Fréttablaðið - 28.05.2011, Síða 36

Fréttablaðið - 28.05.2011, Síða 36
heimili&hönnun2 ● Forsíðumynd: Anton Brink Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is, Vera Einars- dóttir vera@frettabladid.is Pennar: Sigríður Heimisdóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir, Júlía Margrét Alexanders- dóttir Auglýsingar: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir s. 512 5462 Útlitshönnuður: Silja Ástþórsdóttir siljaa@ frettabladid.is. heimili& hönnun  SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM HÍBÝLI  maí 2011 ELDHÚSIÐ Í UPPÁHALDI Helga Björg Jónasardóttir byggði við húsið sitt og stækkaði eldhúsið til muna. Það er nú aðalstaður fjölskyldunnar. BLS. 4 MAÍ TILBOÐ HITAKÚTAR OG OFNAR MEÐ 15% AFSLÆTTI Olíufylltir rafmagnsofnar Norskir ryðfríir hitakútar Ljósnæmur textíll og mannleg munstur Rannsakendur, framleiðendur og skólar í Borås í Svíþjóð eru leiðandi í þróun textíls á heimsvísu. SÍÐA 6 Undraheimur barnanna Í Æfingastöð lamaðra og fatlaðra er að finna þaul- hugsaðan sal sem veitir örvun og gleði. SÍÐA 2 Í Proactiv® Solution eru efni sem hreinsa húð þína og eyða bólum. Með daglegri notkum koma efnin í veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því! Eftirtalin sjálfstæð Apótek selja einnig Proactiv Solution: REYKJAVÍKURAPÓTEK, Seljavegi 2 // LYFJABORG APÓTEK, Borgartúni 28 // GARÐSAPÓTEK, Sogavegi 108 URÐARAPÓTEK, Grafarholti // RIMA APÓTEK, Grafarvogi APÓTEK HAFNARFJARÐAR, Tjarnarvöllum 11 ÁRBÆJARAPÓTEK, Hraunbæ 115 // LYFJAVER Suðurlandsbr. 22 P IP A R \T B W A · S ÍA · 1 1 1 4 5 6 Terra nýr valkostur fyrir veröndina Vörur okkar eru sérhannaðar fyrir íslenskar aðstæður. Fáðu tilboð og gerðu verðsamanburð! b m va ll a .is Terra er nýtt og fallegt verandarefni úr slípuðum hellum sem fæst í hvítu, gráu og svörtu. Terra er hagkvæm og endingargóð lausn á veröndina, laus við umstang og viðhald sem fylgir hefðbundnum pallaefnum. Ekki eyða sumarfríinu í viðhald. Komdu á sýningarsvæði okkar í Fornalundi og skoðaðu Terra-hellurnar eða hafðu samband við söludeildir okkar. Sími: 412 5050 Fax: 412 5001 sala@bmvalla.is BM Vallá ehf. Bíldshöfða 7 110 Reykjavík ● JÓLAÓRÓI Georg Jensen fyrir jólin 2011 er kominn í Epal og er væntanlegur í fleiri verslanir, eins og Kúnígúnd. Einhverjum kann að þykja það held- ur snemmt að huga að jólaskrautinu í maí en óróinn á sér stóran hóp aðdáenda þar sem fólk safnar skrauti hvers árs og heldur vel utan um safnið. ● LENA BERGSTRÖM leitar í notaleg form nátt- úrunnar í nýrri línu sinni sem Design House Stock- holm hefur hafið framleiðslu á. Línunni, sem kallast Björk, tilheyra mottur og tvær gerðir af mjúkum kollum en þeir eru klæddir ull í gráum litatónum. Koll- arnir minna einna helst á trjástubb í skógi en línan öll er undir sterkum áhrifum birkitrjáa. ● GAUKSKLUKKUR eru alltaf jafn sjarmerandi en þessa skemmtilegu útgáfu hann- aði japanski iðnhönnuðurinn Naoto Fukasawa fyrir Magis. Fukasawa hefur starfað sem iðnhönnuð- ur í meira en þrjá áratugi og hefur hlotið meira en fimmtíu verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín en hann hefur hannað alls kyns muni og húsgögn, allt frá regnhlíf til raftækja. ● GÓÐAR BLOGGSÍÐUR sem fjalla um hönnun og arkitektúr eru nokkrar en vert er að benda á eina frábæra sem Gerður Harðardóttir, blaðamaður og stílisti, heldur úti. Slóðin er kool- andkreativ.blogspot.com en Gerður hefur skrifað fyrir íslensk og erlend tímarit um þau efni, má þar nefna Bo bedre og Hús og híbýli. UNDIR SÓLINNI... Það leynist óskaplega skemmti legur undraheimur í einum sal Æfinga- stöðvar lamaðra og fatlaðra við Háaleitisbraut. Salur þessi til heyrir barnadeildinni og er þaulhugsaður til þess að veita börnum örvun og þjálfun á sem bestan máta. Náttúran er undirstaða formsins en efnisvalið er náttúrulegt og bjart. Það er hönnunarstofan Hugdetta sem stendur á bak við hönnun ina og það kemur á daginn að annar helm- ingur Hugdettu er einmitt sjúkra- þjálfi auk þess að vera vöruhönnuð- ur að mennt. Það er ekki laust við að maður óski þess að rými af þessu tagi sé opið og aðgengilegt öllum börnum. Þess má þó geta að Hönnunarsafn Íslands í Garðabæ hefur barnaher- bergi sem hannað er af Hugdettu en það sem þessi salur hefur umfram er stærðin og fjölbreytileikinn. En af hverju ræður ekki litagleði ríkjum eins og tíðkast oft í heimi barnanna? Rannsóknir hafa sýnt að ímyndunaraflið letjist við það að handleika hluti sem líkja of mikið eftir veruleikanum. Með því að hafa hlutina óljósari, tvívíða og einlita þá er meira fyrir ímyndunaraflið að leika við. Börnin örvast meir og leikurinn hefur meira lærdómsgildi. Það sem vekur eina mestu ánægju hjá börnunum er lítið hús sem búið er öllum helstu nauðsynj- um. Þar er hægt að fara inn á einum og stað og út á öðrum. Það gleymist nefnilega oft þegar hannað er fyrir börn að þau lifa og hreyfa sig allt öðru vísi en fullorðnir einstakling- ar. Hugmyndaflug þeirra og ímynd- unarafl er að þroskast og það á að vera ljúft og skylt fullorðnum að veita þeim tæki og tól til þess að virkja þessar hugarorku. Ég vona að ég eigi eftir að sjá leik- horn eða herbergi frá Hugdettu á al- menningsstöðum enda verða hvorki börn né fullorðnir sviknir af því. Mannbætandi hönnun ● Í Æfingastöð lamaðra og fatlaðra er að finna sannkallaðan ævintýraheim fyrir börn. Þar er svo búið um hnútana að ímyndunaraflið komist sem mest á flug. Hugdetta á heiðurinn. Bókstafirnir og annað veggskraut er úr tré. Það er límt á veggina og hafa börnin gaman af því að virða það fyrir sér og koma við. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Snati er á staðnum og mörg önnur dýr, íslensk og erlend. Er ekki miklu skemmtilegra að renna sér út um glugga en að fara út um útidyra- hurð? Bjart og létt yfirbragð tekur á móti gestum og það er alltaf heiðskírt í þessum sal. Sigga Heimis iðnhönnuður skrifar í Heimili&hönnun sigga@siggaheimis.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.