Fréttablaðið - 29.06.2011, Side 2
29. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR2
TRÚMÁL Biskup kaþólsku kirkj-
unnar, Pétur Bürcher, hefur leit-
að til Róberts R. Spanó lagapró-
fessors, sem var í forsvari fyrir
rannsóknarnefnd kirkjuþings, og
beðið hann um að velja fulltrúa
í óháða rannsóknarnefnd fyrir
kaþólsku kirkjuna.
Róbert tekur ekki sjálfur sæti
í nefndinni en setur henni starfs-
reglur og markmið. Hann telur
líklegt að nefndin verði skipuð
þremur einstaklingum eins og
rannsóknarnefnd þjóðkirkjunnar.
Nefndin verður að öllum líkind-
um skipuð fólki með sérþekkingu
á sviði lögfræði og heilbrigðis-
mála. Þar sem ásakanirnar innan
kaþólsku kirkjunnar beinast einn-
ig að starfsfólki innan grunnskóla
telur Róbert líklegt að einstakl-
ing ur með sérþekkingu á þeim
málum verði kallaður til.
„Punkturinn verður að lík-
indum sá sami og var til stað-
ar í hinni nefndinni, þó að ekki
sé sjálfgefið að málin séu þau
sömu,“ segir Róbert. Hann segir
að endanleg skipun nefndarinn-
ar muni liggja fyrir í fyrsta lagi
um miðjan ágúst og stefnt sé að
því að hún geti hafið störf fyrir 1.
september. Nefndin skilar biskupi
skýrslu um störf sín en einungis
verða helstu niðurstöður og til-
lögur nefndarinnar birtar opin-
berlega.
Nefndin mun rannsaka þær
ásakanir sem komið hafa fram
um kynferðislegt ofbeldi af
hálfu þjóna kirkjunnar og starfs-
manna stofnana sem henni tengj-
ast. Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu frá biskupi, þar sem
hann biður einnig þá einstaklinga
afsökunar sem hafa orðið fyrir
kynferðisofbeldi af hálfu starfs-
manna kirkjunnar. - sv
Punkturinn verður að
líkindum sá sami og
var til staðar í hinni nefndinni
RÓBERT R. SPANÓ
RANNSÓKNARNEFND KIRKJUÞINGS
FERÐAÞJÓNUSTA Ferðafélag Íslands
(FÍ) tekur yfir rekstur Horn-
bjargsvita og mun sjá um hann
næstu tíu til fimmtán árin. Frá
þessu var geng-
ið í gær. Samn-
ingurinn er við
Siglingastofnun
ríkisins, sem er
eigandi staðar-
ins.
Ólafur Örn
Haraldsson, for-
maður FÍ, segir
rekstur vitans
falla mjög vel
að starfsemi
félagsins. Ferðir um Hornstrand-
ir séu einhverjar þær vinsælustu
sem félagið býður upp á. Þá hafi
deild félagsins á Ísafirði nýverið
verið endurreist og hann vonist
eftir góðu samstarfi við hana um
reksturinn.
Ævar Sigdórsson yfirgefur nú
Hornbjargsvita eftir nokkurra ára
dvöl. Hann segir tilfinningarnar
blendnar, en flutningur fjölskyldu-
meðlima af landi brott skýri brott-
hvarf þeirra. Sumarfrí síðustu ára
hafi farið í vitann og það gangi
ekki lengur. Fjölskyldan sé þó
öll hálfpartinn í sjokki, enda hafi
dvölin á Hornbjargi verið gríðar-
lega mikil reynsla og óvenju lær-
dómsrík.
„Þetta hefur verið erfitt en mjög
gaman og við höfum notið þess að
vera þarna. Ég skil þó við þetta
í góðum höndum og vonast til að
starfsemi Ferðafélagsins verði far-
sæl á þessum stað.“
Ævar segist þó ekki hafa sagt
skilið við Hornbjargsvita fyrir
fullt og allt. „Við settum í samn-
ing að við fjölskyldan ættum inn-
komu þarna svo lengi sem Ferða-
félagið sæi um reksturinn. Við
erum eins og Hilton-erfingjarnir,
eigum alltaf uppbúna svítu þegar
við erum á ferðinni,“ segir Ævar
og hlær.
