Fréttablaðið - 28.05.2011, Page 30
28. maí 2011 LAUGARDAGUR30
■ GRÍMSVATNAGOSIÐ SETT Í SAMHENGI
A
ska úr Grímsvatnagosinu og
truflanir á flugsamgöngum
í Evrópu vegna öskufalls
hafa orðið mörgum tilefni
til þess að bera það saman
við gosið í Eyjafjallajökli í
fyrra. Þó að afleiðingarnar séu um margt
líkar eru gosin þó talsvert ólík, að sögn
Páls Einarssonar, prófessors í jarðeðlis-
fræði.
„Í fyrsta lagi eru þetta mjög ólík eld-
fjöll. Grímsvötn er basalteldfjall og eitt af
virkustu eldfjöllunum hér á landi. Það er á
flekaskilunum sem liggja í gegnum landið
og hefur gosið mjög oft. Það er eitt af okkar
virkustu. Eyjafjallajökull er hins vegar
eitt af latari fjöllunum og hefur gosið mjög
sjaldan og aldrei mjög dramatískt. Það eru
ekki þekkt nein hamfaragos úr því eld-
fjalli.“
Páll segir kvikuna úr Eyjafjallajökli oft
vera það sem kallist þróuð kvika, sem hafi
allt aðra eiginleika en basaltkvikan sem
kemur úr Grímsvötnum.
„Hún er seigari og gasríkari og þess
vegna miklu sprengjuvirkari, en það er
helsti munurinn á þessum tveimur skepn-
um. Í gosinu í Eyjafjallajökli var askan
miklu fínkornóttari vegna þess að sprengi-
virknin var miklu meiri og því fór askan
í mun minni agnir. Það gerir hana erfiða
viðfangs þar sem hún hangir mikið lengur
í andrúmsloftinu en gerist með grófkorna
ösku líkt og kemur frá Grímsvötnum.“
Páll segir að það sé ein af útskýringunum
á því af hverju Grímsvatnagos hafði tak-
markaðri áhrif á flugsamgöngur, en margt
fleira komi þó til.
„Aðstæður í fyrra voru allt aðrar og það
var samkrull af mörgum aðstæðum sem
varð til þess að það gos olli svo miklu tjóni,
meðal annars veðrið. Það var stífur vindur
á meðan á gosinu stóð þannig að askan fór
beint þangað sem hún gat valdið mestu
tjóni. Svo hélt það áfram óvenju lengi og
dældi ösku dag eftir dag.
Gosið núna í Grímsvötnum byrjar með
miklum látum og er miklu stærra gos í
raun og veru, en stendur stutt yfir þar sem
erfiðasti fasinn er sennilega nú um garð
genginn þó að gosið sé ekki alveg búið.
Páll segir þó að Grímsvatnagosið hafi
ekki verið alveg eftir bókinni.
„Það sem kemur okkur verulega á óvart
er hvað það er gríðarlega stórt, því að við
höfðum frekar gert ráð fyrir að það yrði
eins og í síðustu þremur Grímsvatnagosum,
sem öll hafa verið frekar lítil og meinlaus.
Það fór svolítið fram úr okkur þar.“
Hann segir þó ljóst að bæði gosin hafi
verið afar lærdómsrík og hafi bætt miklu
við þekkingu fræðimanna og viðbragðs-
aðila. - þj, þeb
Ólíkt Eyjafjallagosinu
Hver er munurinn á gosinu í Grímsvötnum nú og í Eyjafjallajökli í fyrra? Jarðeðlisfræðingur
segir bæði mun á fjöllunum sjálfum og veðuraðstæðum, en bæði gosin séu mjög lærdómsrík.
PÁLL EINARSSON
Mesta rennsli
sem hefur mælst í
Gullfossi er 2.000
rúmmetrar á sekúndu
15 sekúndur
af Gullfossi
í mesta
rennsli
ná einni
sekúndu
af Gríms-
vötnum.
Gjóskuframleiðsla síðustu gosa
Þegar mest var komu um 10.000 rúmmetrar á sekúndu af gjósku úr gígnum.
Gosmökkurinn
náði 20 km hæð
Mökkurinn úr Eyjafjallajökli náði í
10-12 km hæð.
Grímsvötn 2011
*0,5 km3 af gjósku á 24-28 klukkustundum.
Grímsvötn 2004
*0,044 km3 af gjósku á 33 klukkustundum.
Eyjafjallajökull 2010
0,3 km3 af gjósku á 39
dögum.
* gróflega áætlað
G
rí
m
sv
öt
n
20
11
Ey
ja
fj
al
la
jö
ku
ll
20
10
Hallgrímskirkja 74,5 metrar
10-12 km
20 km
STEYPUMAGNIÐ
SEM FÓR Í BYGGINGU
HÖRPU
VAR 30.000 m3
ÞAÐ TÓK GRÍMSVÖTN
3 SEKÚNDUR
AÐ NÁ ÞVÍ
ÞAÐ VÆRI HÆGT AÐ BÚA TIL
59KÁRAHNJÚKASTÍFLUR MEÐ GJÓSKUNNI ÚR GRÍMSVÖTNUM
ÞAÐ ÞYRFTI
50 MILLJÓNIR
TÓLF TONNA VÖRUBÍLA
TIL AÐ FERJA
GJÓSKUNA ÚR GOSINU
JAFNGILDI ALLS
ÞORSKAFLANS
KOM UPP ÚR
GOSINU
1.212
SINNUM Á SÓLAR-
HRING AÐ MEÐALTALI