Fréttablaðið - 28.05.2011, Page 51

Fréttablaðið - 28.05.2011, Page 51
LAUGARDAGUR 28. maí 2011 9 Megin ábyrgðarsvið sérfræðinganna lúta að umsjón, eftir liti og utanumhaldi með lo- sun gróðurhúsaloft tegunda í tengslum við viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (EU-ETS) og með útgáfu, handhöfn, framsal og ógildingu losunarheimilda. HÆFNISKRÖFUR Gerð er krafa um meistarapróf í umhverfisfræðum, raungreinum eða sambærilega menntun auk starfsreynslu. Jafnframt koma til greina aðilar með sambærilegar gráður í viðskiptafræði, hagfræði eða líkum greinum. Þekking á umhverfismálum er forsenda ráðningar. Einnig er gerð krafa um góða þekkingu á gagnagrunnum og/eða töflureik- num þar sem vinnan snýst um stór og mikil gagna- og talnasöfn. Þekking á ETS-kerfinu er æskileg. Auk framangreindra krafna fyrir störfin, verða eftirfarandi þættir um þekkingu, reynslu og hæfni hafðar til viðmiðunar við val á starfsmönnum: » Skipulagshæfileikar og markviss vinnubrögð » Þekking á opinberri stjórnsýslu » Kunnátta í íslensku og ensku og þekking á Norðurlandamáli » Hæfni í framsetningu upplýsinga á skrifuðu og töluðu máli » Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum Næsti yfirmaður sérfræðingsins er Kristján Geirsson deildarstjóri, sem veitir nánari up- plýsingar um störfin ásamt Sigrúnu Valgarðsdóttur starfsmannastjóra í síma 591 2000. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið. Æskilegt er að sérfræðingarnir geti hafið störf í byrjun september. Föst starfsaðstaða þeirra getur verið í Reykjavík, Hellissandi, Ísafirði, Akureyri, Mývatni, Egilsstöðum eða Vestmannaeyjum, allt eftir búsetu umsækjanda. Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur reynslutími sé sex mánuðir við ráðningu. NJÓTUM UMHVERFISINS OG STÖNDUM VÖRÐ UM ÞAÐ SAMAN LOFTSLAGSBREYTINGAR OG VIÐSKIPTAKERFI LOSUNARHEIMILDA Hjá Umhverfisstofnun eru laus til umsóknar tvö störf sérfræðinga á sviði loftslagsbreytinga og viðskiptakerfis með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda. Um er að ræða ný störf. SJÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM UMHVERFISSTOFNUN Á UMHVERFISSTOFNUN.IS UMSÓKNIR SKULU SENDAR TIL UMHVERFISSTOFNUNAR, SUÐURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK EÐA Á NETFANGIÐ USTUST.IS EIGI SÍÐAR EN 12. JÚNÍ 2011. Upplýsingar um störfin eru veitt á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Sækja skal um störfin á www.istak.is – undir „auglýst störf“ fyrir 12. júní næstkomandi. ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa um 500 manns, víðsvegar um landið sem og erlendis. ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 1970 og hefur annast ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór- iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Framkvæmdagleði í fyrirrúmi VÉLAVERKFRÆÐINGUR / VÉLTÆKNI- FRÆÐINGUR - GRÆNLAND ÍSTAK óskar eftir að ráða vélaverkfræðing/véltæknifræðing til starfa við virkjanaframkvæmdir í Ilulissat á Grænlandi. Í starfinu felst verk- efnastjórnun, gerð kostnaðaráætlana, samskipti við innlenda og erlenda birgja, tilboðsgerð og úrlausn tæknilegra verkefna. Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun á sviði vélaverkfræði eða véltæknifræði er skilyrði. • Gott vald á dönsku eða öðru norðurlandamáli er æskilegt. • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi. LAGERSTJÓRI - GRÆNLAND ÍSTAK óskar eftir að ráða lagerstjóra til starfa við virkjanaframkvæmdir í Ilulissat á Grænlandi. Í starfinu felst umsjón með birgðalager á framkvæmdasvæðinu, samskipti við birgja, móttaka og afgreiðsla á vörum auk viðhalds búnaðar sem geymdur er á lagersvæðinu. Menntunar- og hæfniskröfur: • Reynsla af lagerstjórnun er æskileg. • Gott vald á dönsku eða öðru norðurlandamáli. • Lyftararéttindi. • Góð tölvukunnátta. • Færni í samskiptum og þægilegt viðmót. TÆKJASTJÓRNENDUR ÍSTAK óskar eftir að ráða vana tækjastjórnendur til starfa við fram- kvæmdir hér á landi. Um er að ræða stjórnun á gröfum og jarðýtum. RAFMAGNSVERKFRÆÐINGUR / RAFMAGNS- TÆKNIFRÆÐINGUR - GRÆNLAND ÍSTAK óskar eftir að ráða rafmagnsverkfræðing/rafmagnstækni- fræðing til starfa við virkjanaframkvæmdir í Ilulissat á Grænlandi. Í starfinu felst umsjón með verkefnum sem snúa að rafbúnaði virkjunarinnar, samskipti við birgja og undirverktaka, stjórnun og sam- ræming samninga við undirverktaka og úrlausn tæknilegra verkefna. Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun á sviði rafmagnsverkfræði eða rafmagnstæknifræði er skilyrði. • Gott vald á dönsku eða öðru norðurlandamáli er æskilegt. • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi. MÆLINGAMAÐUR - BÚÐARHÁLSVIRKJUN ÍSTAK óskar eftir að ráða mælingamann til starfa. Um er að ræða landmælingar á framkvæmdasvæði á Búðarhálsi. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af sambærilegum störfum. MÖTUNEYTI - BÚÐARHÁLSVIRKJUN ÍSTAK óskar eftir að ráða starfsfólk í mötuneyti á framkvæmdasvæði fyrirtækisins við Búðarháls. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af sambærilegum störfum og geti hafið störf fljótlega. STEYPUSTÖÐVARSTJÓRI - BÚÐARHÁLS- VIRKJUN ÍSTAK óskar eftir að ráða steypustöðvarstjóra til starfa við virkjana- framkvæmdir á Búðarhálsi. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af sambærilegum störfum og geti hafið störf fljótlega.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.