
kr. 16.400
údentastjarnan 2011
úr 14 kt gulli
kr. 13.500
silfurhálsmen/-næla
kr. 5.900
www.jonogoskar.is LAUGAVEGUR / SMÁRALIND / KRINGLAN
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
25°
22°
15°
23°
25°
15°
15°
21°
18°
24°
20°
29°
12°
22°
17°
14°Á MORGUN
10-18 m/s NV-til,
annars hægari.
FÖSTUDAGUR
Víða10-15 m/s, en
stífari suðaustast.
5
7
9
2
6
3
7
5
8
7
10
8
7
8
8
8
12
8
8
3
7
8
2
3
7
9
3
5
5
0
0
-1
KULDALEG SPÁ
Nú fer kólnandi
á landinu næstu
daga einkum
norðanlands og á
föstudag má búast
við vægu frosti.
Úrkoman sem
fellur norðaustan
til á morgun verður
líklega víða í formi
slyddu í fyrstu og
síðar snjókomu.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður