Fréttablaðið - 18.05.2011, Qupperneq 28
18. MAÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● skólar og námskeið
Hafdís Sunna Hermannsdóttir
útskrifaðist vorið 2010 sem iðn-
hönnuður frá Álaborgarháskóla
eftir fimm ára nám til meistara-
gráðu sem er ætlað að sameina
hinar mörgu hliðar hönnunar og
arkitektúrs.
Eftir þrjú fyrstu árin útskrif-
aðist Hafdís með BA-gráðu og
vann þá að áhugaverðu verkefni.
„Við unnum að hönnun lyftu til að
flytja lamaða eða hreyfihamlaða
manneskju milli rúms og stóls,“
útskýrir Hafdís. Aðaláherslan
var lögð á það að taka mið af þörf-
um notandans í hönnunarferlinu
og þróa notendavæna vöru sniðna
að raunverulegum aðstæðum.
„Við unnum mjög náið með sjúk-
lingum og hjúkrunarfólki og
vorum í samstarfi við hjúkrun-
arheimili í Álaborg þar sem við
framkvæmdum notendarann-
sóknir og prófuðum frumgerð-
ir,“ segir Hafdís, sem vann síðar
meistaraverkefni um hvernig út-
færa mætti sjálfbæra hönnun í
fyrirtækjum.
Í febrúar á þessu ári hóf Haf-
dís síðan doktorsnám í arkitekt-
úr og hönnun. Þar rannsakar hún
hvernig hönnuðir geta stuðlað að
ábyrgum og áhrifaríkum lausn-
um með því að vera meðvitaðir
um hvernig hönnun hefur áhrif á
hegðun fólks. „Ég kanna hvernig
hönnuðir geta haft áhrif á hegð-
un í gegnum vörur og þjónustu.
Til dæmis þurfa þeir að vera
mjög meðvitaðir við hönnun á
vörum sem tengjast mat og börn-
um, til að koma í veg fyrir fæðu-
tengd vandamál á borð við offitu,“
útskýrir Hafdís.
Hönnun getur haft áhrif á hegðun
Hafdís Sunna Hermannsdóttir
Unnsteinn Jóhannsson
stundar nám í KaosPilot í
Árósum í Danmörku. Námið er
til þriggja ára og sérstætt fyrir
margra hluta sakir.
„Við köllum þetta skapandi verk-
efnastjórnun, með áherslu á sam-
félagslega nýsköpun og viðskipta-
fræði,“ útskýrir Unnsteinn.
Enginn eiginlegur kennari er
yfir nemendunum heldur fyrir-
liði sem heldur utan um hópinn og
skipuleggur fyrirlestra og verk-
efni. „Námið er byggt upp á að
nemendurnir læri hver af öðrum
og að við vinnum sem mest að
raunverulegum verkefnum,“ segir
Unnsteinn, en nemendurnir fá að
hafa áhrif á hverjir eru fengnir til
að halda fyrirlestra.
Unnsteinn byrjaði í Kaos Pilot
árið 2008 í Rotterdam. Þegar
námið var lagt niður ári seinna
tók hann sér árs leyfi og byrjaði
í Árósum síðastliðið haust.
„Fyrsta árið vinnum við mikið í
hópum, lærum hvernig þeir haga
sér og hvers konar menningu
þeir skapa sér. Annað árið byrj-
ar á feril hönnun, þar sem unnið
er með þarfir fyrirtækja. Þá er
hannaður ferill og KaosPilotinn
leiðir hóp innan fyrirtækisins
í gegnum hann,“ útskýrir Unn-
steinn. Á fjórðu önninni eru nem-
endurnir sendir til annars lands
sem býr yfir annars konar menn-
ingu, og þriðja árinu er skipt upp
í verknám og lokaverkefni.
Unnsteinn er á fjórðu önn í sínu
námi og dvelur nú í þrjá mánuði
í Bogotá í Kólumbíu. „Hér erum
við að skerpa á því sem við höfum
lært,“ segir hann og nefnir að
undanfarin fimmtán ár hafi nem-
endur farið til landa á borð við
Kúbu, Ísrael, Palestínu og Kína.
„Hér í Bogotá erum við 33
saman og erum með þrjá fyrir-
liða. Dagskráin hefur verið þétt
hjá okkur, við höfum farið í kynn-
isferðir um Bogotá, farið á fyrir-
lestra og byggt skólann okkar upp
frá grunni,“ segir Unnsteinn, en
hópurinn fékk tveggja hæða hús-
næði til umráða sem hefur ekki
verið notað í mörg ár. „Á einni
viku urðum við að búa til borð og
stóla, mála og þrífa,“ segir hann
glaðlega.
