Fréttablaðið - 28.05.2011, Síða 16

Fréttablaðið - 28.05.2011, Síða 16
16 28. maí 2011 LAUGARDAGUR Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Til leigu! Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ingi Tómsson í síma 842 4907 eða bit@smaragardur.is Smáragarður, Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík, sími 585 2900, www.smaragardur.is Nú í vor verða kynntar nýjar námskrár sem byggjast á þeim nýju menntalögum sem sam- þykkt voru árið 2008. Við gerð námskránna er einnig unnið að því að leggja nýjar áherslur varðandi inntak í námi og skólastarfi sem meðal annars er ætlað að koma til móts við þá gagnrýni sem sett er fram í Rannsóknaskýrslu Alþing- is þar sem lögð er áhersla á það hlutverk stjórnvalda hverju sinni að mennta hinn almenna borgara nægilega vel svo hann geti veitt valdhöfum eðlilegt aðhald, hvar sem þeir standa í litrófi stjórnmál- anna eða á vettvangi atvinnulífs. Mína viðleitni til að bregðast við þessu má finna í þeim sex grunnþáttum sem lagðir eru til grundvallar í námskrám allra skólastiga. Þeir eru læsi, sköp- un, sjálfbærni, heilbrigði og vel- ferð, jafnrétti og lýðræðismennt- un með áherslu á siðfræði og mannréttindi. Í læsinu felst m.a. áhersla á gagnrýnið miðlalæsi sem þarf að vera samfaglegur þáttur í öllu námi, bæði í formlega skóla kerfinu og innan fullorðins- fræðslunnar og efla þannig læsi á „hvers kyns áróður og innistæðu- lausa ímyndarsmíð“ (eins og segir í skýrslu þingmannanefndar). Á þjóðfundi um menntamál og á menntaþingi var kallað eftir auk- inni áherslu á lýðræðismenntun og siðfræði og að mínu mati höfum við núna einstakt tækifæri til að efla lýðræðismenntun, ekki aðeins með fræðslu um lýðræði heldur einnig að efla lýðræðisleg vinnu- brögð í öllu skólastarfi. Hvað varð- ar jafnréttismenntun þá hefur núna í vetur verið tilraunakennt námsefni um jafnréttismál, Kyn- ungabók, þar sem lögð er áhersla á gagnrýna nálgun á staðalmynd- ir og valdahlutföll kynjanna. Þetta er spennandi tilraunastarf sem vonandi leggur grunn að enn jafnréttissinnaðra samfélagi en við eigum nú. Menntun til sjálfbærni er að halda innreið sína víða í hinum vestræna heimi og skilningur á mikilvægi hennar fer jafnt og þétt vaxandi enda lykilþáttur í að ná jafnvægi samfélagslegra, efna- hagslegra og umhverfislegra þátta við mótun samfélagsins. Sama má segja um skilning á mikil- vægi skapandi starfs fer vaxandi, enda átta æ fleiri sig á því að skap- andi hugsun er nauðsynleg til að byggja upp nýja og fjölbreytta atvinnustefnu þar sem byggt er á þekkingu og skapandi hugsun. Mikilvægi velferðar og heil- brigðis, hvort sem er líkamlegs, félagslegs eða andlegs verður seint nægilega ítrekað. Fljótlega eftir hrun var sett á fót svokölluð velferðarvakt sem starfar þvert á ráðuneyti og er ætlað að fylgjast með félagslegum og fjárhagsleg- um afleiðingum bankahrunsins. Sérstaklega hefur verið tekið á eineltismálum og samþykkti ríkis- stjórnin í fyrra sérstaka fjárveit- ingu til þriggja ára til að berjast gegn einelti. Þá hafa ráðuneyti velferðar og menntamála unnið að heilsueflingu og forvörnum í framhaldsskólum og er ætlunin að halda því starfi áfram og víkka ennfremur út. En lykilatriðið í að innleiða og þróa menntastefnu eru öflugir kennarar. Við Íslendingar eigum sem betur fer frábært fagfólk á öllum skólastigum. Það hefur svo sannarlega sannast nú í efnahags- kreppunni þar sem fjölskyldur landsins hafa reitt sig á skólana sem samfélagslegar stoðir þar sem börnin sækja ekki einungis mennt- un heldur líka traust og umhyggju. Það er mikilvægt að hafa það í huga við uppbygginguna framund- an að þau menntakerfi sem búa vel að kennurum standa sterkt. Víða má sjá að skólakerfi hafa verið endurskipulögð með það í huga að efla faglegt sjálfræði og ábyrgð kennara, bæta aðbúnað þeirra og möguleika til endurmenntun- ar fyrir utan kjörin sem þarna skipta auðvitað