Fréttablaðið - 18.05.2011, Side 19
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Miðvikudagur 18. maí 2011 – 9. tölublað – 7. árgangur
PORTÚGAL HJÁLPAÐ
Evrópusambandið samþykkti á
mánudag neyðarlán til bjargar
Portúgal upp á 78 milljarða evra.
Þriðjungur lánsins kemur frá Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum, þriðj-
ungur úr neyðarsjóði evruríkj-
anna en þriðjungur fer á fjárlög
ESB. Að meðaltali eru lánin til
sjö og hálfs árs með 5,7 prósenta
vöxtum.
KÍNVERJAR GÁI AÐ SÉR
Herman van Rompuy, forseti
leiðtogaráðs Evrópusambands-
ins, segir að Kínverjar verði að
gá að sér og sýna sanngirni í við-
skiptum við ESB, að öðrum kosti
gætu Evrópubúar krafist vernd-
arráðstafana af hálfu Evrópusam-
bandsins. Hann er í heimsókn í
Kína og ræddi þar í gær við Wen
Jiabao forsætisráðherra.
TREGÐA Á MÖRKUÐUM
Tregðu gætti á mörkuðum í gær
vegna skuldavanda Evrópuríkja
og áframhaldandi óvissu um efna-
hagsbata í heiminum. Evran hélt
þó sínu striki, þrátt fyrir nokkurn
ugg um að handtaka Dominique
Strauss-Kahn geti haft einhver
langtímaáhrif.
Þjónusta Veitingahús VerslunÍþrótta- og félagasamtök Ríki- og sveitarfélögFerðaþjónusta
Hraði!
Skilvirkni!
Sveigjanleiki!
Ingibjörg Bára Sveinsdóttir
skrifar
Embætti skattrannsóknarstjóra er með um fjörutíu
svokölluð skattaskjólsmál til rannsóknar. Embættið
hefur ekki komist yfir nema brot af þessum fjölda,
að því er Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknar-
stjóri greinir frá.
„Við höfum komist til botns í einhverjum en önnur
eru þung þegar ekki hefur tekist að afla allra þeirra
upplýsinga sem við teljum þörf á. Sum geta verið í
rannsókn í á annað ár. Við vitum að það eru miklir
fjármunir í skattaskjólunum, einkum í Lúxemborg,“
segir Bryndís, en þeim sem eiga eignir og fjármuni
erlendis og eru skattskyldir hér á landi ber að telja
allt fram.
Reynslan af upplýsingaskiptasamningum við
önnur ríki hefur verið upp og ofan, að sögn Bryn-
dísar. „Umhverfið er að opnast meira, en stundum
fer mikið ferli í gang þar sem verið er að teygja lop-
ann. Þetta gengur betur í sumum löndum en öðrum.
Þessir samningar opna ekki allar dyr. Við erum til
dæmis með upplýsingaskiptasamning við Jómfrúa-
eyjar en upplýsingarnar er ekki að finna þar þótt
félag sé skráð þar til heimilis. Þar er kannski bara
eitthvert box en félagið sjálft staðsett í Lúxemborg.
Þessir samningar eru til bóta en fuglinn er ekki allt-
af í hendi.“
Íslendingar eru í einhverjum mæli farnir að yfir-
gefa skattaskjólin, að því er Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri greinir frá.
„Það er alltaf eitthvað um það að á framtölum
birtist upplýsingar um eignir og fjármuni í útlönd-
um. Við höfum hins vegar ekki athugað þetta kerf-
isbundið. Framtalsskilin eru almennt að batna og
einnig hvað varðar upplýsingar frá útlöndum. Það
væri auðvitað óskandi að menn gerðu þetta í meiri
mæli,“ segir ríkisskattstjóri.
Hann tekur fram að mögulega séu vissir hvatar
að baki þegar menn ákveði að telja allt fram. „Þeir
sem hafa verið í skattaskjólum vita að við erum að fá
upplýsingar. Margir þeirra eru auk þess í fjárhags-
legum erfiðleikum. Þá þarf að grípa til allra fjár-
muna og það er ekki hægt að birtast með þá hér án
þess að telja þá fram. Slíkt kallar á rannsókn skatt-
rannsóknarstjóra.“
Skúli segir að oft þurfi að greiða háar þóknanir
til fjármálafyrirtækja og aðila sem haldi utan um
gögn í skattaskjólum. „Þetta getur verið svo há þókn-
un að hún slagi jafnvel upp í skattasparnað. Það er
alveg klárt mál að það er engin góðgerðastarfsemi
hjá þessum stofnunum. Í einhverjum tilfellum hafa
menn hagnast á þessu en það er ekki reglan.“
Þegar menn koma úr felum bætist við endur-
ákvörðunina 25 prósenta álag á alla skattstofna, að
sögn Skúla. „Síðan er metið hvort viðkomandi mál
þarf að fara til skattrannsóknarstjóra.“
Rannsaka fjörutíu
skattaskjólsmál
Embætti skattrannsóknarstjóra kemst aðeins yfir brot mála
tengdra skattaskjólum. Upplýsingaskiptasamningar til bóta.
Íslendingar teknir að yfirgefa skattaskjólin í einhverjum mæli.
Verðbólguhorfur hafa versnað
og mun Seðlabankinn ekki lækka
stýrivexti frekar, að mati grein-
ingardeildar Arion banka.
Í Markaðspunktum deildarinn-
ar í gær segir að aukin umsvif á
fasteignamarkaði, áhrif gjald-
eyrishafta, gjaldskrárhækkan-
ir og áhrif nýlegra kjarasamn-
inga muni smita út frá sér í verð-
lag. Af þeim sökum sé ólíklegt
að verðbólga verði undir mark-
miðum Seðlabankans í allt að tvö
ár. Gert er ráð fyrir að vísitala
neysluverðs hækki um 0,7 prósent
í mánuðinum og fari verðbólga við
það í 3,1 prósent. Spá deildarinnar
gerir ráð fyrir að verðbólga verði
komin í 4,0 prósent í ágúst.
Af þessum sökum telur deild-
in að botninum hafi verið náð í
núverandi vaxtalækkunarskeiði.
Hún telur jafnframt að þrátt fyrir
versnandi horfur verði pólitískum
þrýstingi beitt til að fá Seðlabank-
ann til að horfa framhjá verð-
bólguhorfum í vaxtaákvörðun-
um sínum. - jab
Stýrivextir
lækka ekki
VEXTIR KYNNTIR Líklegt er að þrýst
verði á að Seðlabankinn horfi fram hjá
verri horfum í vaxtaákvörðunum sínum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ísland færist skör neðar
Kapphlaup í stígvélum
og með sandpoka
4-5
Tækni
Dagblöð lesin í
farsímanum
PFS og Vodafone
Deilt um tíðni nýs
farsímanets
2