Fréttablaðið - 28.05.2011, Qupperneq 72
28. maí 2011 LAUGARDAGUR44
Hvað ertu gamall? Ég er 22 ára.
Í hvaða grunnskóla varstu? Set-
bergsskóla.
Spilarðu á hljóðfæri? Já, ég spila
á trommur en kann líka á gítar
og píanó.
Hvað langaði þig að verða þegar
þú yrðir stór? Þegar ég var lítill
sagðist ég alltaf ætla að verða
bankastjóri. Í dag hef ég samt
engan áhuga á því!
Er gaman að vera frægur? Það
er allavega gaman að vera ég.
Hver er uppáhaldstónlistar-
maðurinn þinn? Úff, ég veit
ekki. Ég ætla að segja Kanye
West.
Hvert er uppáhaldslagið þitt? Ég
á mér svo sem ekkert uppáhalds
lag, en lag sem ég hlusta mikið á
þessa dagana heitir Má ég koma
heim og er eftir Blaz Roca.
Semurðu öll lögin þin sjálfur?
Ekki alveg öll nei, en langflest.
Hefurðu lært söng? Nei, ég get
ekki sagt það, en ég hef vissu-
lega fengið tilsögn.
Í hvaða stjörnumerki ertu? Ég
er Vog.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? Lasanja finnst mér rosa-
lega gott.
Hver er uppáhaldsliturinn
þinn? Þó svo að tæknilega sé
hvorugur þeirra litur, þá eru
mínir uppáhalds „litir“ svart-
ur og hvítur, FH-litirnir. En ef
ég yrði að nefna alvöru lit þá er
yrði það blár, því varabúningur
FH er blár.
Hvert er mesta prakkara-
strik sem þú hefur gert? Ég
var rosalega lítið í þeim og er
enn mjög lítið í þeim. Ætli mitt
versta prakkarastrik hafi samt
ekki verið þegar ég og vinur
minn á leikskóla tókum okkur
til og fórum að henda steinum í
bíla. Það var ekki sérlega snið-
ugt.
krakkar@frettabladid.is
44
Þó svo að
tæknilega sé
hvorugur þeirra litur,
þá eru mínir uppá-
halds „litir“ svartur
og hvítur, FH litirnir.
En ef ég yrði að nefna
alvöru lit þá er yrði
það blár, því varabún-
ingur FH er blár.
HITT OG ÞETTAÞú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Kennari: Hvar er heimaverk-
efnið þitt?
Nemandinn: Ég tapaði því í
slag við krakka sem sagði að
þú værir ekki besti kennari
skólans.
Kennari: Ef 1 + 1 = 2 og 2 + 2
= 4, hvað er þá 4 + 4?
Nemandinn: Þetta er ekki
sanngjarnt. Þú svarar auð-
veldu spurningunum og lætur
okkur svara þeirri erfiðu.
Hvað er það versta sem þú
finnur í skólamötuneyti?
Matinn.
Af hverju gengur þér ekki vel
í sögu?
Af því kennarinn er alltaf að
spyrja mig að einhverju sem
gerðist áður en ég fæddist.
Hvernig ljós notaði Nói um
borð í örkinni?
Flóðljós.
WWW.BUILDYOURWILDSELF.COM er skemmtileg
síða þar sem krakkar geta búið til eigin furðuveru. Þau geta
valið milli búks, andlitsdrátta, hárs og útlima.
Fyrir 1
1 rúnstykki að eigin vali
1 msk. sveppaostur
1 sneið spægipylsa
4-5 maísbaunir
8-10 strá af vorlauk
2 litlir bitar af gulrót,
þunnt skornir
Aðferð: Skerið rúnstykkið í
tvennt og smyrjið það með
sveppaosti. Setjið spægipyls-
una á milli og raðið vor-
lauknum ofan á pyls-
una og
látið
hann skaga út fyrir brauðið
báðum megin þannig að
laukurinn komi út eins og
köngulóarlappir. Lokið rún-
stykkinu og skreytið loks
andlit köngulóarinnar með
því að raða maísbaununum í
röð fyrir „tennur“ í miðju rún-
stykkisins og notið gulrótar-
bitana fyrir augu. Gott er að
stinga maísbaununum sem
og gulrótarbitunm aðeins inn
í brauðið þannig að það
haldist betur.
Köngulóarsamloka
VILDI VERÐA BANKASTJÓRI
Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór ætlaði að verða bankastjóri þegar hann yrði stór.
Hann er hættur við það og semur lög í staðinn. Uppáhalds maturinn hans er las-
anja og hann gerir sjaldan prakkarastrik.
Friðrik Dór tónlistarmaður er lítill prakkari. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
AFMÆLIS-
VEISLA Stöð 2
heldur heljarinnar
veislu í Fjölskyldu-
og húsdýragarðin-
um í dag í tilefni af
25 ára afmæli sínu.
EKKI SNERTA JÖRÐINA
Í Þjóðminjasafni Íslands
stendur yfir sýningin Ekki
snerta jörðina en þar má sjá
hvernig tíu ára börn leika
sér.
VOR-
SÝNING
FJÖLNIS
Fimleikadeild Fjölnis
stendur fyrir vorsýn-
ingu í Íþróttamið-
stöðinni í Dal-
húsum í Grafarvogi
á morgun klukkan 11
og 13.
www.listahatid.is
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA!