Fréttablaðið - 27.06.2011, Blaðsíða 18
27. júní 2
„Þetta verkefni var í raun algjör draumur þar sem
þau á Grillmarkaðnum voru svo góð að gefa mér
algerlega frjálsar hendur,“ segir Greg. Hráviðinn
sótti hann meðal annars á Skarðströnd en í leirinn
blandaði hann íslenskri eldfjallaösku.
Greg hefur getið sér gott orð fyrir keramík sína en
borðbúnaður hans er eins náttúrulegur og hugsast
getur og notar hann til að mynda enga liti. Diskarnir
eru stórir, 30 sentímetra breiðir, og Greg segir hönn-
unina vera eilítið villta, enda trúi hann að fólk hafi
fjarlægst svolítið þann hefðbundna, stílhreina borð-
búnað sem átt hafi upp pallborðið síðustu árin.
Greg er með fleiri verkefni í gangi en hann er að
gera diska fyrir Dill Restaurant og skálar fyrir Vík-
ingakrána í gamla Naustinu. Hægt er að skoða verk
Gregs á facebook-síðunni Ceramic Tundra.
juliam@frettabladid.is
Framhald af forsíðu
Greg með nýjan borðbúnað sem notaður verður á Grill-
markaðnum.
OFNAR:
HELLUBORÐ
KERAMIKBORÐ
SPAN
UR:
HÁFAR:
UPPÞVOTTAVÉLAR:
FRÁBÆRT
TILBOÐ
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
Allt sem þú þarft
Þú færð Fréttablaðið
á kostnaðarverði á 120 stöðum
um land allt. Nánari upplýsingar
á visir.is/dreifing
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI
MENNING
Veggfóður má fá í ýmsum litum og af ýmsum gerð-
um. Með nýrri tækni hefur opnast ný vídd í vegg-
fóðursmynstrum. Fyrirtækið Couture déco hefur til
dæmis framleidd veggfóður með mynstri Chesterfield
sófasetts.
„Ég er nýkominn heim frá því að
leggja lokahönd á samninginn og
ræða við fleiri aðila um önnur
verkefni,“ segir Einar Ólafsson
arkitekt hjá Arkiteo ehf, en hann
ásamt arkitektunum Gunnari Sig-
urðssyni, Ástríði Magnúsdóttur
og Helga Steinari Helgasyni hefur
nýlega stofnað útibú frá Arkiteo í
Mumbai á Indlandi. Þetta þykja
tíðindi í heimi arkitekta á Íslandi
þar sem verkefni hafa verið af
skornum skammti eftir hrun.
Einar segir fasteignamarkaðinn á
Indlandi galopinn.
„Samningurinn hljóðar upp á
hönnun á 60 hæða íbúðaturni og
við höfum einnig þegar gert til-
lögu að 17 hæða íbúðaturni fyrir
annan aðila. Þá höfum við feng-
ið loforð um að teikna 10.000 fer-
metra hótel sem á að standa úti í
sjó við Mumbai og eins er búið að
viðra við okkur annan 40 hæða
íbúðaturn,“ segir Einar. „Þetta eru
spennandi verkefni og þarna er
allt iðandi í framkvæmdum. Hug-
myndin er að eitt af okkur eða tvö
verði staðsett í Mumbai en ætlun-
in er að vinna verkefnin að mestu
leyti hér heima.“
Upphafið að ævintýrinu má
rekja til þess þegar Einar fór
ásamt félaga sínum á orkuráð-
stefnu til Abú Dabí höfuðborg-
ar Sameinuðu furstadæmanna, á
vegum Íslandsstofu árið 2009. Í
framhaldinu var stofnað teymi 6
arkitektastofa á Íslandi, Geysir
Arkitekts, til að sækja á arki-
tektamarkaðinn í Abú Dabí. Eftir
að slitnaði upp úr samstarfi Ein-
ars við Geysi Arkitekts, hélt hann
viðskiptatengslum sínum við Ind-
verjann Kamlesh Avasare, sem
hann hafði kynnst í Abú Dabí á
ráðstefnu árið 2010.
„Til að gera langa sögu stutta
urðu aðstæður í Abú Dabí til þess
að Kamlesh færði sig til Ind-
lands og útvegaði okkur verk-
efnið um teikningu íbúðaturnsins
í Mumbai,“ segir Einar.
„Viðskiptavinurinn að 17 hæða
turninum er múslimi og við geng-
um út frá því í hönnuninni. Við
leikum okkur með guðdómlegt
form, sem kallað er, úr Islam, sem
við fjölföldum. Litirnir á Indlandi
eru kröftugir og við nýtum okkur
það einnig. Til dæmis leitum við í
Sari, búning indverskra kvenna í
hönnun gardína í byggingunni svo
byggingin verður aldrei eins yfir
daginn, eftir því hvar dregið er
fyrir glugga.“
Aðspurður segir hann hönnun
þeirra Íslendinganna skera sig úr
á svæðinu. Mikið sé um bygging-
ar í póstmódernískum stíl og gæði
ekki alltaf höfð að leiðarljósi.
„Það fréttist hratt innan fast-
eignabransans í Mumbai að við
værum að teikna fyrir þennan
stóra aðila og þá vildu aðrir fá
okkur líka til að teikna. Ég hef trú
á að þegar verkefnin fara af stað
geti opnast heil flóðgátt.“
heida@frettabladid.is
Opna stofu á Indlandi
Fjórir íslenskir arkitektar munu hanna 60 hæða íbúðaturn i Mumbai á Indlandi. Þau opnuðu stofu utan
um verkefnið í Mumbai í síðasta mánuði og eru þegar komin með fleiri verkefni á teikniborðið ytra.
Tillaga Arkiteo að 17 hæða íbúðaturni í Mumbai. Þar nýta þau sé sterka liti Indlands og „guðdómleg form“ úr Islam. MYND/ARKITEO
Einar Ólafsson, Gunnar Sigurðsson, Ástríður Magnúsdóttir og Helgi Steinar Helgason
hafa stofnað arkitektastofu í Mumbai á Indlandi og hafa þegar skrifað undir samning
um hönnun á 60 hæða íbúðaturni í borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG