Fréttablaðið - 28.05.2011, Qupperneq 74
28. maí 2011 LAUGARDAGUR46
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. ómskoðun, 6. gat, 8. forsögn,
9. þunnur vökvi, 11. fyrir hönd, 12.
dótarí, 14. viðburður, 16. frá, 17.
skammstöfun, 18. magi, 20. samtök,
21. sál.
LÓÐRÉTT
1. líkami, 3. sjúkdómur, 4. skynja, 5.
lík, 7. olíuvaxefni, 10. fálm, 13. því
næst, 15. útungun, 16. upphrópun,
19. til dæmis.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ómun, 6. op, 8. spá, 9.
lap, 11. pr, 12. drasl, 14. atvik, 16. af,
17. ofl, 18. hít, 20. aa, 21. andi.
LÓÐRÉTT: 1. hold, 3. ms, 4. upplifa,
5. nár, 7. parafín, 10. pat, 13. svo, 15.
klak, 16. aha, 19. td.
Það fer óneitanlega pínulítið í taugarnar á mér þegar Íslendingar dæsa og stynja
af aðdáun á útlensku náttúrufari. „Sjáðu
hvað vorar snemma!“ „Sjáðu kirsuberja-
trén í blóma!“ „Finndu hvað það er orðið
heitt strax í maí!“ Mér finnst það satt best
að segja ekkert merkileg uppgötvun að
það sé hlýrra í veðri sunnar á hnettinum.
Reyndar vil ég ganga lengra og segja að
íslenskt vor sé mun undursamlegra fyrir-
bæri. Það er miklu stórfenglegri vitnis-
burður um sigur lífsins á dauðanum, sigur
hins mjúka á hinu harða, þegar brothætt,
íslensk grasnál byrjar að stingast upp úr
miskunnarlausum freranum heldur en
þegar hnausþykkur frumskógargróður
dafnar í loftslagi þar sem varla er hægt
að reka kústskaft í jörðu án þess að það
laufgist. Lítill og aumur geldingahnapp-
ur vinnur miklu meira afrek með því að
skjóta rótum í hrjóstruga, íslenska urð
heldur en suðræn og litfögur lilja
vinnur með því að blómstra
við þau skilyrði sem jurta-
gróðri eru einmitt hve
hagfelldust.
ÞAÐ sama gildir um hús.
Reykjavík er vissulega
ósköp fátækleg og ómerki-
leg sé hún borin saman
við miðalda byggingar
evrópskra menningarborga. En mér finnst
það eiginlega líka segja sig sjálft að vald-
hafar hafi getað bruðlað og sóað miklu
meira í íburðarmikil glæsihýsi þar sem
milljónir manna í gjöfulu og frjósömu
landi voru arðrændar og kúgaðar öldum
saman heldur en hér á mörkum hins byggi-
lega heims þar sem nokkur þúsund sálir
hímdu við hungurmörk kynslóð fram af
kynslóð og eina nýtilega byggingarefnið
var jörðin undir fótunum á þeim.
VIÐ ættum ekki að dást að konungshöll-
unum og dómkirkjunum sem reistar voru
úr blóði og svita sveltandi alþýðu undir
rassgatið á fólki sem aldrei þurfti sjálft að
dýfa hendi í kalt vatn fyrir munaðinn og
hóglífið sem það naut. Ég efast um að það
hafi verið ömurlegra hlutskipti að veslast
upp úr hungri og vosbúð í íslenskum afdal
heldur en í skítugri, erlendri stórborg á
tröppum gullbryddaðra glæsihalla, ég tala
nú ekki um meintra guðshúsa. Í Reykjavík
er ekki mannslíf á bak við hvern múrstein,
ekki tár og þjáning nafnlauss forföður á
bak við hverja ufsagrýlu eða lágmynd á
húsgafli. Reykjavík geymir fáar byggingar
reistar á valdníðslunni sem kúguð alþýð-
an sætti öld fram af öld. Glæsihýsin sem
kóngurinn byggði úr blóði og svita, tárum
og þjáningu forfeðra okkar eru allar í
Kaupmannahöfn.
Vor og hús
Og í staðinn fyrir að
skipuleggja eitt
einangrunarskýli,
hafðu þau tvö.
Værirðu til í að hætta
þessu banki?!
Ég er að reyna að
hlusta á smá tónlist!
Sko! Það tók
þig ekki nema
nokkrar mín-
útur að hjálpa
mér með
diskana.
Nokkrar
mínútur
sem ég hefði
getað notað
í menntun
mína.
Á mínum aldri hætta heilafrumurnar
að starfa og boð til heilans verða slöpp
þegar flæði upplýsinga er stöðvað með
þessum hætti.
Þannig að
nú er ég
ábyrg fyrir
einkunnum
þínum.
Bara
þeim
slæmu.
Má ég taka Lóu með í
„sýndu og segðu“-tímann.
Kennarinn sagði að það
væri allt í lagi.
Öh....
Gerðu
það?
Gerðu
það!
Jæja,
allt í lagi.
Þú hlýtur að vera mjög stolt
af litlu systur þinni fyrst þú
vilt taka hana með.
Já...
...og ég er líka orðin þreytt
á því að Agnes fái alla
athyglina út af heimsku
músinni hennar.
Íslandspóstur hf. Stórhöfða 29 110 Reykjavík Sími 580 1000 www.postur.is
Íslandspóstur leitar að forritara
Starfið felst í forritun, hönnun og viðhaldi á nýjum og eldri
sérhönnuðum tölvukerfum í SAP og tengingar við önnur
kerfi í samvinnu við aðra starfsmenn.
Hæfniskröfur:
• SAP ABAP forritunarkunnátta
• Góð þekking á SQL fyrirspurnarmálinu og
reynsla í forritun
• Þekking á HTML, WML og vefforitun í .Net
nýtist einnig
Leitað er að lausnamiðuðum sérfræðingi með metnað til
árangurs í starfi. Áhersla er lögð á frumkvæði, sjálfstæði í
vinnubrögðum, samstarfsvilja og hæfni til að vinna í hópi.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní nk. Gengið verður frá
ráðningu fljótlega. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem
trúnaðarmál.
Ath. fyrirspurnum verður eingöngu svarað hjá STRÁ.
Guðný Harðardóttir veitir nánari upplýsingar, en viðtalstími er
frá kl.13–15. Vinsamlega sendið umsóknir/starfsferilskrár ásamt
meðfylgjandi gögnum til stra@stra.is.
FRÁBÆRT
SAP STARF
Íslandspóstur er
• Framsækið og kraftmikið fyrirtæki
• Áreiðanlegt fyrirtæki á sviði dreifingar-, samskipta- og
flutningalausna
• Fyrirtæki með öfluga og uppbyggilega starfsmannastefnu
www.stra.is
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt. Nánari
upplýsingar á visir.is/dreifing
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt
á Vísi eða fengið sendan daglegan
tölvupóst með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU