Fréttablaðið - 28.05.2011, Side 8

Fréttablaðið - 28.05.2011, Side 8
28. maí 2011 LAUGARDAGUR8 Jafnréttisstofa, Velferðarráðuneytið, Rannsóknastofnun í barna- og fjöl- skylduvernd við HÍ og Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi við HA standa fyrir ráðstefnu og fræðsludegi um kynbundið ofbeldi. Sjónum verður beint að kynbundnu ofbeldi sem heilbrigðisvandamáli sem mikilvægt er að vinna bug á. Karlar eru sérstaklega hvattir til að mæta. Dagskrá 13:00- 13:15 Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra setur ráðstefnuna 13:15- 13:35 Elísabet Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd: Niðurstöður rannsókna og hvað svo? 13:35- 13:55 Sigríður Halldórsdóttir, prófessor við Háskólann á Akureyri: Ofbeldi, konur og mannréttindi 13:55- 14:15 Ólafur Örn Bragason, sálfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra og Fangelsismálastofnun en starfar sjálfstætt við mat og meðferð ungra gerenda kynferðisbrota: Börn og unglingar sem sýna skaðlega kynhegðun 14:15- 14:35 Kaffi 14:35- 14:55 Magnús Ólason, læknir á Reykjalundi: Konur, verkir og ofbeldi 14:55- 15:15 Ástþóra Kristinsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarstjóri í Heilsu- gæslunni Hvammi í Kópavogi: Áhrif heimilisofbeldis á barns- hafandi konur, fóstur og börn þeirra. 15:20- 15:40 Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands: Notkun klínískra leiðbeininga við að greina ofbeldi gegn konum í nánum samböndum 15:40-16:00 Umræður Ráðstefna um kynbundið ofbeldi Drögum tjöldin frá! Askja, Háskóli Íslands 1. júní 2011 Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis en þátttakendur eru beðnir að skrá sig á: jafnretti@jafnretti.is A rg h! 0 5· 20 11 – FULLT HÚS ÆVINTÝRA ellingsen.is A-HÝSIN FÁST Í ELLINGSEN PI PA R\ TB W A • S ÍA 1. Hvað heitir fyrrverandi yfir- maður herliðs Bosníu-Serba sem hefur verið handsamaður eftir tíu ára leit? 2. Hver er nýr formaður SÁÁ? 3. Hvað heitir sigurvegari tíundu þáttaraðar American Idol? SVÖR SJÁVARÚTVEGUR „Í hverjum einasta mánuði hittast sjómenn og útvegs- menn og fara yfir þessi verð. Verð- lagsstofa skiptaverðs fylgist auk þess með þeim. Ef grunur vaknar um að ekki sé verið að fylgja reglum um viðmiðunarverð þá er hægt að vísa því til úrskurðarnefndar sjó- manna og útvegsmanna. Þar hefur ekki fallið dómur í langan tíma,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ). Þannig svarar hann fullyrðingum Jóns Steinssonar, dósents í hagfræði við Columbia-háskóla í Bandaríkj- unum, sem segir ýmislegt benda til að útgerðin selji fisk á undirverði til tengdra aðila til að lækka hlut sjó- manna samkvæmt kjarasamning- um. „Ef við tökum þorskinn sem dæmi þá höfum við haft tólf mánaða viðmið um þessi verð frá árinu 2001 sem við eigum að reyna að liggja sem næst. Viðmiðið er vegið með- altal af verði á fiskmarkaði og því sem borgað hefur verið þegar eigin aðili stundar vinnslu. Hið raunveru- lega verð hefur sveiflast í kringum viðmiðið eins og eðlilegt er en það er augljóst að því hefur ekki verið haldið kerfisbundið niðri,“ segir Friðrik. Jón hefur skoðað samband fisk- verðs og framlegðar í vinnslu á Íslandi. Hann telur sambandið óeðli- lega mikið sem bendi til að fiskur hafi verið seldur á undirverði. Þá sé þetta sennilega meira stundað í uppsjávarfiski en bolfiski þar sem virkari fiskmarkaður sé til staðar í bolfiski og þar með augljósari við- miðunarverð. Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag- fræðingur LÍÚ, segir hins vegar margt geta valdið því að framlegð í vinnslu sé breytileg milli ára. Þau ár sem framlegðin hafi verið sér- staklega mikil hafi sama þróun verið hjá þeim fiskvinnslum sem hafa enga tengda aðila til að kaupa fisk af. Það bendi til þess að Jón hafi rangt fyrir sér. „Það verð sem miðað er við þegar útgerðin greiðir sjómönnum laun í þeim tilvikum þar sem fiskurinn kemur frá eigin útgerð er yfirleitt í kringum 75 til 80 prósent af verði á fiskmarkaði en munurinn skýr- ist af sölukostnaði. Svona eru bara þeir kjarasamningar sem til eru og það er bara ekki rétt að farið hafi verið á svig við þá,“ segir Friðrik enn fremur. Þá sé mjög mikilvægt að hafa það í huga að ef grunur vaknar um að menn séu ekki að fylgja þessum reglum þá hafa sjómenn úrræði til að bregðast við því. „Þetta er mikil ásökun og alvarleg