Fréttablaðið - 18.05.2011, Síða 46
18. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR26
folk@frettabladid.is
Enskt bókaforlag hefur gert útgáfu-
samning við tvo íslenska Liverpool-
aðdáendur um útgáfu nýrrar bókar
um sögu félagsins.
Enska bókaforlagið deCoubertin Books hefur
samið við Liverpool-aðdáendurna Arngrím
Baldursson og Guðmund Magnússon um útgáfu
bókarinnar Liverpool: The Complete Record.
Hún kemur út í ágúst og hefur að geyma ítarleg-
ar upplýsingar um flest það
sem tengist enska fótbolta-
liðinu frá stofnun þess fyrir
120 árum, þar á meðal töl-
fræði yfir leikmenn, skoruð
mörk og liðsuppstillingar.
Einnig er saga félagsins
rakin í kjarnyrtu máli.
„Þetta er eiginlega
afrakstur sjö ára vinnu,“
segir Arngrímur, sem
stofnaði ásamt Guðmundi
vefsíðuna LFC History.net
fyrir sjö árum þar sem alls
konar efni um Liverpool er
að finna. „Útgáfufyrirtækið
hafði samband við okkur
að fyrra bragði síðastliðið
haust og við erum búnir að
vera á fullu í þessu síðan í september,“ segir
hann.
Bókin er yfir 500 blaðsíður og hefur að
geyma ítarlegar upplýsingar um hverja ein-
ustu leiktíð í sögu Liverpool. Þeir félagar nýttu
ferðir sínar á Liverpool-leiki til að fara á bóka-
safn borgarinnar í leit að gögnum fyrir bókina.
„Við fórum bara alla leið í þessu,“ segir Arn-
grímur. „Þetta var kannski fimm tíma vinna í
senn til að fletta í gegnum aldargömul blöð. Við
vildum taka af öll vafaatriði, sérstaklega um
markaskorara. Stundum var erfitt að segja hver
skoraði í blindhríð árið 1909 í einhverjum leik.
Eitt blað segir að þessi hafi skorað en eitthvað
annað stendur annars staðar.“
Arngrímur og Guðmundur eru fjölskyldu-
menn en Arngrímur segir konu sína skilnings-
ríka þrátt fyrir að allur frítími hans hafi farið
í bókina. „Vonandi fá börnin að lesa þetta síðar
og sjá í hvað allur tíminn fór. Þetta verður
hörkubók, ég lofa því,“ segir hann og heldur
áfram: „Í raun og veru hefur ekki komið svona
tölfræðibók með sögulegu ívafi í um tuttugu ár
um Liverpool, sem er ótrúlegt.“
Mikið mark er tekið á þeim Arngrími og Guð-
mundi vegna vandaðra vinnubragða þeirra við
LFC History.net. Til að mynda notar Liverpool-
félagið þeirra tölfræði sem sína eigin opinberu
tölfræði samkvæmt samningi sem var undir-
ritaður fyrir tveimur árum. freyr@frettabladid.is
Vonandi fá
börnin að lesa
þetta síðar og
sjá í hvað allur
tíminn fór.
Þetta verður
hörkubók, ég
lofa því
ARNGRÍMUR
BALDURSSON
Söngkonan Rihanna er aftur
komin í samband við fyrrver-
andi kærasta sinn, Chris Brown,
en núna í gegnum Twitter-síðuna.
Hún hefur bætt honum á lista
yfir Twitter-vini sína og kom
það mörgum aðdáendum hennar
á óvart. Ástæðan er sú að Brown
var dæmdur í fimm ára skilorðs-
bundið fangelsi og sex mánaða
samfélagsþjónustu fyrir að ráð-
ast á Rihönnu fyrir tveimur árum.
„Þetta er bara Twitter, ekki altar-
ið!“ sagði hin 23 ára Rihanna við
einn aðdáandann sem lýsti yfir
undrun sinni.
Orðnir vinir á Twitter
Snorra Helgasyni hefur verið
boðið að koma fram á þrjú þús-
und manna tónleikum í Kraká í
Póllandi með helstu jaðarrokks-
tjörnum Póllands. Tónleikarnir
fara fram í kvöld og eru liður í
stúdentahátíð í Kraká. Snorri
kemur einnig fram á tónlist-
arhátíðinni Brainlove Festival
í London í lok maí. Snorri er að
leggja lokahönd á sína aðra plötu,
Winter Sun, sem kemur út í júlí.
Hann ætlar að fylgja útgáfu plöt-
unnar eftir með stífu tónleika-
haldi á Íslandi í sumar og svo
leggja í stóra tónleikaferð um
Evrópu næsta vetur.
Snorri spilar
í Póllandi
SPILAR Í PÓLLANDI Tónlistarmaðurinn
Snorri Helgason spilar í Póllandi í kvöld.
10 milljóna lán framleiðanda Two and a Half Men til Charlie Sheen komst óvænt í fréttirnar í gær.
Sheen hefur hins vegar greitt lánið til baka.
ORÐIN VINIR
Rihanna er
orðin vinur
Chris Brown á
Twitter-síðunni.
Hafa skrásett sögu Liverpool-liðsins
GEFA ÚT LIVERPOOL-BÓK Arngrímur Baldursson og Guðmundur Magnússon gefa út bók um Liverpool í ágúst
næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Viðskiptavinir Símans
fá 25% afslátt af
GSM aukahlutum í dag!
Magnaðir
miðvikudagar!
GSM
ferðahleðslutæki
á 25% afslætti