Hópurinn vinnur að átta mis-
munandi verkefnum með fyrir-
tækjum, háskólum og góðgerðar-
félögum. „Hópurinn minn er að
vinna með samtökum sem heita
Architecture for Humanity. Það
eru alþjóðleg samtök sem vinna
með arkitektum og öðrum við að
bæta líf þeirra sem minnst mega
sín. Við vinnum í litlum skóla í bæ
tveimur tímum vestur af Bogotá,“
segir Unnsteinn. Hluti af verkefni
hans og samnemendanna verður
að halda fjáröflun og skipuleggja
viku þar sem farið er í skóla og
byggt upp, gert við og málað.
Nemendurnir taka að sér fleiri
verkefni í Bogotá. Til dæmis
munu þeir vinna með fólki af
lægstu stigum þjóðfélagsins sem
kallað er endurvinnslufólkið, en
það lifir á því að fara í gegnum
rusl hjá fólki og nýta það sem
hægt er.
Unnsteinn segist mikið hafa
lært í Bogotá, þar sem munur-
inn á fátækum og ríkum er mjög
mikill. „Við fáum að kynnast
báðum hliðum. Vinnum með end-
urvinnslufólki á daginn og förum
svo í fyrirmannahverfi á kvöldin
í kokteila,“ segir Unnsteinn glett-
inn.
Hann hefur trú á að námið veiti
honum góðan grunn og atvinnu-
tækifæri víða. „Við erum nokkr-
ir KaosPilotar á Íslandi og ég veit
að þeir vinna allir að uppbyggi-
legum og skemmtilegum verkefn-
um,“ segir Unnsteinn. - sg
KaosPilot í Bogotá
Unnsteinn ásamt samnemendum sínum sem nú dvelja í Bogotá í Kólumbíu.
Í Proactiv® Solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkum koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Eftirtalin sjálfstæð Apótek selja einnig Proactiv Solution:
REYKJAVÍKURAPÓTEK, Seljavegi 2 // LYFJABORG APÓTEK,
Borgartúni 28 // GARÐSAPÓTEK, Sogavegi 108
URÐARAPÓTEK, Grafarholti // RIMA APÓTEK, Grafarvogi
APÓTEK HAFNARFJARÐAR, Tjarnarvöllum 11
ÁRBÆJARAPÓTEK, Hraunbæ 115 // LYFJAVER Suðurlandsbr. 22
Kenndar verða t.d
eftirfarandi aðferðir:
Ævintýri með nál og þráð
Jurtalitun
Glerlist
Pappírsgerð
Flettað úr víði og birki
Brjóstsykursgerð og fl.
Hinum ýmsu aðferðum verður fléttað saman í skemmtilegt starf.
Farið á Árbæjarsafnið og Elliðaárdalinn. Endum námskeiðið með
uppskeruhátíð á föstudeginum.
Kennt verður 4 daga fyrri vikuna og 5 daga þá síðari.
Tilvalið fyrir bæði stráka og stelpur. Börnin mæta með nesti og
klædd eftir veðri.
Námskeiðsgjaldið er kr. 38.700 en kr. 34.800 fyrir börn félagsmanna
og ef systkini mæta. Allt efni er innifalið. Hægt að skrá sig í síma 551
7800 eða senda tölvupóst á skoli@heimilisidnadur.is
Heimilisiðnaðarskólinn
SUMAR 2011
Handverksnámskeið fyrir 8-16 ára
Tveggja vikna handverksnámskeið fyrir 8-16 ára börn
2. - 12. ágúst kl. 10.00 - 16.00 Hópaskipting eftir aldri.
Útsaumur kr. 47.000 fyrir félagsmenn
(annars kr. 51.500) Efni innifalið
Baldýring kr. 42.000 fyrir félagsmenn
(annars kr. 46.500) Efni ekki innifalið
Orkering kr. 47.000 fyrir félagsmenn
(annars kr. 51.500) Efni innifalið
Knipl kr. 42.000 fyrir félagsmenn
(annars kr. 46.500) Efni ekki innifalið
Re-design kr. 49.500 fyrir félagsmenn
(annars kr. 55.500) Efni ekki innifalið
5 daga námskeið frá 20. júní - 24. júní.
Sjá nánari innihaldslýsingu á heimasíðunni okkar
www.heimilisidnadur.is
Kennt verður frá kl. 10.00 - 12.00 og 13.00 - 15.00 alla daga.
Samtals 30 kennslustundir. Hægt að skrá sig með því að senda
tölvupóst á skoli@heimilisidnadur.is eða hringja í síma 551 7800.
Sólstöðunámskeið
Heimilisiðnaðarskólinn
SUMAR 2011