Fréttablaðið - 28.05.2011, Síða 30

Fréttablaðið - 28.05.2011, Síða 30
28. maí 2011 LAUGARDAGUR30 ■ GRÍMSVATNAGOSIÐ SETT Í SAMHENGI A ska úr Grímsvatnagosinu og truflanir á flugsamgöngum í Evrópu vegna öskufalls hafa orðið mörgum tilefni til þess að bera það saman við gosið í Eyjafjallajökli í fyrra. Þó að afleiðingarnar séu um margt líkar eru gosin þó talsvert ólík, að sögn Páls Einarssonar, prófessors í jarðeðlis- fræði. „Í fyrsta lagi eru þetta mjög ólík eld- fjöll. Grímsvötn er basalteldfjall og eitt af virkustu eldfjöllunum hér á landi. Það er á flekaskilunum sem liggja í gegnum landið og hefur gosið mjög oft. Það er eitt af okkar virkustu. Eyjafjallajökull er hins vegar eitt af latari fjöllunum og hefur gosið mjög sjaldan og aldrei mjög dramatískt. Það eru ekki þekkt nein hamfaragos úr því eld- fjalli.“ Páll segir kvikuna úr Eyjafjallajökli oft vera það sem kallist þróuð kvika, sem hafi allt aðra eiginleika en basaltkvikan sem kemur úr Grímsvötnum. „Hún er seigari og gasríkari og þess vegna miklu sprengjuvirkari, en það er helsti munurinn á þessum tveimur skepn- um. Í gosinu í Eyjafjallajökli var askan miklu fínkornóttari vegna þess að sprengi- virknin var miklu meiri og því fór askan í mun minni agnir. Það gerir hana erfiða viðfangs þar sem hún hangir mikið lengur í andrúmsloftinu en gerist með grófkorna ösku líkt og kemur frá Grímsvötnum.“ Páll segir að það sé ein af útskýringunum á því af hverju Grímsvatnagos hafði tak- markaðri áhrif á flugsamgöngur, en margt fleira komi þó til. „Aðstæður í fyrra voru allt aðrar og það var samkrull af mörgum aðstæðum sem varð til þess að það gos olli svo miklu tjóni, meðal annars veðrið. Það var stífur vindur á meðan á gosinu stóð þannig að askan fór beint þangað sem hún gat valdið mestu tjóni. Svo hélt það áfram óvenju lengi og dældi ösku dag eftir dag. Gosið núna í Grímsvötnum byrjar með miklum látum og er miklu stærra gos í raun og veru, en stendur stutt yfir þar sem erfiðasti fasinn er sennilega nú um garð genginn þó að gosið sé ekki alveg búið. Páll segir þó að Grímsvatnagosið hafi ekki verið alveg eftir bókinni. „Það sem kemur okkur verulega á óvart er hvað það er gríðarlega stórt, því að við höfðum frekar gert ráð fyrir að það yrði eins og í síðustu þremur Grímsvatnagosum, sem öll hafa verið frekar lítil og meinlaus. Það fór svolítið fram úr okkur þar.“ Hann segir þó ljóst að bæði gosin hafi verið afar lærdómsrík og hafi bætt miklu við þekkingu fræðimanna og viðbragðs- aðila. - þj, þeb Ólíkt Eyjafjallagosinu Hver er munurinn á gosinu í Grímsvötnum nú og í Eyjafjallajökli í fyrra? Jarðeðlisfræðingur segir bæði mun á fjöllunum sjálfum og veðuraðstæðum, en bæði gosin séu mjög lærdómsrík. PÁLL EINARSSON Mesta rennsli sem hefur mælst í Gullfossi er 2.000 rúmmetrar á sekúndu 15 sekúndur af Gullfossi í mesta rennsli ná einni sekúndu af Gríms- vötnum. Gjóskuframleiðsla síðustu gosa Þegar mest var komu um 10.000 rúmmetrar á sekúndu af gjósku úr gígnum. Gosmökkurinn náði 20 km hæð Mökkurinn úr Eyjafjallajökli náði í 10-12 km hæð. Grímsvötn 2011 *0,5 km3 af gjósku á 24-28 klukkustundum. Grímsvötn 2004 *0,044 km3 af gjósku á 33 klukkustundum. Eyjafjallajökull 2010 0,3 km3 af gjósku á 39 dögum. * gróflega áætlað G rí m sv öt n 20 11 Ey ja fj al la jö ku ll 20 10 Hallgrímskirkja 74,5 metrar 10-12 km 20 km STEYPUMAGNIÐ SEM FÓR Í BYGGINGU HÖRPU VAR 30.000 m3 ÞAÐ TÓK GRÍMSVÖTN 3 SEKÚNDUR AÐ NÁ ÞVÍ ÞAÐ VÆRI HÆGT AÐ BÚA TIL 59KÁRAHNJÚKASTÍFLUR MEÐ GJÓSKUNNI ÚR GRÍMSVÖTNUM ÞAÐ ÞYRFTI 50 MILLJÓNIR TÓLF TONNA VÖRUBÍLA TIL AÐ FERJA GJÓSKUNA ÚR GOSINU JAFNGILDI ALLS ÞORSKAFLANS KOM UPP ÚR GOSINU 1.212 SINNUM Á SÓLAR- HRING AÐ MEÐALTALI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.