Fréttablaðið - 18.05.2011, Side 18
18. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR18
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
BERTRAND RUSSELL heimspekingur fæddist þennan dag árið 1872.
„Í öllum athöfnum er hollt að festa öðru hverju spurningarmerki
við þá hluti sem þú hefur lengi litið á sem sjálfsagða.“
Góð stemning var í húsakynnum Ljóssins á dögunum þegar
Sólveig Eiríksdóttir, oftast kennd við Gló, og Dorrit Moussa-
ieff forsetafrú elduðu með ungu fólki sem greinst hefur með
krabbamein. Ungliðahópurinn er samstarfsverkefni Ljóss-
ins, Krafts og Félags krabbameinssjúkra barna.
„Ég hef mjög gaman af því að elda og hugsa mikið um
mataræðið, enda skiptir það miklu máli hvað við setjum ofan
í okkar. Hráfæði er mitt uppáhald, þannig fáum við mest af
næringarefnum út úr fæðunni,“ segir Dorrit kát í bragði.
Hún tekur þó fram að Sólveig sjái að mestu um eldamennsk-
una á námskeiðinum. „Ég bara aðstoða hana. Núna skar ég
til dæmis bara niður hráefnið,“ segir hún og hlær.
Sólveig hefur starfað með Ljósinu í fimm ár og þrisvar
fengið forsetafrúna með sér til að elda með ungliðum. „Við
verðum að hugsa um mataræðið,“ segir Dorrit með áherslu.
„Á Íslandi gæti búið heilbrigðasta þjóð í heimi. Við höfum
ferska loftið, vatnið og góðu landbúnaðarvörurnar. Ef við
myndum öll hreyfa okkur og sleppa sykri, því sykur er eitur,
myndu sparast miklir peningar í heilbrigðiskerfinu,“ segir
forsetafrúin, sem lét ekki sitt eftir liggja í eldhússtörfunum
þegar búið var að snæða dýrindis pastarétt og múslínammi.
Borðhaldið var fjörugt og ungliðarnir óhræddir að ræða
við forsetafrúna um lífið og tilveruna, en það var ekki síst
mataræði sem var til umræðu. Þegar desertinn heilsusam-
legi kom á borðið var forsetafrúin hins vegar byrjuð að
vaska upp. „Hún notaði ekki einu sinni uppþvottavélina,“
sagði einn ungliðinn hissa og annar nefndi að það væri eins
og hún yrði strax ein af hópnum. Ekki var heldur neitt far-
arsnið á Dorrit þótt matreiðslunámskeiðinu væri formlega
lokið og ræddi hún við ungliðana í rúman klukkutíma. Hún
hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og það
höfðu ungliðarnir líka. Ekki fóru þær alltaf saman en hver
bar virðingu fyrir skoðunum annarra. Í umræðunum kom
fram ein hugmynd sem öllum þótti stórsniðug. „Hvernig
væri að hafa einn sykurlausan mánuð á Íslandi?“ spurði for-
setafrúin. Hugmyndin fékk atkvæði flestra ungliðanna, sem
voru þá einnig tilbúnir til að koma að framkvæmdinni. Sollu
í Gló leist líka feiknavel á hugmyndina. „Það langar áreið-
anlega engan í sykur eftir að hafa prófað að vera sykurlaus
í mánuð.“ Ungliðarnir voru sammála um það.
Það er aldrei að vita hvað þær vinkonurnar gera ásamt
þessum kraftmikla ungliðahóp. Í það minnsta er vilji fyrir
því að fræða Íslendinga um gott mataræði og bæta það.
- uhj
DORRIT MOUSSAIEFF: ELDAR Í LJÓSINU
Matreiðir með
ungu fólki
GÓÐ TENGSL Dorrit Moussaieff og Sólveig Eiríksdóttir héldu mat-
reiðslunámskeið í Ljósinu á dögunum fyrir ungt fólk með krabbamein.
Okkar innilegustu þakkir til allra
þeirra sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför móður
okkar, ömmu og langömmu,
Kristjönu Óskar
Kristinsdóttur
frá Hafnarfirði, Ásgötu 12, Raufarhöfn.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilis-
ins Nausts á Þórshöfn sem og starfsfólki Dvalar-
heimilisins Sunnuhlíðar, fyrir kærleiksríka umhyggju
og vináttu sem umvafði Kristjönu og okkur öll.
