Fréttablaðið - 28.05.2011, Page 6

Fréttablaðið - 28.05.2011, Page 6
28. maí 2011 LAUGARDAGUR6 HEILBRIGÐISMÁL Undanfarin ár hefur afgangur af fjárlögum sem nota má til endurgreiðslu tann- læknareikninga numið um 200 til 400 milljónum króna á ári þar sem endurgreiðsluskrá Sjúkratrygg- inga Íslands hefur ekki hækkað samhliða hækkun á fjárlögum. Afgangurinn safnast ekki upp, að því er Steingrímur Ari Arason for- stjóri greinir frá. „Þessar fjárhæðir fara í hítina. Þegar tryggingarnar í heild eru gerðar upp er kostnaðurinn orð- inn meiri en áætlað var.“ Steingrímur segir stöðuna orðna óviðunandi. „Það hafa ekki náðst samningar við tannlækna og ég þykist vita að menn hafi óttast að yrði endurgreiðslugjaldskráin hækkuð einhliða myndi það fyrst og fremst leiða til þess að tann- læknar hækkuðu verðið hjá sér þannig að sjúklingar nytu þá ekki góðs af. Nú hafa menn hins vegar einsett sér að horfa til barna og reyna að ná samningum um tann- viðgerðir þeirra en halda hinum hópunum, öldruðum og öryrkjum, í óbreyttu kerfi til þess að byrja með.“ Sigurður Benediktsson, for- maður Tannlæknafélags Íslands, segir tannlækna hafa gert athuga- semdir vegna þessa mikla afgangs við yfirvöld í mörg ár. „Sam- kvæmt lögum á að veita þessum fjármunum til fólksins í land- inu en kerfið nær ekki að klára þetta. Við höfum rætt þetta við landlækni, umboðsmann barna, stjórnmálamenn og heilbrigðis- ráðherra. Nú fá börn endurgreitt 75 prósent af ráðherragjaldskrá. Við bentum á að ef þau fengju 100 prósenta endurgreiðslu væri það leið til þess að klára afganginn en það þótti ómögulegt.“ Það er mat Sigurðar að praktísk- ar ástæður séu fyrir því að ekki hafi fengist nógu margir tann- læknar til þess að taka þátt í átaks- verkefninu um gjaldfrjálsar tann- viðgerðir fyrir börn tekjulágra foreldra sem standa á yfir í sumar. „Menn skilja ekki stofuna sína eftir verkefnalausa. Það kost- ar að reka hana og greiða laun. Sjálfur er ég til dæmis bókaður einn til tvo mánuði fram í tím- ann. Þetta er öðruvísi en átak- ið sem við áttum frumkvæði að fyrir tveimur árum til þess að vekja athygli á vandamáli sem við vorum búin að horfa á í mörg ár. Þá unnum við á laugardögum og tókum ekkert gjald fyrir. Það er leiðinlegt að menn haldi að við séum að skemma fyrir þessu átaki því að viljum sannarlega leysa þetta, ekki bara í Reykja- vík heldur um allt land.“ ibs@frettabladid.is Viðskiptavinir Tryggingastofnunar og Sjúkratrygginga Íslands athugið breyttan opnunartíma í sumar. Frá til verða Þjónustumiðstöðin og Hjálpartækjamiðstöðin opin frá kl. , en skiptiborð frá kl. ÍM Y N D U N A R A FL / T R www.hr.is Kynntu þér námið og bókaðu viðtal hjá verkefnastjóra. Meistaranám fyrir fólk sem hefur metnað til að verða leiðtogar. Áhersla er lögð á skipulag, stjórnun og eflingu mannauðs. Þóra Björk Eysteinsdóttir verkefnastjóri thorabe@hr.is MEISTARANÁM ORGANISATIONAL BEHAVIOUR AND TALENT MANAGEMENTOBTM UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 5. JÚNÍ Hundruð milljóna króna ekki nýttar Um 200 til 400 milljónir króna hafa verið afgangs á undanförnum árum af þeirri fjárhæð sem ætluð er til endurgreiðslu tannlæknareikninga. Staðan orðin óviðunandi, segir forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. Semja á um börn. HJÁ TANNLÆKNI Reyna á að ná samningum við tannlækna um tannviðgerðir barna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Það er leiðinlegt að menn haldi að við séum að skemma fyrir þessu átaki því að viljum sannarlega leysa þetta. SIGURÐUR BENEDIKTSSON FORMAÐUR TANNLÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS