Fréttablaðið - 28.05.2011, Page 64
28. maí 2011 LAUGARDAGUR36
„Þetta er náttúrulega Kárahnjúka-
stykki. Fullþroskað karldýr“.
„Vel gert hjá Howard. Þrjú víti í röð
og kennir þeim að kaupa einhverjar
aðrar kartöflur heldur en þessar.“
„Kemur ekki minn maður, penna-
vinur til margra ára, setur niður þrist
og honum finnst þetta ekki einu
sinni fyndið. Hann bara setur þetta
niður, segir namminamm og takk
fyrir túkall.“
„Rasheed, það þarf einhver að setja
kælipoka ofan í stuttbuxurnar hans
til að róa hann. Það að jafnaði róar
menn og dreifir huganum.“
„Fisher, minn maður, maður. Hví-
líkur gangster maður. Þvílíkt ofur-
menni. Við erum að tala um starfs-
mann mánaðarins, maður. Hann
bara smellir upp, snarörvhentur
maður, og setur niður þrist.“
„Þetta er maður fullhlaðinn af
tröllamjöli.“
„Þetta er náttúrulega alvöru keng-
úra. Algjörlega toppmaður.“
„Allir að hitta og þá eru þeir bara
eins og góð kjötsúpa; full af kryddi
og áhugaverðum bitum.“
„Þetta er að fara alla leið. Alla leið
á Bíldudal.“
„Lakers-liðið, það er bara eins og
þeir hafi farið í vitlaus undirföt. Þeir
geta ekki neitt. Það þarf að hringja í
þessa menn.“
„Það er engin vitleysa í þessu. Eng-
inn ísbjörn. Og enginn tollur.“
„Þessi troðsla hjá Kevin Durant
er alveg fáránleg. Það er í raun
móðgun við þessa troðslu að reyna
að lýsa henni.“
„Gasol ákveður að setjast inn í teig.
Jafnan ekki góð ákvörðun.“
„Hann er eins og góð afmælisterta –
mættur á svæðið“.
„Þessi maður getur ekki verið
heimatilbúinn. Það þarf eitthvað
undraduft í svona menn.“
„Áhugavert hvað hann er örv-
hentur.“
„Einhverra hluta vegna stendur
hann þarna úti á miðjum velli eins
og hann sé að bíða eftir strætis-
vagni.“
„Þetta er náttúrulega bara vínar-
brauð.“
„Stojakovic stígur út af. Það má ekki
í þessari íþrótt jafnvel þótt menn
séu með huggulegan skeggvöxt.“
„Það eru forréttindi að hafa svona
snjalla menn á bekknum, hugaða og
kurteisa.“
„Nú fer hann bara upp af fullum
krafti og kemur með stóriðjutroð.
Ekkert majónes, bara fullur styrkur
og fullt af kryddi.“
„Tapaður knöttur. Þetta er nátt-
úrulega lögreglumál. Spurning um
að fá lögreglukórinn í hálfleik til að
taka eitt lag yfir þessu.“
„Þetta er ekki úr Kolaportinu –
þetta er alveg rándýrt.“
Þ
að er hreinlega vegna
barnslegrar ástríðu
fyrir leiknum sem
lýsingarnar grautast
út með þessum hætti.
En þetta eru engin
vísindi. Ég er bara að lýsa körfu-
bolta,“ segir Svali Björgvinsson,
fyrrum landsliðsmaður í körfu-
knattleik, en lýsingar hans á
körfuboltaleikjum á Stöð 2 hafa
notið vinsælda síðustu ár og hlotið
gríðarlega athygli. Þykir mörgum
Svali öðrum fremri í að koma til
skila spennunni sem fylgir leikn-
um með óvenjulegu og kjarnyrtu
orðfæri og jafnvel skáldlegum
orðatiltækjum.
