Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 88
28. maí 2011 LAUGARDAGUR60 sport@frettabladid.is ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ í handbolta mætir ógnarsterku liði Svía í tvígang næstu daga. Fyrst á morgun klukkan 16.00 og svo á mánudagskvöldið klukkan 19.30, en báðir leikirnir fara fram í Vodafone-höllinni. Svíþjóð varð í öðru sæti á EM í desember en Ísland er nú að búa sig undir leiki gegn Úkraínu í undankeppni HM í Brasilíu. HANDBOLTI Úrslitahelgi Meistara- deildarinnar fer fram í Köln um helgina. Í undanúrslitum mætast Ciudad Real og Hamburg annars vegar og Barcelona og Rhein- Neckar Löwen hins vegar. Undan- úrslitin fara fram í dag og úrslita- leikurinn á morgun. Guðmundur Guðmundsson stýr- ir liði Löwen og með því leika Ólaf- ur Stefánsson, Guðjón Valur Sig- urðsson og Róbert Gunnarsson. Ólafur er ekki ókunnugur þess- um úrslitahelgum enda hefur hann fjórum sinnum unnið Meist- aradeildina með Ciudad Real og Magde burg. Hann getur því náð þeim einstaka árangri um helgina að vinna eftirsóttasta bikar í Evr- ópu í fimmta sinn. „Það blundar í undirmeðvitund- inni að geta unnið fimmta titilinn,“ sagði Ólafur við Fréttablaðið í gær en Löwen hefur verið í Köln síðan á fimmtudag að undirbúa sig fyrir helgina. „Við erum kannski ekki sigur- stranglegasta liðið af þessum fjórum liðum. Við eigum samt góða möguleika miðað við hvernig við getum spilað á köflum,“ sagði Ólafur en Löwen mætti Barcelona í tvígang í riðlakeppni Meistara- deildarinnar. Leikinn ytra vann Löwen en það var fyrsti leikur liðs- ins undir stjórn Guðmundar. Síðari leiknum lyktaði með jafntefli. „Að hafa unnið leikinn úti gefur okkur svolítið sjálfstraust. Við erum búnir að æfa í hálfan mánuð eingöngu með Barcelona í huga. Það kostaði okkur reyndar tap gegn Gummersbach í vikunni en það átti að vera generalprufa fyrir helgina. Það var betra að það klúðraðist frekar en stóra sýning- in,“ sagði Ólafur léttur. Ólafur hefur oftar en ekki farið á kostum í stóru leikjunum með félagsliðum sínum og tryggði hann Ciudad Real titilinn nánast upp á sitt einsdæmi fyrir nokkrum árum. „Ég vona að ég nái að stíga upp. Það er samt svolítið öðruvísi með þessu liði því stundum þegar ég fer að skjóta fara aðrir að draga sig til baka og gera vitleysur. Ég þarf því að finna línuna hjá mér með þessu liði um helgina. Tak- markið er samt að fara alla leið og ég mun gera allt sem þarf til þess,“ sagði hinn 37 ára gamli Ólafur, sem segir skrokkinn vera í góðu standi eftir langt tímabil. „Skrokkurinn er fínn. Það er samt hausinn sem skiptir miklu máli og ég reyni að hafa hann í góðu lagi,“ sagði Ólafur og bætti við að hausinn væri þess utan enn í Þýskalandi þó svo að hann væri búinn að semja við AG Köbenhavn í Danmörku og hefði verið kynntur fyrir stuðningsmönnum félagsins um síðustu helgi. - hbg Ólafur Stefánsson getur unnið Meistaradeildina í handbolta í fimmta skiptið um helgina: Búnir að hugsa um Barcelona í tvær vikur SÁ FIMMTI Á LEIÐINNI? Ólafur hefur átt ótrúlega farsælan feril og getur bætt enn einni rósinni í hnappagat sitt um helgina. NORDIC PHOTOS/BONGARTS GOLF Keppnistímabilið hjá afreks- kylfingum landsins hefst með formlegum hætti í dag. Leiknar verða 36 holur eða tveir hringir á Eimskipsmótaröðinni og fer fyrsta mótið fram á Garðavelli á Akranesi og nefnist það Örninn golfmótið. Hlynur Geir Hjartarson úr GK varð stigameistari í fyrra í karlaflokknum og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni hefur titil að verja í kvennaflokknum. Íslandsmeistarinn Birgir Leifur Hafþórsson er ekki á meðal keppenda en hann er að keppa í Belgíu. Góð þátttaka er á mótinu, um 140 kylfingar, og stigameistarar síðasta árs eru að sjálfsögðu á meðal keppenda. Golfsambandið mun leggja mikla áherslu á að miðla upplýs- ingum um gang mála í keppninni á vefnum og er hægt að fylgjast með skori keppenda í farsímum á slóðinni golf.is/skor eða m.golf.is/ skor. - seth Eimskipsmótaröðin í golfi: Vertíðin hefst á Garðavelli í dag HLYNUR GEIR Stigameistari á móta- röðinni í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GARÐARS FH og KR drógust saman Dregið var í 16 liða úrslit Valitor-bikar- keppni karla í gær. FH og KR lentu saman en þessi tvö lið voru þau einu sem þurftu að slá Pepsi-deildarlið úr leik í 32 liða úrslitunum. Valur mætir ÍBV og Íslandsmeistarar Breiðabliks fara á Vestfirði þar sem þeir leika við BÍ/Bolungarvík. Frekari upplýsingar má finna á íþróttavef Vísis. VALITOR-BIKARINN Sunnudagurinn 29. maí. Mánudagurinn 30. maí. ÍBV - Víkingur R. kl.16.00 Hásteinsvöllur Valur - Breiðablik kl.19.15 Vodafonevöllurinn Fram - KR kl.19.15 Laugardalsvöllur Fylkir - Keflavík kl.19.15 Fylkisvöllur FH - Stjarnan kl.19.15 Kaplakrikavöllur Grindavík - Þór kl.20.00 Grindavíkurvöllur 24.