Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.05.2011, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 28.05.2011, Qupperneq 52
Lífeindafræðingur Klínísk lífefnafræðistofa Holtasmára KLH / Hjartavernd leitar að lífeindafræðingi til afleysinga í 100% stöðu frá 8. ágúst 2011 í eitt ár. Hæfniskröfur eru B.Sc í lífeindafræði, reynsla af vinnu á rannsóknarstofu og færni í tölvunotkun og ensku. Kostur að hafa unnið á rannsóknarmiðuðum og stöðluðum vinnustað. Starfsumhverfi er uppbyggjandi og verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi. Möguleiki er að nýta hluta af vinnu þessa árs í mastersverkefni tengdu vinnunni. KLH er faggilt rannsóknarstofa, skv. SS-EN ISO 15189. KLH er faggilt rannsóknarstofa þar sem starfsemin er byggð upp á bæði rútínu- og vísindarannsóknum, jafnframt rannsóknar og þróunarvinnu. Hluti af starfseminni fellst í uppbyggingu og varðveislu lífsýnabanka. Upplýsingar veitir Alda M. Hauksdóttir, yfirlífeindafræðingur rannsóknarstofu KLH / Hjartavernd, í síma 535 1800 eða á alda@hjarta.is Umsóknum skal skila á netfangið atvinna@hjarta.is eða til Hjartaverndar merktar Rannsóknarstofa KLH / Hjartavernd fyrir 8. júní 2011. Hjartavernd, Holtasmára 1, 201 Kópavogi, sími 535 1800. Starfsmenn Hjartaverndar eru um 60 alls og samanstendur af fólki með ólíka menntun sem í sameiningu vinnur að því að framkvæma rannsóknir á sem vísindalegastan og áreiðanlegastan hátt. Í Hjartavernd starfa m.a. læknar, lífeindafræðingar, líffræðingar, tölfræðingar, verkfræðingar, geislafræðingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og úr ýmsum öðrum starfstéttum. Starfsmenn Hjartaverndar vinna að ýmsum verkefnum, eins og við Öldrunarrannsókn Hjartaverndar, við áhættumat, á rannsóknarstofu Hjartaverndar, við myndgreiningardeild, á skrifstofu, við fræðslumál, við úrvinnslu ganga, gæðastjórnun, fjármálastjórnun og ýmis samstarfsverkefni sem Hjartavernd tekur þátt. HJARTAVERND » » » » » » » » » » » Topplagnir ehf. óskar eftir að ráða pípulagningamenn. Þurfa að vara stundvísir og áreiðanlegir, og geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir sendist á topplagnir@internet.is Upplýsingar gefur Brynjar í síma 698-8412 RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Ráðningarþjónusta HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um starfið þar. Starfssvið Hæfniskröfur · Þátttaka í almennum störfum · Ábyrgð á þjónustu og gæðum á sinni vakt · Skipulags- og leiðtogahæfileikar · Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum · Dugnaður og metnaður í starfi Veitingastjóri Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Veitingastaðakeðja óskar eftir að ráða ábyrgan og metnaðarfullan einstakling í starf veitingastjóra kvöld- og helgarvaktar. Unnið er á tvískiptum vöktum 2 daga aðra vikuna og 5 daga hina. Um 72% starf er að ræða. SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Skrifstofustjóri Hæfniskröfur: • Embættispróf eða meistaragráða í lögfræði. • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu. • Þekking og reynsla á sviði stjórnsýslu sveitarfélaga æskileg. • Þekking og reynsla af stjórnun, stefnumótun og mannaforráðum æskileg. • Leiðtogahæfileikar, skipulagshæfni og frumkvæði. • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum. • Hæfni til að koma fram og tjá sig í ræðu og riti á íslensku, ensku og einu norrænu tungumáli. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkur- borgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endur- spegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Um laun og starfskjör skrifstofustjóra fer samkvæmt reglum um réttindi og skyldur stjórnenda hjá Reykja- víkurborg og ákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Upplýsingar veita: Katrín S. Óladóttir katrin@hagvangur.is Rannveig J. Haraldsdóttir rannveig@hagvangur.is Regína Ásvaldsdóttir, skrifstofustjóri borgarstjóra regina.asvaldsdottir@reykjavik.is Umsóknarfrestur er til og með 12. júní nk. Reykjavíkurborg auglýsir stöðu skrifstofustjóra borgarstjórnar lausa til umsóknar. Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum leiðtoga til að stýra skrifstofu borgarstjórnar. Í starfinu felast mikil samskipti við kjörna fulltrúa og æðstu stjórnendur Reykjavíkurborgar. Næsti yfirmaður skrifstofustjóra borgarstjórnar er borgarstjórinn í Reykjavík. Metnaðarfullur og áhugasamur leiðtogi óskast Helstu verkefni skrifstofunnar eru: • Faglegur undirbúningur, umsjón með fundum borgarstjórnar og borgarráðs og eftirfylgni vegna afgreiðslu mála. • Lögfræðileg ráðgjöf, upplýsingagjöf og þjónusta við borgarstjórn, borgarráð, borgarfulltrúa og fagráð, s.s. um fundarsköp, stjórnkerfi Reykjavíkurborgar og ný lög, reglugerðir og stjórnvaldsfyrirmæli. • Frumkvæði varðandi þróun og umbætur í stjórnsýslu og verkefni á sviði íbúalýðræðis í umboði borgarráðs. • Umsjón með framkvæmd almennra kosninga í Reykjavík. • Umsjón með umsögnum um lagafrumvörp. • Umsagnir um rekstrarleyfi veitingastaða. • Setning gæðaviðmiða og verklagsreglna um undirbúning og framsetningu mála fyrir borgarráð og borgarstjórn. Brekkubæjarskóli á Akranesi Laus eru til umsóknar eftirtalin störf við skólann næsta skólaár, 2011-12: Grunnskólakennarastöður: List- og verkgreinakennsla, 75% staða Sérkennsla, 100% staða Dönskukennsla, 75% staða, afleysing til eins árs. Umsjónarkennsla í 9. bekk, 85% staða, afleysing til áramóta. Kennslugreinar, náttúrufræði, íslenska og stærðfræði Umsjónarkennsla á yngsta stigi, 80% staða, afleysing til eins árs. Einnig er laust til umsóknar þroskaþjálfastarf við sérdeild, 100% staða, afleysing til eins árs. Ráðningartíminn er frá 1. ágúst n.k. Launakjör eru skv. kjarasamningum launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsækjendur um kennslustörf skulu hafa leyfisbréf grunnskólakennara. Umsóknarfrestur er til 10. júní n.k. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist skólastjóra Brekkubæjarskóla v. Vesturgötu, 300 Akranesi, arnbjorg.stefansdottir@akranes.is Skólastjóri veitir nánari upplýsingar í síma 433 1300. Brekkubæjarskóli er heildstæður grunnskóli með um 430 nemendum. Lögð er áhersla á gildin „Góður og fróður“.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.