miklu. Eins skiptir miklu máli að aðstoða kennara við að takast á við verkefni sem fylgja nýjum námskrám. Í þeim anda er nú unnið að útgáfu þema- hefta um hvern grunnþátt þar sem m.a. verða hagnýtar ábendingar fyrir skóla stjórnendur og kenn- ara um hvernig grunnþættir geti verið leiðarvísir í skólastarfi, s.s. í stefnu skóla, starfsháttum, við gerð starfs- og rekstraráætlana og í tengslum við samstarf heim- ila og skóla. Við Íslendingar höfum lært það af kreppunni að menntun skiptir miklu og það má meðal annars sjá á menntaátaki stjórnvalda en á undanförnum misserum hafa stjórnvöld haft víðtækt samráð þar sem menntamála ráðuneytið, velferðarráðuneytið og forsætis- ráðuneytið hafa verið í sam- starfi við fulltrúa á opinberum og almennum vinnumarkaði og stjórnarandstöðu til að bregðast við bráðavanda á vinnumarkaði og í menntakerfinu. Afurð þess samstarfs er átak- ið Nám er vinnandi vegur. Fjár- mögnun átaksins er tryggð í samráði ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins í tengslum við gerð kjarasamninga en í heild verða framlög til mennta- mála með átakinu aukin um sjö milljarða króna næstu þrjú ár. Framhaldsskólinn verður efld- ur, atvinnuleitendum verða gefin aukin tækifæri til að mennta sig, sérstakur þróunarsjóður stofn- aður til að efla starfstengt nám og samstarf skóla og fyrirtækja um starfstengt nám verður aukið. Lög um LÍN og framfærslukerfi námsmanna verða endurskoðuð, skil framhaldsskóla og fullorðins- fræðslu verða gerð sveigjanlegri, námsráðgjöf efld og vinnustaða- námssjóður styrktur þar sem m.a. á að opna framhaldsskólana fyrir umsækjendum yngri en 25 ára en vegna fjárskorts á síðustu misser- um hefur það ekki reynst mögu- legt. Þessi markmið stjórnvalda byggjast meðal annars á sóknar- áætlun fyrir Ísland sem mótuð hefur verið á undanförnum miss- erum þar sem sett eru fram háleit markmið um að efla menntunar- stigið í landinu og sem flestir ljúki að lágmarki prófi úr framhalds- skóla. Ef við höldum rétt á spöðun- um mun menntakerfið gegna lykil- hlutverki við uppbyggingu öflugra samfélags á Íslandi. Uppbygging samfélagsins byggist á menntun Menntamál Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningar- málaráðherra Víða má sjá að skólakerfi hafa verið endurskipulögð með það í huga að efla faglegt sjálfræði og ábyrgð kennara, bæta aðbúnað þeirra og möguleika til endurmenntunar fyrir utan kjörin sem þarna skipta auðvitað miklu. Samtök um tónlistarhús – SUT, hafa starfað í 28 ár. Samtök- in hafa haldið á lofti mikilvægi byggingar tónlistarhúss í Reykja- vík. Barátta fyrir tónlistarhúsi er þó enn lengri og má segja að hún hefjist á ofanverðri 19. öld. Þannig hefur hún stað- ið í rúm eitt hundrað ár. Baráttunnar sér m.a. stað í Stefnuskrá Bandalags íslenskra listamanna 1937, þar sem hvatt er til að komið verði upp full- komnu hljómleikahúsi í Reykjavík. Oft voru áformin kveðin niður af ráðamönnum, sem vildu niður með fjöllin og upp með dalina. Enn dreymdi framfara- menn um tónlistarhús við stofnun Sinfóníu- hljómsveitar Íslands 1950, áfram var því mætt af ámóta dala- mennsku og fyrr. And- snúnir sögðu slík mont- hús ekki vera fyrir Íslendinga. Áfram sýndu stjórn- völd hugmyndum um tónlistarhús lítinn áhuga – hlutverk SUT fólst í að þoka ráðamönnum og almenningi til skilnings á mál- efninu. Undir aldamótin 2000 fór að rofa til, baráttan eignaðist talsmann í Birni Bjarnasyni þ.v. menntamálaráðherra og í kjöl- farið lýsti ríkisstjórnin stuðn- ingi við málið. Árið 2002, hinn 11. apríl, var undirritað samkomulag milli ríkis og borgar um að vinna að því að reisa tónlistarhús, húsið yrði tilbúið í lok árs 2006. Þar var kveðið á um að einkaaðilar skyldu byggja og reka húsið, en borg og ríki leggðu fjármuni til reksturs árlega. Þá hófst forvinna að bygging- unni. Samkeppni um útlit, bygg- ingarframkvæmd og rekstur – nýjar tímasetningar sem miðuðu við að