–26. júní Hvammstanga Húnaþingi vestra www.landsmotumfi50.is FÓTBOLTI Hápunktur knattspyrnu- vertíðarinnar verður í kvöld, þegar Manchester United og Barcelona eigast við í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á Wem- bley-leikvanginum í Lundúnum. United er að spila sinn þriðja úrslitaleik á fjórum árum en liðið tapaði einmitt fyrir Barcelona þegar liðin mættust í úrslitaleikn- um árið 2009. Sparkspekingar telja margir hverjir að Börsungar séu líklegir til að endurtaka leikinn nú. En Sir Alex Ferguson, stjóri United, þolir ekki að tapa og vill allra síst lúta öðru sinni í gras gegn spænska ris- anum. United byrjaði vel í úrslitaleikn- um fyrir tveimur árum en þegar Samuel Eto‘o skoraði fyrir Barce- lona á tíundu mínútu tóku þeir spænsku öll völd í leiknum. Paul Scholes, leikmaður United, er staðráðinn í að láta það ekki endurtaka sig. „Þetta var ekki skemmtilegt kvöld og sumarið leið mjög hægt. Í þetta skipt- ið ætlum við í það minnsta að leggja okkur almennilega fram.“ Ferguson segir þó að leikurinn í dag snú- ist ekki um að ná fram hefndum. „Það voru okkur vonbrigði að tapa leiknum en það er ekki aðalmálið. Þetta snýst um stolt okkar,“ sagði hann á blaðamannafundi í gær. „Við erum einbeittir í þetta skiptið og undir- búningurinn hefur verið betri. Ég held að við höfum gert ein eða tvenn mistök í undirbúningnum síðast. Ekki núna.“ United tryggði sér Englandsmeistaratitilinn fyrir tveimur vikum og fékk því nægan tíma til undirbúnings. „Það skipti máli og hjálpaði okkur. En það sem mestu skiptir er að leikmenn hafi trú á eigin getu og treysti hver öðrum – vegna þess að ég treysti þeim,“ sagði Ferguson. Ferguson hrósaði kollega sínum, Pep Guardiola, fyrir þann árangur sem hann hefur náð með lið Barce- lona. „Hann hefur náð frábærum árangri, einkum miðað við hvað hann er ungur,“ sagði Ferguson. „Það er hægt að sjá hvernig liðið hefur þroskast síðan það vann okkur í Róm fyrir tveimur árum. Hann hefur breytt því hvernig liðið spilar og hefur mjög sterka nærveru.“ Liði Barcelona hefur margsinnis verið hampað sem einu besta liði heims, ef ekki einu því besta frá upp- hafi. Því er Guardiola ósammála. „Við erum ánægð- ir ef fólk nýtur þess að horfa á okkur spila. En við verð- um að bera virð- ingu fyrir liðum eins og Brasilíu, Liverpool, Man- chester og jafn- vel Real Madrid þegar það var upp á sitt besta,“ sagði Guardiola. „Það er mjög erfitt að bera s vo n a l a g a ð saman. Það er ómögulegt að leggja mat á það hvaða leikmaður sé besti knattspyrnumað- ur allra tíma – Pele, Maradona, Messi eða Beckenbauer. En allir þessir leik- menn hafa lagt sitt af mörkum til að gera knattspyrnuna betri en hún var áður.“ Þó eru flestir sammála um að fá lið standi Barcelona snúning þegar leikmenn liðsins ná að sýna sitt besta. „Við viljum reyna að halda boltanum og spila honum hratt á milli okkar. Við ætlum að sækja hratt á þá og skapa okkur færi. Við vitum nefnilega að það gæti reynst hættulegt að missa boltann því Manchester getur gert okkur erfitt fyrir.“ Einn besti leikmaður heims og lykilmaður í liði Barcelona, Xavi Hernandez, segir sína menn vel meðvitaða um styrkleika United. „Þeir eru ekki einungis með hæfileikaríka leikmenn,“ sagði hann. „Þeir eru duglegir í vörn- inni, þéttir og eiga marga val- möguleika í sínum sóknarleik. Ef þeir skora, pakka þeir í vörn og beita skyndisóknum, þar sem þeir eiga mörg mismunandi vopn.“ Ferguson sjálfur veit manna best hversu sterkt lið Barcelona hefur að geyma. En hann minnir á að United getur líka spilað vel. „Við vitum vel hvað andstæð- ingar okkar geta. Það væri óskyn- samlegt að mæta illa undirbúnir til leiks. Við þekkjum bæði styrk- leika Barcelona sem og veiku hlið- arnar,“ sagði Ferguson. „En við einbeitum okkur alltaf að því sem við getum gert sjálfir og við von- umst til að geta spilað sóknarbolta. Við höfum þá leikmenn sem þarf til þess.“ eirikur@frettabladid.is Höfum lagað mistökin frá 2009 Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu fer fram í kvöld en þá eigast við Manchester United og Barcelona. Stjórar liðanna eru sparir á stóru orðin og bera greinilega virðingu fyrir styrkleika andstæðingsins. LEGGUR Á RÁÐIN Sir Alex Ferguson stýrir æfingu með Manchester United fyrir leik- inn mikilvæga gegn Barcelona. NORDIC PHOTOS/GETTY TÖFRAMENN Lionel Messi og Andrés Iniesta, leik- menn Barcelona, munu hafa mikið að segja um hvernig leikurinn þróast í kvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.