Fréttablaðið - 28.05.2011, Side 94
28. maí 2011 LAUGARDAGUR66
PERSÓNAN
Bjarni Guðjónsson
Aldur: 32 ára.
Starf: Knattspyrnu-
maður og verslunar-
stjóri í Ellingsen.
Fjölskylda:
Kvæntur Önnu Maríu
Gísladóttur og á tvö
börn.
Foreldrar: Guðjón
Þórðarson knatt-
spyrnuþjálfari og Bjarney Þórunn
Jóhannesdóttir, Bowen-tæknir og
jógakennari.
Búseta: Vesturbær Reykjavíkur.
Stjörnumerki: Fiskur.
Bjarni Guðjónsson er fyrirliði KR í knatt-
spyrnu en KR trónir á toppi Pepsi-deildar-
innar þessa stundina.
„Við erum allir á lífi og allir með
tíu fingur og tíu tær,“ segir Hauk-
ur Heiðar Hauksson, söngvari
Diktu.
250 kílógramma sprengja úr
síðari heimsstyrjöldinni fannst
rétt hjá tónleikastað hljómsveit-
arinnar í Berlín á fimmtudags-
kvöld. Fyrir vikið voru allar nær-
liggjandi götur rýmdar á meðan
sprengjan var aftengd og Dikta
varð að flytja tónleikana yfir á
annan stað.
„Við komum til Berlínar í gær
[á fimmtudag] og stigum út úr
bílnum eftir 500 km akstur. Það
fyrsta sem við heyrðum var SMS
í símanum um að það væri búið
að loka öllu hverfinu,“ segir Hauk-
ur Heiðar. „Við bjuggumst við því
að þetta væri Al Kaída eða eitt-
hvað slíkt en þetta reyndist vera
sprengja úr seinni heimsstyrjöld-
inni sem var búin að vera þarna í
65 ár. Og þeir þurftu endilega að
finna hana í gær [fimmtudag].
Sprengjan fannst um tíu metra
frá tónleikastaðnum Magnet í
ánni Spree þar sem framkvæmdir
stóðu yfir á brú. Það gerist nokk-
uð reglulega að sprengjur finn-
ast í Þýskalandi og talið er að í
Berlín einni séu um þrjú þúsund
sprengjur grafnar undir borginni.
„Fyrst héldum við að við þyrft-
um að aflýsa tónleikunum en með
ótrúlegum klækjabrögðum tókst
tónleikabókaranum okkar að færa
tónleikana á annan stað í sama
hverfi,“ segir Haukur Heiðar.
Þeir félagar lentu í annarri upp-
ákomu sama dag þegar þeir áttu
að fara í útvarpsviðtal í miðborg
Berlínar. Þar var einnig búið að
loka öllum götum vegna mótmæla
en fyrst óttuðust Diktu-liðar að
önnur sprengja hefði fundist þar.
„Við þurftum að hlaupa út úr leigu-
bílnum og hlaupa einhverjar götur
fram og til baka til að leita uppi
þessa útvarpsstöð. Þetta var gríð-
arlega skrítinn dagur í Berlín.“
Tónleikarnir í höfuðborginni
voru þeir síðustu á tveggja vikna
ferðalagi Diktu um Þýskaland
sem var farið til að kynna plöt-
una Get It Together. Hún kom út
á vegum fyrirtækjanna Smar-
ten-Up og Rough Trade í Evrópu
11. mars. Núna er sveitin stödd
í Árósum í Danmörku þar sem
hún spilar á Spot-hátíðinni. „Við
erum komnir í aðeins öruggara
umhverfi,“ segir Haukur, feginn
að vera laus við öll vandræðin í
Berlín. freyr@frettabladid.is
HAUKUR HEIÐAR HAUKSSON: VIÐ ERUM ALLIR Á LÍFI
Sprengja fannst rétt hjá
tónleikastað Diktu í Berlín
DIKTA Í ÞÝSKALANDI Meðlimir Diktu sluppu heilir á húfi eftir að risastór sprengja var aftengd skammt frá tónleikastað þeirra.
„Það gæti alveg eins staðið autt í mörg ár,
þetta hús,“ segir Ásgeir Bolli Kristinsson,
eigandi húsnæðisins að Laugavegi 89 til
91 þar sem verslunin Sautján var áður til
húsa.