húsið opnaði 2009. Portus, félag Björgólfs Guðmundsson- ar varð fyrir valinu. Bygginga- hraðinn varð annar en ætlað var og hrunið kom í veg fyrir opnun 2009. Til stóð að hætta framkvæmdum, en þá kom til dirfska, sem fólst í ákvörðun yfirvalda um að halda áfram, þar fóru fyrir; Katrín Jakobs- dóttir menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttur borgarstjóri. Þá verður að geta samstöðu margra, sem héldu réttilega fram að byggingin eyði- legðist við að standa sem gapandi stekkur um ókomin ár. Traustir stuðningsaðilar Sam- takanna Samtök um tónlistarhús hafa frá byrjun átt að trausta stuðn- ingsaðila. Þar í flokki eru ein- lægir áhugamenn um tónlist, fjöldi listamanna, sem gefið hafa vinnu sína á tónleikum, við upptökur sem gefnar hafa verið út í nafni SUT. Þá gleym- ist ekki fjöldi fyrirtækja og ein- staklinga, sem styrkt hafa Sam- tökin með stórum fjárhæðum af ýmsu tilefni. Ekki verður og litið framhjá þeim sem í ræðu og riti héldu uppi baráttu fyrir húsinu. Ekki má heldur gleyma öllum formönnum og stjórnum sam- takanna frá upphafi, sem unnið hafa mikið starf í sjálfboðavinnu. SUT slitið – nýr styrktarsjóður Nú eru tímamót; með tilkomu Hörpu er hlutverki SUT lokið. Þeir peningar sem safnast hafa á löngum tíma verða að styrktar- sjóði, sem styrkja mun sköpunar- starf í Hörpu, þetta er ákvörðun aðal- og fulltrúaráðsfundar Sam- takanna frá því í október 2009. Sjóðurinn mun heita; Styrktar- sjóður SUT og Ruth Hermanns, en Ruth ánafnaði öllum eign- um sínum málstaðn- um. Sjóðurinn mun starfa innan Hörpu og í stjórn eru fulltrú- ar þriggja fagfélaga tónlistarmanna; FÍH, STEF, FÍT, fulltrúi frá Sinfóníuhljóm- sveit Íslands og tón- listarstjóri Hörpu. Sjóðurinn veitir tvo styrki árlega til tón- listarmanns eða -hóps. Styrkþegi er skuld- bundinn til að halda tónleika í viðeigandi sal Hörpu. Fyrstu tón- leikar af þessu tilefni verða að vori 2012. Það er mat stjórnar SUT, að þannig sé pening- unum best varið; til sköpunar nýrra land- vinninga í tónlist. Stofnfé Styrktarsjóðs- ins verður um 120.000.000 kr. Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á heimasíðum FÍH, FÍT, STEFS og Hörpu. Stuðningsaðilum boðið á tónleika í Hörpu Nú er ástæða til að gleðjast yfir glæsilegu tónlistarhúsi. Það er ánægjulegt að segja frá því að 19. ágúst. nk. kl. 20:00, verð- ur styrktaraðilum SUT boðið á tónleika í Hörpu. Á efnisskrá er m.a. Mozart flautukonsert með Stefáni Ragnari Höskuldssyni, flautuleikara hjá Metropolitan óperunni í New York. Þá verð- ur og afhjúpaður minnisvarði, koparskjöldur þar sem Samtök- um um tónlistarhús - stuðnings- aðilum eru færðar þakkir fyrir 28 ára baráttu. Næstu daga mun þeim berast boðsbréf á þennan viðburð og nánari upplýsingar um slit Samtakanna og stofnun Styrktarsjóðsins. Ný viðmið Það eru tímar sundurþykkju í gjörvallri veröld – tilgangsleysi og fátækt eru hlutskipti margra – við snúum ekki til baka með það sem íþyngir okkur í verald- legum og andlegum efnum – en til að halda vöku okkar er mikil- vægt að við missum ekki sjónar á því sem við þó höfum. Þetta er inntak tónlistar – og tónlistin ber í sér eðli viljans. Sá sem kynn- ist því eðli, veit að hann getur breytt sjálfum sér til hins betra og þannig verður til afl sem leiðir til betra samfélags. Harpan ber með sér vortíð og nýja tíma – tíma sem færa okkur áður óþekkt viðmið og lífsgæði. Nú berst tónlistin til okkar óhindrað í glæstum sölum. Nú þarf að efla sköpun tónlistar í húsi sem við öll gerum tilkall til, þangað getum við sótt styrk, sem eflir okkur til nýrra átaka. Til hamingju með Hörpu – heið- skíra von um framtíð. Samtök um tón- listarhús 1983-2011 Menning Egill Ólafsson formaður SUT Harpan ber með sér vortíð og nýja tíma – tíma sem færa okkur áður óþekkt viðmið og lífsgæði. Nú berst tónlist- in til okkar óhindrað í glæstum sölum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.