Fréttablaðið - 18.05.2011, Side 26
18. MAÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● skólar og námskeið
Björgvin Gunnarsson valdi sér
nýstárlegt viðfangsefni fyrir
BA-ritgerð sína í fornleifafræði
við Háskóla Íslands. Hann
stúderaði hvernig víkingar
birtast í kvikmyndum.
„Þetta var reyndar ekki mín hug-
mynd,“ segir Björgvin, spurð-
ur hvernig honum hafi dott-
ið þetta ritgerðarefni í hug. „Við
vinur minn frá Grikklandi, sem
er fornleifafræðingur, vorum
einhvern tíma að ræða um kvik-
myndir og þá helst sögulegar
kvikmyndir, á sama tíma og ég
var að leita mér að efni í BA-rit-
gerðina. Hann lagði saman tvo og
tvo og útkoman varð þessi.“ Eru
kvikmyndir aðaláhugamálið? „Ja,
ég er allavega mjög áhugasamur
um kvikmyndir og sá þarna leið
til að sameina áhugamálin,“ segir
Björgvin.
Björgvin stúderaði tíu kvik-
myndir frá árunum 1957 til 2009,
flestar amerískar en ein er þó ís-
lensk, önnur dönsk og sú þriðja
frönsk. Kom niðurstaðan honum
á óvart? „Ég var að skoða hversu
vel vopn, klæðnaður og híbýli
stemmdu við það sem fornleifa-
fræðin hefur komist að um þessa
hluti á víkingatímanum og það
kom mér nokkuð á óvart hversu
vel þessar tíu myndir fylgdu forn-
leifafræðilegum heimildum. Það
var helst söguþráður myndanna
sem var ansi langt frá raunveru-
leikanum, þarna voru geimver-
ur á stjái, hvað þá annað. En það
kom mér virkilega á óvart hversu
vel fornleifafræðilegum heimild-
um var fylgt í þeim flestum.“ En
hafði orðið einhver þróun í ná-
kvæmninni á þessum rúmu fimm-
tíu árum? „Nei, ég tel að það sé
frekar öfugt, en þetta hefur samt
ekki mikið breyst. Í Pathfinder
frá 2007 eru víkingarnir reynd-
ar orðnir skrímsli, þrír metrar á
hæð og með alls konar furðuleg
vopn, en yfirleitt halda menn sig
við heimildir hvað varðar fatnað,
vopn og híbýli.“ Eina alíslenska
myndin sem Björgvin stúderaði
var Hrafninn flýgur eftir Hrafn
Gunnlaugsson, skar hún sig að
einhverju leyti úr? „Já, hún var
óvenju nákvæm og söguþráðurinn
hélt vatni, sem er frekar óvenju-
legt í þessum myndum.“ - fsb
Fornleifafræði fylgt í
víkingamyndunum
BA-ritgerð Björgvins Gunnarssonar í fornleifafræði nefnist Þungur hnífur og fjallar um víkinga í kvikmyndum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Svandís Anna Sigurðardóttir
kallar MA-ritgerðina sína í
kynjafræði við Háskóla Íslands
„Kynjaflækja hinsegin mæðra.
Að afbyggja kynjakerfið og
gagnkynhneigt forræði frá
jaðrinum.“ Hún segir nafn
ritgerðarinnar hafa reynst
sannmæli.
„Með ritgerð minni vil ég rannsaka
í gegnum viðtöl hvernig hinsegin
konur, sem eru í sambúð og eiga
börn, skilja, vinna úr, styrkja, af-
byggja og sjá fyrir sér kynjahlut-
verk og ímyndir kynjaða valda-
kerfisins sem við búum við,“ segir
Svandís Anna í inngangi ritgerð-
arinnar.
„Ritgerðin reyndar skiptist í
tvennt,“ útskýrir hún. „Fyrst er
fræðilegi hlutinn og síðan viðtals-
hlutinn þar sem ég tók tíu viðtöl
við fimmtán konur sem eru í sam-
búð með annarri konu og eru að ala
upp börn. Kveikjan var sú að mér
fannst áhugavert að skoða hvað
væri að gerast hjá samkynhneigð-
um eftir að þeir hafa öðlast öll
þessi lagalegu réttindi og hvernig
það væri að fara inn í þann risa-
stóra gagnkynhneigða heim sem
fjölskyldan og fjölskyldulífið er.
Hvort með því að taka þátt í því
sem meirihlutinn er að gera sé fólk
neytt til að samlagast honum. Um
leið var ég að skoða kyn og kyn-
gervi og hvað væri að gerast þar.“
Og hver var niðurstaðan? „Nið-
urstaðan á raunar vel við titilinn,
þetta er afskaplega mikil flækja.
Konurnar sem ég talaði við fóru oft
allan hringinn í einu og sama við-
talinu, frá því að halda fram gild-
um hins gagnkynhneigða heims og
til þess að afbyggja allar viðtekn-
ar hugmyndir og halda því fram að
engir tveir væru eins og uppeldi
hlyti að miðast við það, óháð kyni
eða kynhneigð. Það var líka mjög
misjafnt hversu meðvitaðar þær
voru um kyn og kynhlutverk í upp-
eldi barnanna. En jafnvel þótt þær
fylgi gildum hins gagnkynhneigða
fjölskyldulífs eru þær náttúru-
lega að brjóta það upp, einfaldlega
vegna þess að þær eru ekki gagn-
kynhneigðar. Þær eru að víkka
út normið og breyta hugmyndum
okkar um það hvað sé „eðlilegt“
fjölskyldulíf, hvort sem þær gera
það meðvitað eða ekki.“ - fsb
Hinsegin
kynjaflækja
Svandís Anna Sigurðardóttir kallar MA-ritgerðina sína í kynjafræði við Háskóla
Íslands „Kynjaflækja hinsegin mæðra. Að afbyggja kynjakerfið og gagnkynhneigt
forræði frá jaðrinum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar,
Hrafninn flýgur, fylgir fornleifafræðileg-
um heimildum einna best þeirra mynda
sem Björgvin skoðaði.
Upplýsingar á www.mk.is og á
skrifstofu skólans í síma 594 4000
WWW.MK.IS
STÚDENTSNÁM
• Félagsfræðabraut
• Mála- og ferðafræðibraut
• Náttúrufræðibaut
• Viðskipta- og hagfræðibraut
• Listnámsbraut
GRUNNDEILD MATVÆLAGREINA
fyrir þá sem stefna á að vera:
• Bakari
• Framreiðslumaður
• Kjötiðnaðarmaður
• Matreiðslumaður
FRAMHALDSSKÓLABRAUT
Hvert skal stefna í lífinu?
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á WWW.MK.IS