Hann hefur leitað að leigjendum að hús-
næðinu að undanförnu en hefur fengið
heldur dræmar undirtektir. „Ég hef fengið
nokkrar fyrirspurnir en ekkert merki-
legar,“ segir Ásgeir Bolli og viðurkennir
að það sé leiðinlegt að þetta góða húsnæði
á Laugaveginum skuli standa autt. „Þetta
er mjög stórt verslunarhúsnæði, 3.200 fer-
metrar og allt ný uppgert að utan og innan.
Ef einhver hefði áhuga er allt tilbúið en það
er voða lítill áhugi.“
Vangaveltur voru uppi um að sænska
fatakeðjan H&M ætlaði að opna útibú í hús-
næðinu en Bolli telur að ekkert verði af
því. „Ég held þeir hafi bara hætt við þetta.
En ef H&M kæmi myndi það breyta öllu í
gamla miðbænum. Þau myndu ábyggilega
laða að sér kannski þrjár milljónir manna á
ári. Kringlan er að laða að sér fimm til sex
milljónir á ári.“
Hann telur ólíklegt að leiguverð hús-
næðisins hafi dregið úr áhuga mögulegra
leigjenda. „Verðið er undir 2.000 krónum á
fermetrann ef það er leigt allt. Bara sam-
eiginlegi kostnaðurinn í Kringlunni er
1.500 krónur og er líklega í heildina svona
9.000 krónur,“ segir hann um verslunar-
rekstur þar. „Ég held að það þurfi dálítið
stóra og öfluga verslun í þetta hús. Þeir
sem eru með þessar stóru verslanir í dag
sitja bara og bíða.“ - fb
Húsnæðið gæti staðið autt lengi
AUTT HÚS Húsnæðið þar sem Sautján var áður til húsa
gæti staðið autt lengi enn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta er epískt stórvirki með
kjöt á beinunum um lífið í Polla-
firði,“ segir Pollapönkarinn Har-
aldur Freyr Gíslason.
Hljómsveitin Pollapönk er búin
að semja leikrit sem verður lík-
lega sett á fjalirnar á næsta ári.
„Við erum búnir að vera í við-
ræðum við nokkra aðila en það er
stefnan að gera þetta. Það á eftir
að koma í ljós hvernig útfærslan
verður. Við sjáum um músíkina
en hvort við leikum sjálfir vitum
við ekki alveg,“ segir Haraldur
Freyr. Spurður hvort það hafi
lengi staðið til að semja leikrit
segir hann: „Það blundaði allt-
af þarna á bak við að það væri
gaman að gera leikrit. Það eru til
margar góðar sögur í kringum
textana.“
Hljómsveitin Pollapönk hefur
notið mikilla vinsælda undanfar-
in ár. Síðasta plata hennar, Meira
Pollapönk, hefur selst í um tvö
þúsund eintökum og hefur sveit-
in verið iðin við að spila á hinum
ýmsu samkomum. Þriðja platan
er á leiðinni fyrir jólin og hafa
grunnarnir þegar verið tekn-
ir upp. Þar verða lög á borð við
Heima með veikt barn, Hananú
og Þreytta vélmennið, auk lagsins
Ættarmót sem fer í spilun í sumar.
Næst á dagskrá hjá Pollapönki
er þó spilamennska í Reykja-
nesbæ og í Hafnarfirði á þjóð-
hátíðardaginn 17. júní. - fb
Leikrit frá Pollapönki á leiðinni
BÚNIR AÐ SEMJA LEIKRIT Haraldur Freyr
og Heiðar Örn hafa samið Pollapönks-
leikrit. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
24.–26. júní Hvammstanga Húnaþingi vestra
www.landsmotumfi50.is
Sun 29.5. Kl. 20:00
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 3.6. Kl. 20:00
Lau 4.6. Kl. 20:00
Fim 9.6. Kl. 20:00
Fös 10.6. Kl. 20:00
Ö
Ö
Brák (Kúlan)
Fös 3.6. Kl. 20:00 Aukasýn.
Fös 3.6. Kl. 19:00 Lau 4.6. Kl. 20:00
Verði þér að góðu (Kassinn)
Ö
Haze – Beijing Dance Theatre (Stóra sviðið)
Fim 2.6. Kl. 20:00
Góði dátinn Svejk (Stóra sviðið)
Ö
Sun 5.6. Kl. 20:00 Aukasýn. Lau 11.6. Kl. 20:00
Miðasölusími: 551 1200
eða á leikhusid.is
Síðustu sýningar!
Fös 3.júní kl.19
Lau 4.júní kl.20
Sprenghlægileg og smart sýning!
EB, Fbl.
KHH, Ft.
BÍTIÐ
MEÐ HEIMI OG KOLLU
ALLA VIRKA DAGA KL. 6.50