Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 76
28. maí 2011 LAUGARDAGUR48 48 menning@frettabladid.is BRAGI ÁSGEIRSSON Sýning með nýjum verkum og gömlum verður opnuð í Gallerí Fold í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DRENGIR SYNGJA Drengjakór Reykjavíkur heldur vortónleika sína í Hallgrímskirkju í dag. Á dagskrá verða meðal annars verk eftir Mozart og Pál Ísólfsson. Einnig verður flutt djassmessa eftir Bob Chillcot. Einsöngvari er Níels Bjarnason, meðleikari á orgel og píanó er Lenka Mátéová og Friðrik S. Kristinsson stjórnar. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og fást miðar við innganginn. Störf fagstjóra í fræðigreinum laus til umsóknar Listaháskólinn auglýsir eftir umsóknum um störf fagstjóra fræðigreina í tónlist, myndlist og hönnun/arkitektúr. Fagstjórar fræðigreina skipuleggja og fara með umsjón fræðikennslu innan viðkomandi deildar og bera ábyrgð ásamt deildarforseta á faglegri þróun námsins. Störfin fela í sér kennslu, stjórnun náms og stefnumótun, auk rannsókna. Fagstjórar fræðigreina verða metnir til starfstitils lektors. Hæfniskröfur: Meistarapróf. Kennslureynsla í háskóla í fræðigreinum lista, miðlunar, og/eða menningar. Þekking á háskólastarfi og kunnátta í þróun náms á efstu menntastigum. Reynsla af rannsóknum er æskileg. Áhersla er lögð á að fagstjórinn búi yfir þekkingu og reynslu af þverfaglegu starfi, og geti leitt verkefni og samstarf sem fer fram á milli námsbrauta og deilda skólans. Við mat á umsóknum verður jafnframt litið til hæfni umsækjanda til frumkvæðis og sjálfstæðis í starfi, og hvernig ætla megi að hann falli inn í samstarfshópinn sem fyrir er á sviðinu. Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um námsferil og störf umsækjanda, rannsóknir og ritsmíðar. Umsækjandi skal gera skýra grein fyrir kennslustörfum sínum og jafnframt veita upplýsingar um önnur störf sem hann hefur gegnt, þ.m.t. félags- og stjórnunarstörf. Þá er óskað eftir að umsækjandi leggi fram greinargerð um hugmyndir sínar um uppbyggingu fræðimenntunar innan skólans. Afrit af prófskírteinum og öðrum staðfestingum varðandi menntun skulu fylgja umsókn. Rektor ræður í störfin í samráði við deildarforseta og stjórn að undangengnu mati dómnefndar sem dæmir um hæfi umsækjenda í samræmi við sérstakar reglur um veitingu akademískra starfa. Reglurnar eru birtar á heimasíðu skólans. Umsóknir skulu merktar viðkomandi starfi og sendar rektor, Hjálmari H. Ragnarssyni, Listaháskóla Íslands, Skipholti 1, 105 Reykjavík, eigi síðar en 20. júní næstkomandi. Laugardagur til lista Í dag laugardag, milli kl. 12.00 og 17.00, verður í höfuðstöðvum Arion banka Borgartúni 19 sýnd upptaka af fyrirlestri Haralds Sigurðssonar prófessors, eldfjallafræðings og forstöðumanns Eldfjallasafnsins - viðskipti og vísindi. Einnig eru til sýnis verk í eigu Eldfjallasafnsins í Stykkishólmi ásamt eldfjallaverki eftir Lawrence Wiener. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI FRÓÐLEIKUR Meiri Vísir. Bragi Ásgeirsson mynd- listarmaður er áttræður í dag. Hann málar á hverjum degi enda vinna listamenn að sínum hlutum fram í and látið segir hann. Í dag opnar sýning með verkum hans í Gallerí Fold. Verk Braga Ásgeirssonar eru þegar komin upp á veggi Gallerí Foldar þegar blaðamaður mætir til fundar við listamanninn. Bragi verður átt- ræður í dag og af því tilefni er efnt til sýningar á verkum hans í gall- eríinu. Þar gefur að líta ný verk en einnig fáein eldri, málverk, teikn- ingar, grafík. Bragi vinnur að list sinni á hverjum degi. „Það er ekk- ert til sem heitir að setjast í helg- an stein hjá okkur listamönnum. Við vinnum að okkar hlutum fram í andlátið. Picasso var að mála myndir kvöldið sem hann dó. Hann gerði þá þrjár myndir á dag, sem er nokkuð gott. En var ekkert í saman- burði við þegar hann var upp á sitt besta,“ segir Bragi og brosir. Bragi viðurkennir að hann hafi sömu- leiðis verið afkastameiri á sínum yngri árum. „Ég er ekki eins gal- vaskur og þegar ég var tuttugu ára, maður verður að vera í góðu líkam- legu formi til að mála,“ segir hann. Afrakstur undanfarinna ára er þó nokkuð mikill og kom Braga sjálf- um á óvart þegar farið var að taka saman verk á sýninguna. „Ég geng til vinnu minnar á hverjum degi en vil ekki ofreyna mig. Ég var eiginlega hissa að sjá hvað þetta er mikið,“ segir Bragi sem er ánægð- ur með sýninguna. „Hún hefur tek- ist vel, þetta er besta sýningin mín hér í galleríinu og sú sem er best sett upp,“ segir Bragi. Ferill Braga er orðinn langur, hann nam myndlist á fimmta og sjötta áratugnum og síðan þá hefur hann haldið fjölda sýninga hér á landi og utan landsteinanna. Hann var listrýnir við Morgunblaðið um áratugaskeið og kennari við Mynd- lista- og handíðaskólann sömuleiðis um áratugaskeið. „Ég fylgist ágæt- lega með því sem er að gerast hér, fer nokkuð reglulega á sýningar þó ekki eins mikið og áður fyrr,“ segir hann. Sýning Braga í Gallerí Fold á Rauðarárstíg opnar í dag og stend- ur í tvær vikur. sigridur@frettabladid.is Ekkert til sem heitir að setjast í helgan stein MYNDLISTARMAÐUR, KENNARI, LISTRÝNIR Bragi Ásgeirsson myndlistarmaður, myndlistarkennari, listrýnir og greinahöf- undur er fæddur 28. maí 1931 í Reykjavík. Bragi stundaði nám í Handíða- og myndlistarskólanum, Fagurlistaskólanum í Kaupmannahöfn, Fagurlista- skólanum í Ósló, Listiðnaðarskólanum í sömu borg og Fagurlistaskólanum í München 1958-60. Hann dvaldi í Róm og Flórens við nám. Bragi hélt fyrstu einkasýningu sína í Listamannaskálanum við Kirkjustræti vorið 1955. Þar sýndi hann einnig 1960 og 1966. Frá þeim tíma hefur hann haldið fjölmargar einkasýningar hérlendis og erlendis og tekið þátt í samsýningum sömuleiðis. Bragi Ásgeirsson var kennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árin 1956-96 með örfáum hléum. Hann var brautryðjandi í grafíkkennslu á Íslandi. Bragi var listrýnir Morgunblaðsins frá 1966 ásamt því að rita ótal greinar um sjónlistir í blaðið en skrifaði einnig fjölda greina í erlend tímarit. Verk Braga eru í eigu allra helstu listasafna landsins og nokkurra erlendra, einnig fjölmargra stofnana og fyrirtækja, svo og einkaaðila og einkasafna víða um heim. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir starfa sinn, fyrir framlag sitt til íslenskrar menningar hlaut hann fálkaorðuna 17. júní 2001.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.