Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.05.2011, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 18.05.2011, Qupperneq 24
Ferðasýningin Íslandsperlur verður haldin í Perlunni um helgina. Sýningin er öllum opin og stendur frá 10 til 18 báða dagana. Gestum gefst tækifæri til að kynna sér fjölbreytta ferðamöguleika á Íslandi, smakka á íslenskum krásum og njóta fjölbreyttra uppákoma. „Meðbyrinn er stórkostlegur og ég hef aldrei upplifað aðrar eins við- tökur síðan ég byrjaði að selja Vísi í Austurstræti á fimmta árinu,“ segir Ágúst Rúnarsson, hug- myndasmiður og framkvæmda- stjóri ferða- og upplýsingavefsins Worldcenter.co sem fór form- lega í loftið 17. apríl. Vefurinn er sá fyrsti sinnar tegundar í heim- inum og á þjóðhátíðardaginn 17. júní opnar sérstakur Íslandsvefur á íslensku fyrir Íslendinga, en þess má geta að www.icelandcenter.is er fyrsta síðan sem opnar undir regnhlífavef Worldcenter. „Á 37 ára starfsferli mínum í ferðaþjónustu heima og erlendis hefur mér fundist vanta haldgóð- an samnefnara fyrir ferðaþjónustu í heiminum. Á netinu fyrirfinnast milljónir ferðasíðna sem ferðafólk leitar á með misgóðum árangri, en á Worldcenter er leit þeirra orðin hraðvirkari og markvissari,“ segir Ágúst sem áætlar að opna undir- síður Worldcenter í 150 löndum á næstu fimm árum, en hann hefur þegar tryggt sér þarlend lén og fengið eina af stærstu endurskoð- endaskrifstofum landsins til að vinna fyrir sig varlega áætlaða fjárhagsáætlun. „Samkvæmt útreikningum er áætlað að velta Worldcenter verði orðin töluverð eftir fimm ár, en fjármagn mun að langstærstum hluta koma erlendis frá í gegnum auglýsingatekjur og þóknanir á bókunum víðs vegar um heiminn. Þá er gert ráð fyrir að Worldcent- er skapi allt að 1.500 ný störf á heimsvísu á næstu fimm árum og ljóst að fyrirtækið verður mjög gjaldeyrisskapandi þegar tekjur af sölu á ferðatengdri þjónustu og vörum skilar sér til Íslands,“ segir Ágúst og bætir við að hug- myndir séu uppi um að fyrirtækið reisi sitt eigið gagnaver á næstu árum. „Hugmyndin að Worldcenter er sú að nóg sé fyrir fólk að muna nafnið, hvar sem það er statt í heiminum. Frá vefsíðunni getur það svo hoppað út um allan heim og leitað upplýsinga um nánast allt sem viðkemur áfangastað sínum; sögu, þjóðlíf, menningu, stjórn- sýslu, atvinnu- og viðskiptalíf, auk upplýsinga um flug, bílaleig- ur, gistingu og alla þá afþreyingu og ævintýri sem bjóðast í hverju landi fyrir sig. Þá hefur World- center gert samning um að hluti söluandvirðis renni til styrkt- ar SOS-barnaþorpum og hyggst jafnvel opna sérstakt Worldcent- er-barnaþorp þegar fram líða stundir,“ segir Ágúst sem einnig verður með klúbba, afsláttarkort og vefverslanir á Worldcenter og ekki síst Islandcenter.is, þar sem eftirspurn eftir íslenskum vörum af öllu tagi er mikil. „Allir vefirnir verða á fimm tungumálum: ensku, dönsku, frönsku, spænsku og þýsku, auk þess sem Íslandsvefurinn verður á íslensku. Vefsíður hinna land- anna, með beinni tengingu frá Worldcenter, verða undir viðkom- andi landaheiti og svo center, eins og Danmarkcenter, Hollandcenter, Israelcenter og Australiacenter, en við áætlum að opna í Kína, Mal- asíu, Taílandi, Litháen, Eistlandi, Möltu, Þýskalandi og Danmörku á haustdögum. Eftirspurnin er mikil og allir vilja vera með, enda auð- velt fyrir heimsbyggðina að muna nafnið og heillandi tilhugsun að finna allt um ferðalög til 150 landa á einum stað,“ segir Ágúst. Sjá nánar á icelandcenter.is, erlendu útgáfu Íslandssíðunnar sem opnar á íslensku á slóðinni islandcenter.is 17. júní. thordis@frettabladid.is 150 lönd á einum stað Hvert viltu fara? Út í buskann eða á heimsenda, en skortir haldbærar upplýsingar um hvernig þú átt að komast þangað? Nýja íslenska vefsíðan Worldcenter mun senn geyma allt um ferðalög til 150 landa. „Frá vefsíðunni getur fólk hoppað út um allan heim og leitað upplýsinga um nánast allt sem viðkemur áfangastað sínum; sögu, þjóðlíf, menningu, stjórnsýslu, atvinnu- og viðskiptalíf, auk upplýsinga um flug, bílaleigur, gistingu og alla þá afþreyingu og ævintýri sem bjóðast í hverju landi fyrir sig,” segir Ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÍSLENSKT KISUNAMMI Fæst í Bónus, Samkaup, 10-11, Fjarðarkaup og Inspired Keflavíkurflugvelli Harðfisktöflur sem kisur elska VINSÆLVARA NÝ SENDING AF SPARIFATNAÐI! Eistland og Lettland Miðaldir - 16.-24. júlí 2ja landa sýn, ferðast er um bæði löndin. Við skoðum hinar fögru miðaldaborgir Tallinn og Riga, gistum m.a. á herrasetri. Skoðum hallir, kastala, markaði, söfn og keyrum i gegnum ægi fögur sveitahéruð svo eitthvað sé nefnt. Beinta flug frá Ke flavík Tallinn Verð 148.900 kr. á mann i 2ja manna herbergi. Innifalið; Fararstjóri, flug og skattar, hótel, allar skoðunarferðir Eistlandi Tallinn Eistlandi - miðaldaborg frá 11. öld,16.-24. júlí Verð einungis 44. 900 kr. (flug með skatti) Verð 78.800 kr. á mann i 2ja manna herbergi. Innifalið flug, skattar, hótel, fararstjóri, rúta til og frá flugvelli. Ein fallegasta borg Evrópu og á minjaskrá Unesco. Miðaldastemning í Tallinn er engu öðru lík. Söfn, dómkirkjur, borgarhlið, borgarveggir, klaustur, borgarturnar og stórfenglegur arkitektúr, allt á sama stað. Má nefna Torgið í gamla bænum, St Olav´s kirkju, St. Catherine götu, Maiden turninn, Toompea kasta- lann, Saint Mary dómkirkjuna og Ráðhúsið. Spennandi skoðunarferðir innan borgar sem utan í boði. Trans-Atlantic sérhæfir sig i ferðum til Eistrasaltslanda 10% 20% BÍTIÐ MEÐ HEIMI OG KOLLU ALLA VIRKA DAGA KL. 6.50 Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.