Fréttablaðið - 18.05.2011, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2011 7 skólar og námskeið ● fréttablaðið ●
● KENNARAR LENDA
FREKAR Í EINELTI Ítarleg
rannsókn á vegum Manchest-
er School of Management frá
árinu 2000 sýndi fram á það
að kennarar væru sú starfsstétt
sem væri í mestri hættu á að
lenda í einelti á vinnustað. 15,5
prósent kennara sögðust þá
búa við einelti á vinnustað og
35,4 prósent sögðust hafa lent
í því síðastliðin fimm ár. Sam-
kvæmt rannsókn Economic
and Social Research Institute á
Írlandi frá árinu 2009 lentu 13,8
prósent starfsmanna í skólum í
einelti en 7,9 prósent á öðrum
vinnustöðum.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Iðnaðurinn óskar eftir vel menntuðu fólki til starfa.
Verk- og tækninám er skynsamlegt og gefur fjölbreytt tækifæri.
Kíktu á NÁM OG STÖRF á idan.is
Mótum eigin framtíð – Núna er rétti tíminn!
Tækifæri
Byggingariðnaður
Áliðnaður
Líftækni
Prentiðnaður
Matvælaiðnaður
Listiðnaður
Véltækni
Málmtækni
Upplýsingatækni
● NÁMSTÆKNI SPARAR
TÍMA Háskólanám kallar oftar
en ekki á endurskoðun náms-
aðferða enda er námsefnið
yfirleitt mun yfirgripsmeira en
á grunn- og framhaldsskóla-
stigi. Námstækni er hjálpar-
tæki sem auðveldar nemend-
um að tileinka sér nýja þekk-
ingu og sparar tíma.
Tímastjórnun, lestrartækni
og glósutækni eru lykilþættir
en á vef Háskólans í Reykjavík
www.ru.is eru þeir útskýrðir
frekar. Hvað varðar skilvirkan
lestur eru ýmsar aðferðir til en
oftast er um að ræða skimun,
lestur og upprifjun. Hvað tíma-
stjórnun varðar er skipulagið
ofar öllu en þumalputtareglan
er sú að nemandi í fullu námi
þurfi að verja 45-50 klukku-
stundum á viku í námið með
skólasókn og heimavinnu.
Glósur þykja af hinu góða en
með því að glósa verða nem-
endur virkari í tímum og efni
hverrar kennslustundar síast
betur inn.
● HÁSKÓLI PLATONS Gríski heim-
spekingurinn Platon var af auðug-
um ættum og notaði auðæfi sín til
að stofna fyrsta háskóla í heimi. Há-
skólinn hlaut nafnið Akademia eftir
staðnum sem hann stóð á rétt utan
við Aþenuborg. Sá skóli starfaði í meira
en þúsund ár og eftir honum eru æðri
menntastofnanir nefndar á allmörg-
um tungumálum svo sem orðasam-
bandið „academic institution“, sem haft
er um æðri menntastofnanir á ensku, ber
með sér.
● NÁMSKEIÐ Í VERKEFNASTJÓRNUN OG
LEIÐTOGAÞJÁLFUN Endurmenntun Háskóla Ís-
lands býður upp á nám í verkefnastjórnun og leið-
togaþjálfun. Námið hefur verið vinsælt frá árinu 2003
en á því hafa verið gerðar nokkrar endurbætur. Nám-
skeiðið hefst næsta haust og spannar tvö kennslu-
misseri sem skiptist í fjögur námskeið. Í náminu er
leitast við að efla fjóra meginfærniþætti nemenda;
stefnumótunarfærni, skipulagsfærni, leiðtogafærni og
samskiptafærni. Unnið er með þessa færniþætti jafnt
og þétt yfir allan námstímann. Umsóknarfrestur er til
30. maí. Nánari upplýsingar má finna á www.endur-
menntun.hi.is.