Svali bætir við að vissulega
undirbúi hann sig vel fyrir beinu
lýsingarnar og sá undirbúning-
ur hafi í raun hafist þegar hann
hóf að fylgjast með körfuknatt-
leik fyrir 36 árum. „Ég hef líka
reynt að átta mig á því hvað mér
líkar og mislíkar í fari annarra
lýsenda. Guðni Kolbeinsson, þýð-
andi og snillingur, var að mínu
mati meistari lýsinganna. Guðni
spilaði körfubolta með ÍR á sínum
tíma og bar búninginn vel, og svo
lýsti hann nokkrum leikjum þegar
RÚV sýndi körfuboltaleiki í eld-
gamla daga. Það var þá sem ég fór
að átta mig á því að hægt væri að
skreyta lýsingarnar með skemmti-
legri orðanotkun,“ segir Svali og
nefnir sem dæmi að einn frasi frá
Guðna sé í miklu uppáhaldi hjá
sér; að ákveðin skot séu „býsna
víðsfjarri“.
Leiðist þýddir hækjufrasar
Svali telur mikilvægt að reyna
eftir fremsta megni að tala hreint
og kjarnyrt íslenskt mál í sínum
lýsingum. Til að mynda leiðist
honum hækjufrasar sem þýddir
eru úr ensku á borð við „að stíga
upp“, eða „step up“ á ensku. „Það
er hægt að koma þessari hugsun
eða fyrirbæri frá sér með ein-
földum hætti á íslensku. Það þarf
ekki að klæmast með orðskrípi til
þess.“
Hann segir einnig mikilvægt
að lýsandinn sjálfur hafi gaman
af því sem hann gerir, enda sé
það lykillinn að árangri í flestu
sem mannskepnan tekur sér fyrir
hendur. Hluti af því er að hafa
ákveðið þema í hverjum leik sem
hann lýsir. „Þessi þemu koma oft
þegar ég er á leiðinni að lýsa og
er að hugsa um daginn sem er að
líða. Oft eru þetta hvorki miklar
né djúpar greiningar og ég reyni
að koma þeim frá mér án þess að
það sé of skýrt. Raunar þarf senni-
lega áhugasaman bókmenntafræð-
ing með mikið hugmyndaflug til
að átta sig á þeim tengingum sem
þar koma fram. Ég vil engum svo
illt að ég hvetji fólk til að reyna að
rýna í þær með vitrænum hætti
um miðja nótt. En þemað gerir
lýsinguna ögrandi fyrir mig,“
segir Svali og nefnir Lögreglukór-
inn, yfirlögregluþjóninn Geir Jón
Þórisson, kattasmölun og Gunn-
ars-majónes sem dæmi um þemu
sem hann hefur bryddað upp á í
lýsingum sínum.
Aðspurður segir Svali marga
hafa haft samband við sig og lýst
yfir ánægju með lýsingarnar og
slíkt gleðji hans litla hjarta.
Margt óhollara en körfubolti
Síðustu árin hefur Svali lýst jafnt
íslenskum sem erlendum körfu-
knattleiksleikjum í sjónvarpi.
Hann segist finna fyrir auknum
áhuga á íslenska boltanum síðustu
ár, en auk þess sé þéttur hópur
sem ávallt fylgist með bandarísku
NBA-deildinni. „Fólk miðar oft
við þann tíma þegar Michael Jor-
dan var upp á sitt besta, sem var
ákveðin hæð. En svo rísa önnur
stórstirni upp sem trekkja að, eins
og Lebron James. Þetta er mjög
skemmtilegt sjónvarpsefni og frá-
bær íþrótt. Hver og einn verður að
hafa sína fíkn og margt er óhollara
en þessi fíkn.“
Lýsandinn spáir téðum Lebron
James og félögum hans í Miami
Heat sigri í NBA-deildinni í ár. „Við
í ferða- og menningarfélaginu Ýsa
í orlí, sem erum um tuttugu tals-
ins, spáðum um úrslitin. Ég tippaði
á Miami og geri enn. En ég vona
samt að Dirk Nowitzki og Dallas
Mavericks vinni þetta. Það væri
gott fyrir boltann, því hann er ótrú-
legur íþróttamaður,“ segir Svali.
Stóriðjutroð og ekkert majónes
Síðustu árin hefur Svali Björgvinsson hlotið mikla athygli fyrir frumlegar og bráðskemmtilegar lýsingar á körfuknattleiksleikjum í
sjónvarpi. Kjartan Guðmundsson og Stígur Helgason ræddu við Svala og rifjuðu upp eftirminnileg ummæli hans úr lýsingum.