en hún á ekki við rök að styðjast. Auðvitað eru alltaf einhverjir svartir sauðir í greininni eins og alls staðar en þessi fullyrð- ing stenst ekki skoðun,“ segir Frið- rik. magnusl@frettabladid.is LÍÚ segir alls ekki farið á svig við kjarasamningana Útvegsmenn eru óánægðir með þá fullyrðingu Jóns Steinssonar hagfræðings að ýmislegt bendi til að fiskur sé seldur á undirverði til að fara á svig við kjarasamninga sem Fréttablaðið greindi frá í gær. ÞORSKUR Frá því að viðmiðunarverð var tekið upp við sölu fisks til eigin vinnslu árið 2001 hefur verð þorsks sveiflast á bilinu 87 til 99 prósent af ákveðnu hlutfalli. Við- miðunarverðið hefur á tímabilinu verið 92 til 95 prósent. Forsvarsmenn LÍÚ segja um mjög gegnsætt og skýrt ferli að ræða. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 1. Ratko Mladic 2. Gunnar Smári Egilsson 3. Scott McCreery DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- ness úrskurðaði í gær að ungur maður sem grunaður er um að hafa orðið barnsmóður sinni að bana í Heiðmörk fyrr í mánuðinum skuli vistaður á viðeigandi stofnun til 23. júní. Hann verður vistaður á réttargeðdeildinni á Sogni. Maðurinn kom með lík konunnar í skotti bifreiðar sinnar á Land- spítalann í Fossvogi 12. maí síðas- liðinn. Ljóst þykir að voðaverkið átti sér stað í Heiðmörk. Konan bar þess merki að þrengt hefði verið að öndunarfærum hennar, sem hafi leitt til þess að hún lést. - jss Harmleikurinn í Heiðmörk: Meintur bana- maður á Sogn Vilja hert eftirlit í Kópavogi Jafnréttis- og mannréttindanefnd Kópavogs segir brýnt að herða eftirlit með framkvæmd laga um veitinga- staði, gististaði og skemmtanahald. Jafnréttisráðgjafi á að afla upplýsinga um vínveitingastaði og upplýsinga um hvernig eftirliti með þeim sé háttað. SVEITARFÉLÖG VIÐSKIPTI Fjármálafyrirtæki beita tveimur ólíkum aðferðum við endur reikninga á gengistryggðum bílalánum. Skeikar þar á bilinu þrjú til fimm prósent af upphaflegum höfuðstóli. Endurreikningar á gengis- tryggðum húsnæðislánum eru hins vegar alls staðar eins. Þetta kemur fram í mati sem sérfræðingar á Raunvísindastofnun Háskóla Íslands hafa unnið fyrir Umboðs- mann skuldara á endurútreikning- um á gengislánum. „Margir lántakendur hafa leitað til embættisins og talið að fjármála- fyrirtæki hafi ekki staðið rétt að endurreikningum sínum. Við leit- uðum því til Raunvísindastofnunar til að fá hlutlaust og faglegt mat á þessum útreikningum,“ segir Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara. Í matinu kemur fram að ólík aðferðafræði við útreikningana byggir á mismunandi skilningi á lögum sem sett voru um slíka reikn- inga. Drómi og Avant eru einu fyr- irtækin sem beita sömu aðferð við útreikninga á bílalánum og húsnæðis lánum en SP-fjármögn- un, Lýsing og Íslandsbanki reikna bílalán með öðrum hætti sem gefur nokkuð hærri niðurstöðu. - mþl Fjármálafyrirtæki endurreikna gengistryggð húsnæðislán með sömu aðferð: Misræmi í endurreikningum bílalána KYNNING Niðurstöður matsins voru kynntar í höfuðstöðvum Umboðsmanns skuldara í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN DÓMSMÁL Skipstjóri um sextugt hefur verið ákærður fyrir að landa framhjá vigt rúmlega tonni af þorski. Skipstjóranum er gefið að sök að hafa, eftir löndun úr skipi sínu við Grindavíkurhöfn, ekið með þrjú fiskikör, sem innihéldu rúm- lega 1,1 tonn af slægðum þorski, sem seldur var á uppboði hjá Fiskmarkaði Suðurnesja, án við- komu við hafnarvog. Þessi afli skipsins reiknaðist þar með ekki með réttum hætti til aflamarks skipsins. - jss Skipstjóri ákærður fyrir svindl: Sagður landa framhjá vigt MENNTAMÁL Menntaskólinn í Reykjavík útskrifaði 187 nemendur í gær, 18 úr fornmáladeild, 19 úr nýmáladeild, 63 úr eðlisfræðideild og 87 úr náttúrufræðideild. Dúx skólans var Sigriður Lilja Magnús- dóttir með meðaleinkunnina 9,82. Semídúx var Arnar Guðjón Skúla- son með einkunnina 9,65. Yngvi Pétursson rektor minnti á að sjaldan áður hefði íslensk þjóð haft meiri þörf fyrir vel menntað, heiðarlegt og bjartsýnt fólk. „Aðeins með góðri menntun erum við fær um að taka vitræna afstöðu og skynsamlegar ákvarðarnir landi og þjóð til heilla.“ - sh MR útskrifar 187 nemendur: Dúxinn með 9,82 í einkunn BRAUTSKRÁÐIR Alls voru 187 nemendur útskrifaðir úr MR í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.