Fréttablaðið - 18.05.2011, Síða 44
18. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR24 24
menning@frettabladid.is
Við sáum skrímsli nefnist
nýtt dansverk sem frum-
sýnt verður á Listahátíð
Reykjavíkur á föstudag.
Erna Ómarsdóttir segir
hugmyndina að baki verk-
inu að afhjúpa skrímslin í
tilverunni, jafnt í tilverunni
sem innra með okkur.
Dansflokkurinn Shalala, undir for-
ystu Ernu Ómarsdóttur, stendur að
sýningunni Við sáum skrímsli sem
frumsýnd verður í Þjóðleikhúsinu
á föstudag í tilefni af Listahátíð
Reykjavíkur. Erna er jafnframt
listrænn stjórnandi sýningarinnar.
„Þetta er ljóðrænt verk þar
sem við erum mikið að velta fyrir
okkur uppruna skrímsla og örlög-
um þeirra; hvernig þau verða til
og hvað gerir þau að skrímslum,“
segir Erna. „Skrímsli leynast
nefnilega alls staðar; stundum eru
þau hulin og stundum auðþekkjan-
leg. Þau blunda jafnvel innra með
okkur sjálfum en útlitið getur
blekkt og mörkin á milli veru-
leika og ímyndunar verða stund-
um óljós.“
Erna segir hópinn hafa leitað
fanga víða, til dæmis í hryll-
ing eins og hann birtist í trúar-
brögðum, þjóðsögum, kvikmynd-
um og raunveruleikanum.
„Við sóttum til dæmis inn-
blástur í hrollvekjur frá áttunda
og níunda áratugnum,“ segir
Erna, „og líka bara í dagblöðin,
sem segja reglulega alls konar
hryllingssögur úr veruleikanum.
Þennan heim skoðum við síðan í
sýningunni gegnum dans, söng,
tónlist og myndlist. Þetta er ljóð-
rænt verk, ekki beint með sögu-
þræði, en ákveðinni gegnumgang-
andi tengingu.“
Við sáum skrímsli verður ein-
ungis sýnt tvisvar, á föstudags- og
laugardagskvöld, en Erna gerir
ráð fyrir að sýna verkið erlendis
áður en árið er úti. „Við erum að
fara út með aðrar sýningar á dans-
listahátíðir í sumar en Við sáum
skrímsli fer væntanlega út fyrir
landsteinana í desember.“
Erna hefur starfað mikið á
erlendri grundu undanfarin ár en
reynir nú að haga málum þannig
að hún geti verið meira á Íslandi.
„Mér finnst mjög gott að vera
hér; hér býr fjölskylda mín og hér
er frábært listafólk. Á hinn bóg-
inn þarf maður alltaf að vera með
annan fótinn úti; það er miklu
meira fyrir dansara að gera úti
enda er bransinn heima svo lít-
ill, þótt áhorfendahópurinn sé að
stækka jafnt og þétt.“
bergsteinn@frettabladid.is
Skrímslasetur Ernu Ómarsdóttur
VIÐ SÁUM SKRÍMSLI Hópurinn sótti meðal annars innblástur í þjóðsögur, trúar-
brögð, hryllingsmyndir frá 8. og 9. áratugnum og frásagnir dagblaða af hrollvekjandi
atburðum úr raunveruleikanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skrímslahópurinn:
Aðstandendur Við sáum
skrímsli:
Höfundar og flytjendur: Ernu
Ómarsdóttir, Valdimar Jóhanns-
son, Sigtryggur Berg Sigmars-
son, Ásgeir Helgi Magnússon,
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og
Sigríður Soffía Níelsdóttir.
Listrænn ráðgjafi:
Gabríela Friðriksdóttir.
Dramatúrg:
Karen María Jónsdóttir.
BJARTMAR Á SÓDÓMU Bjartmar Guðlaugsson verður með sögustund á fimmtudagskvöld klukkan 21. Þar mun hann
koma fram með kassagítar og munnhörpu og flytja vinsælustu lög sín fyrir gesti og segja sögurnar á bak við lögin eins og
honum einum er lagið. Hljómsveitin Heima mun sjá um upphitun en hana skipa hjónin Rúnar og Elín.
Hinn hjartnæmi heimilistækja-
sirkus Af ástum manns og hræri-
vélar verður sýndur tvisvar á
Akureyri um helgina. Sýning-
in var frumsýnd á Listahátíð
Reykjavíkur í fyrra og gekk vel,
raunar komust færri að en vildu.
Valur Freyr Einarsson leikstjóri
segir áhugann hafa komið á óvart
og ekki síst hversu vel leikurinn
féll í kramið hjá yngri kynslóð-
inni.
Sýningin verður sýnd á föstu-
dag og laugardag í Samkomuhús-
inu á Akureyri. Leikendur eru
tveir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og
Kristján Ingimarsson. Leikmynd
og búningar eru eftir Ilmi Stef-
ánsdóttur, tónlist eftir Davíð Þór
Jónsson og lýsing í hödnum Ólafs
Ágústs Stefánssonar.
Þess má geta að sýningin var
tilnefnd til tvennra Grímuverð-
launa síðastliðið vor. - sbt
Sirkus heim-
ilistækja til
Akureyrar
AF ÁSTUM MANNS OG HRÆRIVÉLAR Í
leikritinu er skyggnst inn í líf óvenjulegra
hjóna.