Fréttablaðið - 28.05.2011, Síða 49
Leitum eftir reynsluboltum til að ganga
til liðs við öflugan hóp starfsmanna
Microsoft Dynamics AX - hugbúnaðarsérfræðingur
HugurAx leitar að reyndum forritara til starfa að sérsmíði lausna fyrir breiðan og öflugan hóp
viðskiptavina. Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg menntun er
æskileg. Reynsla tengd Dynamics AX eða öðrum viðskiptahugbúnaði er nauðsynleg.
Microsoft Dynamics AX - ráðgjafi
HugurAx leitar einnig að ráðgjafa til að starfa á viðskiptalausnasviði. Starfið felst í þarfa-
greiningu, ráðgjöf, innleiðingu og þjónustu á Microsoft Dynamics AX viðskiptahugbúnaði.
Fjöldi áhugaverðra verkefna eru fyrirliggjandi fyrir bæði ráðgjafa vörustjórnunar kerfa og
fjárhagskerfa. Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði, við skiptafræði eða sambæri-
leg menntun er æskileg. Reynsla tengd Microsoft Dynamics AX eða öðrum viðskiptahug-
búnaði er nauðsynleg.
Hjá HugAx leggjum við áherslu á frumkvæði, fagleg vinnubrögð, metnað til árangurs,
lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hópi.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní nk.
Umsóknir skal senda á: atvinna@hugurax.is (merkt VL)
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál
HugurAx er eitt af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði upplýsingatækni, við vinnum fyrir mörg
af stærstu fyrirtækjum landsins og sinnum jafnframt breiðum hópi smærri rekstraraðila. Hjá
okkur starfa um 100 starfsmenn.
HugurAx | Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík | www.hugurax.is
Forstjóri VÍS
Vátryggingafélag Íslands hf. | Ármúla 3 | 108 Reykjavík | Sími 560 5000 | vis.is
VÍS er öflugt þjónustufyrirtæki sem á djúpar rætur í íslensku samfélagi.
Markmið VÍS er að vera ávallt í fremstu röð tryggingafélaga á Íslandi.
Ánægja viðskiptavina og starfsfólks er lykilatriði í velgengni félagsins.
Hjá VÍS starfar framúrskarandi hópur einstaklinga sem saman myndar
sterka liðsheild. VÍS er vel rekið og fjárhagslega stöndugt vátrygginga-
félag með traust eignasafn.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar veita Agla Sigríður Björnsdóttir
(agla.bjornsdottir@capacent.is) og Ragnheiður Dagsdóttir
(ragnheidur.dagsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsóknarfrestur er til og með 13. júní nk. og skulu umsækjendur
sækja um á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is.
Verksvið:
Ábyrgð á allri daglegri starfsemi félagsins
Leiða mótun stefnu og framtíðarsýnar í samstarfi við stjórn
Efla enn frekar stöðu VÍS sem leiðandi félags á vátryggingamarkaði
Samskipti og upplýsingagjöf við stjórn, starfmenn, núverandi og nýja
viðskiptavini og eftirlitsaðila
Menntun og reynsla:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Farsæl reynsla af rekstri, fjármálum og stjórnun
Reynsla af stjórnun í fjármálafyrirtæki er kostur
Við leitum að einstaklingi sem hefur:
Framúrskarandi leiðtogahæfni
Stefnumótandi hugsun
Drifkraft og frumkvæði
Góð tengsl í íslensku atvinnulífi
Vátryggingafélag Íslands leitar að forstjóra til að leiða stærsta
tryggingafélag landsins. Viðkomandi þarf að vera árangurs-
miðaður, hafa frumkvæði og faglegan metnað og vera tilbúinn
til að vinna samkvæmt gildum félagsins sem eru frumkvæði,
umhyggja og áreiðanleiki.