Fréttablaðið - 28.05.2011, Side 84

Fréttablaðið - 28.05.2011, Side 84
28. maí 2011 LAUGARDAGUR56 Ákveðnu tímabili er lokið í bandarískri sjónvarps- sögu með brotthvarfi Opruh Winfrey af skjánum. Saga eins vinsælasta spjall- þáttastjórnanda í heimi er í líkingu við Öskubusku- ævintýri en hún snýr sér nú að því að byggja upp eigin sjónvarpsstöð. „Þið og þessi þáttur eruð ástin í mínu lífi,“ sagði tárvot Oprah Win- frey þegar hún kvaddi sjónvarps- áhorfendur í hinsta sinn eftir 25 ára dvöl á skjánum. Þar með er ákveðnu tímabili lokið í banda- rískri sjónvarpssögu og eru þeir margir áhorfendurnir sem kveðja spjallþáttinn og þá ekki síst stjórn- andann með miklum söknuði. Til að slá botninn í 25 farsæl ár var þriggja þátta lokasyrpa þar sem stjörnurnar kepptust við að hylla Winfrey. Stjörnur á borð við Tom Cruise og Katie Holmes, Mad- onnu, Tom Hanks, Halle Berry, Beyoncé og Dakota Fanning voru meðal þeirra komu fram í þáttun- um. Fyrsti þáttur af The Oprah Win- frey Show fór í loftið árið 1986 og hefur þátturinn á þessum árum þróast úr því að vera slúður- spjallþáttur fyrir konur í vand- aðan umræðuþátt með menning- arumfjöllunum og viðtölum við stórstjörnur í bland við stór sam- félagsleg vandamál í Bandaríkj- unum. Oprah fæddist ekki með silfur- skeið í munninum. Fátæk, einstæð móðir ól hana og flakkaði Oprah á milli fósturfjölskyldna og ættingja og var æska hennar enginn dans á rósum. Hún hefur verið hrein- skilin við áhorfendur gegnum tíð- ina um æsku sína og í þætti sínum árið 1986 sagði hún frá því að hún hefði orðið fyrir misnotkun. Árið 1995 komst Oprah Winfrey inn á lista Forbes yfir 400 ríkustu einstaklinga heims og hefur verið fastagestur á þeim lista síðan. Árið 2010 voru auðæfi Opruh Winfrey metin á 314 milljarða íslenskra króna. alfrun@frettabladid.is Oprah kveður eftir 25 ár MÖRG TÁRVOT AUGNABLIK Lokastundin var dramatísk hjá tárvotri Opruh Winfrey en þáttur hennar hefur ófáum sinnum grætt bæði hana og áhorfendur. NORDICPHOTO/AFP 1954 Oprah Winfrey fæddist hinn 29. janúar. Hún hét Orpah Gail Win- frey en breytti nafni sínu. 1985 Oprah Winfrey hefur ekki farið leynt með baráttu sína við auka- kílóin og hér er hún í sjónvarps- verinu í morgunþættinum á WLS TV í stellingum fyrir framan ísskáp. 1985 Oprah Winfrey vekur athygli fyrir leik sinn í mynd Stevens Spielberg, The Color Purple. Winfrey var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta leikkona í aukahlutverki. 1986 Hinn 8. september fer þátturinn The Oprah Winfrey show í loftið og er sýndur um öll Banda- ríkin. Leiðin liggur bara upp á við eftir það. 1993 Tímamótaviðtal Opruh Winfrey við poppkonunginn Michael Jackson slær áhorfsmet en um 36,5 milljónir manna sátu fyrir framan skjáinn. 1999 Besta vinkona Winfrey, Gayle King, ritstýrir blaðinu O, The Oprah Magazine. Uppi hafa verið sögu- sagnir þess efnis að þær tvær séu par en Winfrey og King hafa alfarið neitað því. 2000 Winfrey kemst á stall með konum á borð við Hillary Clinton, þegar hún er sögð vera ein valda- mesta kona veraldar og áhrifamesti blökkumaður tuttugustu aldar, af bandaríska tímaritinu Life. 2006 Tom Cruise hoppar í sófanum í þætti Opruh Winfrey til að lýsa yfir ást sinni á Katie Holmes. Atvikið vekur mikla athygli. 2007 Stúlknaskóli Opruh Winfrey í Jóhannesarborg í Suður-Afríku hefur starfsemi sína. 2006-2008 Oprah Winfrey lýsir opinberlega yfir stuðningi við forsetaframbjóðandann Barack Obama. Stuðningur hennar er talinn hafa skilað Obama yfir milljón atkvæða og sumir hafa tekið svo sterkt til orða að eigna Winfrey heiðurinn að sigri hans í forseta- kosningunum. 2011 Hinn 25. maí endar sjónvarps- tíð The Oprah Winfrey Show og hin valdamikla spjallþáttadrottning hefur störf á sinni eigin sjónvarps- stöð, OWN. OPRAH Í MÁLI OG MYNDUM 5 10 15 20 25 30 35 40 45 F J Ö L D I Þ V O T T A F Y R IR H V E R J A R 1 .0 0 0 K R *: AR IEL B IOLOGICAL 50 k r. hve r þvot tu r NEUTR AL STORVASK 43 k r. hve r þvot tu r ÞVOÐU OF TAR MEÐ MILT F YRIR ALL AN ÞVOT T • Sérþróað gæðaþvottaefni fyrir íslenskt vatn • Án efna sem sitja eftir í tauinu • Án fosfata • Nægir að þvo á 40–60°C * Ve rð f e n g i ð í e i n n i l á g vö r u ve r s l u n á h ö f u ð b o rg a r svæ ð i n u 18 .0 5 . 2011 Hreinn sparnaður! Flestir þvottar fyrir fæstar krónur! MILT F YR IR ALL AN ÞVOT T 22 k r. hve r þvot tu r

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.