SERBÍA, AP Þegar hópur lögreglu- manna réðst inn í íbúðarhús í bænum Lazareva klukkan fimm á fimmtudagsmorgun vissu þeir ekki hvort Ratko Mladic, fyrrverandi yfirmaður herliðs Bosníu-Serba, væri þar staddur. Lögreglumennirnir gerðu sam- tímis leit í fjórum íbúðarhúsum þar í þorpinu, en sams konar leit hafa þeir gert reglulega síðustu fjögur árin víðs vegar um Serbíu í von um að rekast á þennan 69 ára gamla mann, sem eftirlýstur er fyrir verstu stríðsglæpi Evrópu síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Þrír lögreglumenn, sem ræddu við fréttastofuna AP, sögðu Mladic strax hafa viðurkennt hver hann væri, hálfhvíslandi að vísu. Hann hafi verið fölur og ellilegur, með tvær skammbyssur á sér en afhenti þær lögreglunni umyrðalaust. Mladic var vakandi þegar lög- regluna bar að garði, þótt flestir þorpsbúar hafi verið í fastasvefni. Hann hafði átt erfitt með að sofa vegna verkja í líkamanum, sem hafa hrjáð hann lengi. Hann hefur verið í felum hjá ætt- ingjum sínum í þessu þorpi í tvö ár, taldi sig nokkuð öruggan þar. Serbnesk stjórnvöld höfðu heitið rúmlega 1.100 milljónum í fundar- laun hverjum þeim sem gæti vísað lögreglunni á Mladic, en enginn fær þau verðlaun vegna þess að lögreglan hafði enga vísbendingu fengið um að hann gæti leynst þarna. - gb Lögreglan í Serbíu hafði enga vissu fyrir því að Ratko Mladic væri í húsinu: Mladic náðist fyrir tilviljun RATKO MLADIC Var vakandi þegar lög- regluna bar að garði klukkan fimm að morgni. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Valtýr Sigurðsson, lög- maður hjá LEX og fyrrverandi rík- issaksóknari, hefur verið fenginn til að reka fjárdráttarmál á hendur fyrrverandi yfirmanni hjá Lands- bankanum fyrir dómi. Ástæðan sem gefin er upp er óvissan sem ríkir um starfsemi efnahagsbrota- deildar Ríkislögreglustjóra, sem áður fór með málið. Málið sem um ræðir er höfðað á hendur Hauki Þór Haraldssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Landsbankan- um, fyrir fjárdrátt. Haukur milli- færði 118 milljónir af reikningi aflandsfélags bankans tveimur dögum eftir hrun og inn á eigin reikning. Hann hefur alla tíð borið að hafa með þessu reynt að bjarga fjármununum. Haukur var sýknaður í Héraðs- dómi Reykjavíkur en Hæstiréttur vísaði málinu aftur heim í hérað. Málflutning ákæruvaldsins fyrir Hæstarétti annaðist Valtýr Sig- urðsson, þá ríkissaksóknari, enda hefur embætti Ríkissaksóknara eitt rétt til þess. Þegar málareksturinn hófst síðan á nýjan leik fyrir héraðsdómi í lok apríl sótti það Alda Hrönn Jóhannsdóttir, settur saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglu- stjóra. Mánuði síðar nýtti nýr ríkis- saksóknari, Sigríður J. Friðjóns- dóttir, sér heimild í lögum til að taka svipta efnahagsbrotadeild- ina forræði á saksókninni og taka hana í sínar hendur. Hún fól Valtý það síðan í kjölfarið. Hann var þá horfinn til starfa á LEX en þekkti málið. Þetta er rökstutt með því að óvissa ríki um skipan ákæru- valdsins þegar aðalmeðferðin er áætluð, vegna fyrirhugaðrar sam- einingar embætta efnahagsbrota- deildar og sérstaks saksóknara. Embættin sameinast formlega 1. júní. - sh Mál tekið af efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra vegna óvissu um skipan ákæruvalds á næstunni: Ríkissaksóknari útvistar sakamáli til Valtýs VALTÝR SIGURÐSSON Telurðu mikilvægt að börn tekjulágra foreldra njóti niður- greiddrar tannlæknaþjónustu? Já 92% Nei 8% SPURNING DAGSINS Í DAG Ætti að takmarka setutíma for- sætisráðherra í stjórnarskrá? Segðu skoðun þína á Visir.is. SIGRÍÐUR FRIÐJÓNSDÓTTIR KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.