Fréttablaðið - 18.05.2011, Qupperneq 38
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð tölvuskeyta, eða þar um bil, eru meðal
þeirra gagna sem sérstakur saksóknari
þarf að plægja sig í gegnum í rannsókn
sinni á Kaupþingi.
milljóna króna tap varð
á rekstri DV á síðasta ári.
lítil og meðalstór fyrirtæki,
rétt tæplega, hafa gengið í
gegnum endurskipulagningu
skulda sinna.
Actavis opnaði nýjar höfuð-
stöðvar í bænum Zug í Sviss í
síðustu viku. Forstjórinn Claudio
Albrecht sagði, í samtali við fjöl-
miðla, lágskattastefnuna í bænum
hafa heillað. En þótt starfsmenn
fyrirtækisins greiði talsvert
lægri skatta en hér, kostar sitt að
lifa í bænum. Mánaðarleiga fyrir
meðalíbúð er um hálf milljón, auk
þess sem greiða þarf dýrum dómi
fyrir skólavist barna, heilsu-
gæslu og flest annað sem hér
kostar lítið sem ekkert. En
þó að Zug þyki paradís
fyrir barnafólk og eldri
borgara er þar lítið að
gera fyrir einhleypa.
Kunnugir segja að þegar
nóg sé komið af útivist og
fuglaskoðun taki aðeins
klukkustund að skjótast
til nærliggjandi landa.
Ekki eintóm
paradís
Athygli vakti þegar Björgólfur
Guðmundsson mætti á formlega
vígslu tónlistar- og ráðstefnu-
hússins Hörpu á mánudag. Sonur
hans og nafni lét sig heldur
ekki vanta við formlega opnun
nýrra höfuðstöðva Actavis
í Sviss. Björgólfur er skráður
eigandi Actavis eftir yfirtöku á
fyrirtækinu undir lok sumars
2007. Eftir skuldauppgjör, þar
á meðal við Deutsche Bank,
hefur hann hins vegar fært sig
um set í stól stjórnarmanns.
Í teitið mætti Björgólfur með
nokkrum samstarfsmönnum
sínum hjá fjárfestingarfélag-
inu Novator, þar á meðal Andra
Sveinssyni og lögmanninum
Birgi Má Ragnarssyni, fyrrver-
andi framkvæmda-
stjóra Samsonar,
e i g n a r -
h a l d s f é l a g s
þeirra Björgólfs-
feðga. Birgir
er jafnframt í
stjórn Actavis með
Björgólfi.
Í góðum gír
1.000.000 2.00053
Eignastýring • Markaðsviðskipti • Fyrirtækjaráðgjöf
Arctica Finance er framsækið, óháð og sjálfstætt
fjármálafyrirtæki sem hefur starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu.
Fyrirtækið er í eigu starfsmanna sem búa að áralangri og
víðtækri reynslu af innlendum og erlendum fjármálamörkuðum.
www.arctica.is | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi | Sími 513 3300
Már Guðmundsson seðla banka-
stjóri hefur gert víðreist á
erlendum vettvangi upp á síð-
kastið og kynnt fyrir mönnum
bankahrunið hér, lærdóminn
sem draga má af kreppunni og
bata efnahagslífsins. Í síðustu
viku var hann í London þar sem
hann fundaði með fulltrúum
lánshæfismatsfyrirtækja. Þá
hélt hann erindi um málið í
Englandsbanka og fundaði með
Mervyn King, seðlabankastjóra
Bretlands, einum áhrifamesta
manninum í bresku efnahags-
lífi. Á mánudag var Már
svo á meginlandinu í
B r u s s e l
og flutti
hann þar
erindi á
s v i p u ð u m
nótum og í
Bretlandi.
Á ferð og flugi