Kolbrún Stefánsdóttir
Særún Stefánsdóttir
Guðrún Stefánsdóttir
Magnús Stefánsson
Birgitta Björgólfsdóttir og synir
Stefán Jan Sverrisson
Brimrún Björgólfsdóttir og synir
Daníel Benediktsson
Eva Benediktsdóttir
Milla Ósk Magnúsdóttir
Vala Rún Magnúsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Ragnheiðar Bjarnadóttur
Dalbraut 18, Reykjavík,
sem andaðist 27. apríl á Landspítalanum
við Hringbraut.
Ámundi Gunnar Ólafsson Sigrún Þórisdóttir
Lilja Ósk Ólafsdóttir Guðmundur A. Arason
Guðlaug Ingibjörg Ólafsdóttir Hilmar Þórisson
Júlíana Bjarndís Ólafsdóttir Jóhann Einars
Guðmundsson
og fjölskyldur.
Hjartkær frænka okkar,
Kristín Sigríður
Þórðardóttir Kimmel
sem andaðist á Sólvangi í Hafnarfirði 11. maí sl.,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 19. maí kl. 15.00.
Þakkir eru færðar þeim sem léttu henni flutningana
til Íslands og dvölina hér síðustu árin, fyrir umhyggju
þeirra og hlýhug.
Systkinabörn og fjölskyldur
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Árni Guðjón Jónasson
Heiðmörk 13, Hveragerði,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi
þriðju daginn 10. maí, verður jarðsunginn frá
Hveragerðiskirkju föstudaginn 20. maí kl. 14.00.
Sigurður Árnason Guðlaug Ragnarsdóttir
Bjarni Árnason Guðbjörg Jóhannsdóttir
Kristján Þór Hansen Sigurbjörg Egilsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og bróðir,
Pálmi Ingvarsson
lést í Seattle þriðjudaginn 10. maí.
Ingvar Pálmason Ingvarsson Connie Ingvarsson
Soffía Pálmadóttir Gísli Kristjánsson
Auður Ingvarsdóttir
Sigurður Ingvarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Gjótuhrauni 8, 220 Hafnarfirði Sími: 571 0400, legsteinar@gmail.com
GRANÍT OG LEGSTEINAR
Fallegir legsteinar
á einstöku verði
Frí
áletr
un
Gjótuhrauni 8, 220 H fnarfirði Sími 571 400 ranit@granit.is
Ástkær sonur okkar, bróðir, barna-
barn, frændi og vinur,
Albert Karl Sigurðsson
Tunguvegi 7, Njarðvík,
lést á heimili sínu, sunnudaginn 15. maí. Jarðarförin
verður auglýst síðar.
Margrét Sanders Sigurður Guðnason
Sigríður Sigurðardóttir
Sylvía Sigurðardóttir Guðni Róbertsson
Sigríður Sigurjónsdóttir Guðni Sigurðsson
Kolbrún Jóna Færseth
og aðrir ættingjar og vinir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Ari Bergþór Oddsson
Aðalgötu 5, Keflavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi, fimmtu-
daginn 12. maí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
föstudaginn 20. maí kl. 13.00.
Guðrún Jóna Aradóttir Sigurður J. Ögmundsson
Sigríður Aradóttir Guðmundur Finnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sveinbjörg Jónsdóttir
Þjóttuseli 5, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ laugardaginn
7. maí. Útförin fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn
19. maí kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Blindrafélagið. Sérstakar þakkir til starfsfólks
Skógarbæjar fyrir góða umönnun og hlýju.
Jón Helgason Stefanía G. Björnsdóttir
Björg Gísladóttir
Berglind Reynisdóttir Samson Magnússon
Sveinbjörg Jónsdóttir Sigurður Óli Hákonarson
Stefán Helgi Jónsson Guðbjörg S. Bergsdóttir
Rannveig Jónsdóttir
og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn
Hjörtur Gunnarsson
Suðurgötu 17, Hafnarfirði,
lést 10. maí. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 20. maí kl. 15.00.
Nanna Friðgeirsdóttir