Fréttablaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 21. júní 2011 15 Manndómur Stundum finnst manni sumir stjórnmálamenn og smá- hópar innan stjórnmálahreyf- inga gera lítinn greinarmun á stjórnmálaflokki og sértrúar- söfnuði. Standa eins og hundar á roði á kennisetningum og trúa því að það sé af hugsjón og heiðarleika, eða yfirburða vitsmunum. Eftir að hafa valið sér hólf í skoðanabankanum, hverfa þeir inn í það og loka á eftir sér. Standa eftir það við opinn glugga og prédika eigið fagnaðarerindi, baða sig í eigin ágæti, og gera lítið úr þeim sem kunna ekki að meta það. Þetta er reyndar ekki stór hópur, en hefur meiri áhrif en efni standa til vegna staðfestu sinnar og yfirlætis. Sumir fá öryggistilfinningu við það að gefa sig á vald sam- tökum og einstaklingum sem boða endanlegan sannleika. Óvissunni er eytt. Rétt og rangt er klárt og kvitt. En lífið er ekki fugl í hendi. Lífið er hreyfing. Og lífið er óvissa. Og það er eigin lega dásamlegasti galdur- inn við tilveruna. Á sögunnar spjöld Á fjölmennum stuðnings- mannafundi fyrrverandi for- sætisráðherra í Hörpu fyrr í þessum mánuði tók til máls Kristrún Heimis dóttir lög- fræðingur. Kristrún er aðstoðar maður efnahags- og viðskiptaráðherra. Hún flutti framúrskarandi ræðu. Engar málalengingar, einlæg og til- gerðarlaus framsetning. Krist- rún tók fram að hún hefði aldrei kosið Sjálfstæðisflokk- inn, væri á annarri snúru. En sagðist leyfa sér að fullyrða að engin siðmenntuð mann- eskja með lögfræðimenntun gæti horft á þetta mál án þess að blygðast sín. Kristrún sýndi með þessu fágætan manndóm og fagmennsku. Líka gott for- dæmi. Það er munur á því að vera stuðningsmaður stjórn- málaflokks og því að vera flokksþræll. Þegar fram líða stundir verða samin dramatísk leik- rit og líkast til kvikmyndir um yfirstandandi tímabil, og þetta mál sérstaklega. Hugsanlega á næstu árum eða eftir hálfa öld. Og vegna nútíma tækni geta höfundar skoðað atburðarásina á Alþingi og geta sér til glöggvunar séð andlit þingmanna þegar þeir greiða atkvæði, sem og annarra sem að þessu máli koma. Viðbrögð Kristrúnar Heimisdóttur munu ekki fyrn- ast. Þöggun Hvers vegna er þetta ekki í umræðunni? Hvar eru þeir sem alltaf eru með á vörum orð eins og flokkseigendafélagið, flokksræði, og flokksþrælar. Af hverju er ekki staldrað við þegar brotist er út úr hefðinni? Er þetta ekki tækifæri til að endurskoða samskiptasiði þeirra sem hafa mismunandi skoðanir? Hvað er frétt? Hvar eru umbótabloggararnir? Er eitthvað að því að fólk hafi mismunandi skoðanir á stjórnmálum, uppeldi eða íþróttafélagi? Væri ekki ein- kennilegt ef svo væri ekki? Þó að það sé ríkt í okkur að allt sé betra en áður var, þar með við sjálf, þá er maðurinn alltaf og alls staðar eins. Líka pólitíkin. Í ágústmánuði árið 1788 skrifaði Benjamín Frank- lín smákafla um stjórnmála- flokka í sjálfsævisögu sína: Benjamín „Hinir miklu viðburðir, stríð, stjórnarbreytingarnar eru framkvæmdar af flokkum. Skoðanir þessara flokka mið- ast við það, sem þeir telja hag flokksins. Mismunurinn á skoðunum flokkanna veldur öllum vandræðunum. Þó að flokkur hafi almannahag á stefnuskrá sinni, þá horfir hver maður fyrst og fremst á eigin hag. Þegar flokkur hefur náð aðaltakmarki sínu, fara flokksmenn að ganga ríkt eftir hagsmunamálum sínum, en þau koma þá hvert í bága við annað, og þetta leiðir til þess að flokkurinn klofnar og flokk- unum fjölgar. Við þetta eykst glundroðinn stórum. Fáir sem fást við opinber mál, hugsa aðeins um heill landsins, hvað sem þeir láta í veðri vaka. Þó að störf þeirra komi landinu að verulega gagni, þá hafa þeir fyrst og fremst hugsað um eigin hag, en þá hefur hagur þeirra og landsins farið saman. Þeir hafa því ekki látið stjórn- ast af einskærum velvilja.“ Er mikill munur á manneskj- um árið 1788 og 2011? Varla. Jónína Michaelsdóttir Blaðamaður Í DAG Það er munur á því að vera stuðnings- maður stjórnmálaflokks og því að vera flokksþræll. Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU Das Auto. Dugnaðarforkur frá Volkswagen Volkswagen Passat EcoFuelwww.volkswagen.is xx.280.000 kr. Verð frá: Volkswagen er frábær vinnufélagi! VW Crafter 50 Doublecab, 4x4 2,5 TDI 163 hestöfl - beinskiptur 7 manna með bílstjóra Burðageta 2.240 kg Til afhendingar strax á tilboðsverði: 7.900.000 með vsk. Hádegisfundur í stofu 101 í Odda, í dag, þriðjudag 21. júní frá kl. 12.00 til 13.00 Alexandra Cas Granje, sviðsstjóri á stækkunarskrifstofu framkvæmda- stjórnar ESB, heldur erindi á vegum Rannsóknaseturs um smáríki og sendinefndar ESB á Íslandi. Fundarstjóri: Auðunn Atlason, ráðgjafi utanríkisráðherra í Evrópumálum og deildarstjóri skrifstofu upplýsingamála. Fundurinn fer fram á ensku. Allir velkomnir. Aðildarviðræður Íslands Viðhorf framkvæmdastjórnar ESB Iceland´s EU negotiations A perspective from Brussels Hinn 27. júní næst komandi verða fyrstu kaflarnir opnaðir sem markar upphaf eigin- legra samningaviðræðna Íslands og Evrópu - sambandsins. Á fundinum gefst tækifæri til að heyra viðhorf framkvæmda stjórnarinnar til aðildar viðræðnanna en Alexandra Cas Granje er yfirmaður þeirrar skrifstofu sem fer með aðildarviðræður ESB við Ísland, Króatíu, fyrrum Júgóslavíulýðveldið Makedóníu og Tyrkland. Alexandra Cas Granje

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.