„Troð eru augljóslega þrívíddarfyrirbæri,“ segir Svali þegar hann er beðinn
um að útskýra sum orðanna sem hann notar gjarnan yfir misvel heppnuð
tilþrif körfuboltamanna. „Þau skiptast í kraft, viðhorf/skilaboð og fagurfræði.
Þetta reyni ég að skilgreina á kvarða,“ útskýrir Svali. Hér á eftir fara kvarð-
arnir þrír, ásamt útskýringum Svala þar sem þær eiga við.
KRAFTUR:
1. Nudd/klapp
2. Majónestroð – „Kom þegar Gunnars-majones var þema dagsins og lýsir
vel slepjulegu troði sem er engum til sóma. Hvorki viðkomandi leikmanni,
né fjölskyldu hans. En viðkomandi leikmaður telur sig vera að gera eitthvað
uppbyggilegt, en safnar bara fitu til lengri tíma.“
3. Iðnaðartroð – „Troðið meira af skyldurækni en af ástríðu.
Leikmaður veit að fólk borgar sig á völlinn til að sjá
troð, en það vantar bæði kraft og viðhorf í allt fas
viðkomandi. Viðkomandi uppfyllir troðskyldur sínar,
en ekkert meira.“
4. Stóriðjutroð
5. Kárahnjúkatroð
6. Risaeðlutroð
7. Fellibylur
„Svo eru mörg fleiri orð sem hafa verið notuð,
til dæmis eru Górillutroð og ruggustóllinn
mjög lýsandi. Þetta skýrir sig allt sjálft, en með
þessu er verið að fanga kraftinn í troðinu.“
VIÐHORF/SKILABOÐ:
1. Inniskórinn – „Í raun ekkert viðhorf, maður í inn-
skóm á ekki mikið að rífa kjaft.“
2. Umhverfisvænt troð – „Ekki auka orka en samt alvöru.“
3. Ég-er-farinn troð – „Dæmigert viðhorf hjá barni sem ætlar að koma ein-
hverju til skila, en fer svo aldrei neitt.“
4a. Er-enginn-heima troð – „Þetta var þemað þegar virtur þingmaður sem
kaus að tilkynna að hann yrði ekki heima á afmælisdaginn sinn.“
4b. Á-einu-augabragði troð – „Lýsir því ef einhver veit ekki alveg hvað
hann er að gera en reynir að böðlast í gegnum aðstæður.“
4c. Sauðnautið – „Villt troð og sjaldgæft, en ekki endilega fallegt.“
5. Gillzeneggertroð – „Þegar leikmenn með mikla þörf fyrir athygli eru að
reyna mikið en tekst ekki alveg. En ég ber samt virðingu fyrir því að við-
komandi sé að reyna. Ekki endilega aumkunarvert, en samt á mörkunum.“
6. Flautuketill/skinkutroð.
7. Lögreglukórinn – „Þegar öllu er tjaldað til, ekkert sparað.“
8. Mjölnir – „Gamalt íslenskt orð yfir hamar Þórs.“
FAGURFRÆÐI/LISTFENGI
1. Snúður eða vínarbrauð – „Vísar til upprunans.“
2. Þarf-eitthvað-að-ræða-þetta? Troð.
3. Krydd
4. Kameljónið – „Einhver sem gerir eitthvað sem ég á ekki von á, aðlagast
umhverfinu með undraverðum hætti.“
5. Hámenningartroð – „Fagurfræðilega fullkomið og ætti að vera lokaatriði
á Listahátíð.“
TROÐKVARÐARNIR ÞRÍR
ORÐATILTÆKI Svali Björgvinsson segir Guðna Kolbeinsson þýðanda hafa verið
mikinn áhrifavald á íþróttalýsingar sínar. Frasinn „býsna víðsfjarri“ eigi til að mynda
rætur sínar að rekja til Guðna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
■ Á SVALAVAKTINNI – Eftirminnilegar lýsingar frá Svala Björgvinssyni hin síðustu ár