Fréttablaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 28
21. júní 2011 ÞRIÐJUDAGUR20 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta LÁRÉTT 2. íláta, 6. samanburðarteng., 8. starfsgrein, 9. arr, 11. ónefndur, 12. skapanorn, 14. undireins, 16. bardagi, 17. hvoftur, 18. festing, 20. skóli, 21. svara. LÓÐRÉTT 1. sæti, 3. frá, 4. sandgrynning, 5. beita, 7. vanabindandi efni, 10. goð, 13. háttur, 15. ilmur, 16. næra, 19. sjúkdómur. LAUSN LÁRÉTT: 2. vasa, 6. en, 8. fag, 9. sig, 11. nn, 12. skuld, 14. óðara, 16. at, 17. gin, 18. lím, 20. fg, 21. ansa. LÓÐRÉTT: 1. sess, 3. af, 4. sandrif, 5. agn, 7. nikótín, 10. guð, 13. lag, 15. angi, 16. ala, 19. ms. ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Heyrðu nú mig! Hvað er hérna ofan í neðstu skúffunni? Bíddu nú við, þetta er... melóna? Hvenær byrjaðir þú að kaupa ávexti? Fyrir tveimur árum. Þeir eru ekkert svo vondir. Í ár verður það avókadó, maður verður að prófa nýja hluti. Það er ótrúlegt hvað það er kalt úti! Það er ótrúlegt hversu vinda- samt það er! Það er ótrúlegt að mamma skyldi ekki skutla mér! Ég elska þessa, þeir eru svo þægilegir. Maður þarf þá ekki að vera árrisull. GOTT UPPELDIÞÁ NÚ Farðu nú út og reyndu að fá smá lit í kinnarnar! Farðu út en passaðu þig á sólinni! BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé Það er kannski eins og að sparka í liggj-andi trúarsöfnuð að ætla að tjá sig um málefni þjóðkirkjunnar nú um stundir. Hins vegar er erfitt að láta undir hælinn leggjast að velta fyrir sér málefnum þeirr- ar stofnunar nú um stundir. Látum vera hennar innri málefni, sem mér sem utan hennar stendur ættu ekki að koma við. Um þau mega innanbúðarmenn véla að vild. Verra þykir mér þegar þeir gera það á launum frá mér og hvorki ég, né þeir full- trúar sem ég kýs til að hafa áhrif fyrir mína hönd, fá um það ráðið. MÖNNUM kann að þykja ýmislegt um þjóðkirkjuna. Einhverjum getur þótt vænt um hana að gömlum sið, hún og landsmenn hafi eitt sinn verið tengd órjúfanlegum böndum og því sé erfitt að ætla að slíta þau. Hefðin getur verið rík og það getur í ýmsum tilfellum verið hið besta mál. En hefðin getur líka verið helsi og þá er kom- inn tími til að breyta til. HVAÐ sem krúttlegum fjölskyldustund- um um jól og páska kann að líða þá er nákvæmlega ekkert eðlilegt við það að einn trúarsöfnuður njóti réttinda umfram aðra hér í landi. Trúfrelsi á að vera tryggt og frelsi á að virka á báða vegu, bæði gagnvart stofnunum og einstak- lingum. Frelsi annars á heldur ekki að ganga á rétt hins. Þess vegna er ekki nema ósköp eðlilegt að slitið sé á formleg tengsl ríkis og kirkju; að allir trúarsöfnuðir landsins sitji við sama borð. EITT sinn var hér einungis ein trú og ein kirkja. Hún var samofin öllu þjóðlífinu og ævi fólks var vörðuð athöfnum henni tengdum. Mikilvægt var að skíra börn sem fyrst, voðinn var vís gæfu þau upp öndina áður en það náðist. Fundin var upp sérstök leið til að skíra án atbeina presta, skemmri skírn, til að forðast það. Fermingin táknaði fullorðinsárin, brúðkaupið fór fram innan vébanda kirkjunnar og þegar kom að því að þú geispaðir golunni var það kirkjan sem sá um að koma þér í vígða mold og hleypa sálu þinni í æðri víddir. Að því er talið var. ÞESSI tími er hins vegar löngu liðinn. Trúar brögðin eru orðin mýmörg, kirkjurn- ar og söfnuðirnir fjölbreyttir. Einn trúir á þetta, annar á hitt, og það er hið besta mál. Einsleitni er ekki einungis leiðinleg, hún er girðing fyrir þá sem ekki falla inn í hana. VEL má vera að aðskilnaður ríkis og kirkju gjörbreyti trúarlífi hér á landi. Verði þá svo. Það þýðir einfaldlega að það trúarlíf sem nú er við lýði er tengt við ríkisstyrkta öndunarvél sem ég og þú og allir aðrir skattgreiðendur borga. AÐSKILJUM ríki og kirkjum, sitjum öll við sama borð; á hvað sem við trúum. Aðskiljum til jöfnuðar Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdar Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. nr. 106/2000 m.s.br. Heitavatnsborhola og ný heitavatnspípa á Skarðdal og Siglufirði Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar: www.skipulagsstofnun.is. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 22. júlí 2011. Skipulagsstofnun Hæfniskröfur: Matráður í kaffihorn BYKO BREIDD

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.