Fréttablaðið - 28.05.2011, Side 38
heimili&hönnun4
„Eldhúsið er hjarta heimilisins, hér
erum við langmest,“ segir Helga
Björg Jónasardóttir vöruhönnuð-
ur. Hún byggði við húsið sitt á Sel-
tjarnarnesi fyrir nokkrum árum og
stækkaði eldhúsið til muna en það er
nú 35 fermetrar.
„Allur gluggaparturinn er viðbót
og útsýnið frábært, beint út á sjóinn
og á Keili. Eldhúsið er líka vinnu-
rými fjölskyldunnar númer eitt og
eldhúsborðið er í rauninni tvö borð
sem hægt er að stækka. Þegar mikið
er verið að læra og vinna við borð-
in drögum við þau í sundur og borð-
um við annað og geymum draslið á
hinu,“ segir Helga en fjölskyldan
telur fimm manns, hund og kött.
Helga hannaði eldhúsið sjálf
og lét smíða eldhúsinnréttinguna
í Valsmíði á Akureyri. Hún hafði
praktíkina að leiðarljósi við hönn-
unina og hver hlutur fékk sinn stað.
„Ég teiknaði eldhúsið upp þann-
ig að gott væri að vinna þar. Upp-
þvottavélin er upphækkuð, öll
tæki lokuð inni í skápum sem
hægt er að opna og stækka
vinnuplássið á borðinu. Við
létum einnig leggja rafmagn þar
sem hvert tæki átti að vera og gerð-
um til dæmis ráð fyrir kaffivélinni
strax á vissum stað í innrétting-
unni. Eyjan er á hjólum og hægt að
færa hana til þegar þarf að rýma til
fyrir veislur og annað,“ segir
Helga sem leigir aldrei sali
þegar hún heldur stórar
veislur. „Nei ég býð frekar
gestunum í tvennu lagi. Einn
af kostunum við svona opið og stórt
eldhús er líka sá að geta spjallað við
gestina meðan maður eldar.“
Eldhússtólarnir vekja athygli,
fagurbláir og á hjólum. Helga fann
þá á netinu og stóðst ekki mátið.
„Þetta eru gamlir Phanton-stólar
sem ég bauð í á dönskum uppboðs-
vef fyrir nokkrum árum. Þetta var
útrásarflippið mitt,“ segir hún hlæj-
andi.“
Heimilið prýðir annars fjöldi fal-
legra muna og margir eftir Helgu
sjálfa. Þar má meðal annars
nefna hnífasegul á eldhúsveggn-
um eftir hana og samstarfskon-
ur hennar í Björg í bú, vasa og
skálar úr gömlum netaköðlum og
sófaborðið í stofunni.
„Sófaborðið er Surtsey árið 1968.
Ég var svo heilluð af því hvern-
ig eyjan varð til á okkar tímum
og hvernig lag hennar er alltaf að
breytast. Ég spónlagði borðplötuna
þannig að kvistirnir eru staðsettir
þar sem gígarnir eru á eyjunni.”
Á stofuvegg hangir málverk eftir
Stefán frá Möðrudal sem Helga
keypti af honum sjálfum í
skemmtilegri heimsókn
til hans og einnig myndir
eftir hana sjálfa. Hún seg-
ist þó ekki vera safnari.
„Ef hlutir hafa sögu teng-
ist maður þeim gjarnan en ég hef
aldrei látið hluti eða steypu stjórna
mér. Það er helst eldhúsið, ég vildi
geta flutt það með mér hvert sem
er.“ - rat
Hjartað slær í eldhúsinu
● Helga Björg Jónasardóttir vöruhönnuður byggði við húsið sitt og
stækkaði eldhúsið til muna. Þar eyðir fjölskyldan nú mestum
tíma sínum með útsýni til sjávar.
Enginn sófi er í sjónvarpsherberginu
heldur stórar pullur og púðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Stólarnir við eldhúsborðið eru gamlir Phanton stólar sem Helga bauð í á dönskum
uppboðsvef. „Þeir voru útrásarflippið mitt,“ segir Helga hlæjandi.
Helga Björg Jónasardóttir, vöruhönn-
uður í Björg í bú, teiknaði upp eldhúsið
sitt svo gott væri að vinna í því.
Tækin eru inni í skápum sem hægt er að
opna og stækka borðplássið.
Hnífasegull
eftir Björg í bú
á veggnum fyrir
ofan vinnu-
borðið.
Stórval fyrir ofan sófann. Helga heimsótti listamanninn eitt sinn og keypti af honum
þrjár myndir.
Sófaborðið er eftir Helgu. Það hefur
lögun Surtseyjar árið 1968. Kvistirnir í
spóninum eru þar sem gígarnir tveir eru
á eynni. Kertin eru einnig eftir Helgu.
EMOTION sturtuhaus
kringlóttur 10 cm verð kr. 3.990.-
SPRING sturtuhaus
kringlóttur 20 cm verð kr. 9.450.-
ESPRITE CARRÉ
ferkantaður 20 cm verð kr. 12.400.-
STURTUHAUSAR Í ÚRVALI
Gæði,þjónusta og ábyrgð- það er TENGI
SKINNY handsturtuhaus
verð kr. 1.990.-