Ólafur Örn segir Hornbjarg
hafa mikil náttúruleg sérkenni
og það verði upplifun fyrir ferða-
menn að gista þar. Félagið hygg-
ist auka þjónustu á svæðinu. Hann
segir staðinn ríkan af sögu og
gamalgróið félag eins og FÍ vilji
rækta tengslin við söguna.
„Í því skyni má nefna nafna
minn Óla komma sem var þar
lengi. Ég fann eitt sinn rauða
stjörnu úr blikki við vitann, hel-
víti mikla, líklega voru einir 60
sentímetrar á milli tindanna.
Þetta minnti mig á hinar fornu
týndu töflur í túni sem fundust
aftur og ég endurreisti hið fallna
merki og kom því virðulega fyrir.
Svona er staðurinn fullur af sögu
og skemmtilegheitum,“ segir
Ólafur, en nafni hans kommi hlaut
viðurnefni sitt vegna fylgispektar
við stefnu Jósefs Stalín.
kolbeinn@frettabladid.is
Fá réttindi Hilton-
erfingja í vitanum
Ferðafélag Íslands hefur samið um rekstur Hornbjargsvita. Fyrrum staðarhald-
ari kveður staðinn með eftirsjá en mun ávallt eiga uppbúna svítu þar. Staður-
inn á sér ríka sögu og tengja má hann óbeint einræðisherranum Jósef Stalín.
ÓLAFUR ÖRN
HARALDSSON
HORNBJARGSVITI Ferðafélag Íslands mun sjá um rekstur vitans næstu 10 til 15 árin.
Ætlunin er að auka þjónustu á svæðinu, en ferðir um Hornstrandir eru gríðarlega
vinsælar hjá félaginu. MYND/PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
Biskup biður fórnarlömb afsökunar og lætur stofna rannsóknarnefnd:
Nefndin svipuð og hjá þjóðkirkjunni
PÉTUR BÜRCHER RÓBERT R. SPANÓ
Trausti, ertu kominn með ein-
hverjar „hárþurrkur“ á teipið?
„Ekki frá Gauja sjálfum, en sumir
leikmanna liðsins eru ansi metró
fyrir framan spegilinn.“
Trausti Salvar Kristjánsson vinnur að gerð
heimildarmyndar um knattspyrnuþjálfar-
ann Guðjón Þórðarson. Guðjón hefur
löngum þótt óhræddur við að láta í sér
heyra í búningsklefanum.
DÓMSMÁL Meintur barnaníðing-
ur í Vestmannaeyjum gekk laus í
um það bil eitt ár eftir að myndir
sem hann tók af fórnarlambi sínu
komust í hendur lögreglu. Hann
er grunaður um að hafa níðst á
fórnarlambi sínu, átta ára stjúp-
dóttur sinni, svo mánuðum skipti.
„Sé það svo að gæsluvarðhalds-
úrskurðurinn verði staðfestur í
Hæstarétti, þá hlýtur lögreglu-
stjórinn á Selfossi auðvitað að
hafa gert mistök,“ segir Ólafur
Helgi Kjartansson, lögreglustjóri
á Selfossi.
„Hins vegar
er það augljóst
að ég á ekki
gott með að tjá
mig um málið
á þessu stigi,
meðan Hæsti-
réttur hefur
ekki fellt sinn
dóm um gæslu-
varðhaldsúr-
skurð héraðs-
dóms. Ég tel að í raun eigi að
reka svona alvarleg og hryllileg
mál eins og þarna er um að ræða
fyrir dómstólum en ekki í fjöl-
miðlum,“ bætir Ólafur Helgi við
og undirstrikar að enn hafi ekki
verið gefin út ákæra í umræddu
máli.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær var umræddur maður
úrskurðaður í gæsluvarðhald síð-
astliðinn laugardag og hefur hann
kært úrskurðinn til Hæstaréttar.
Í fórum hans fannst síðastliðið
haust fjöldi ljósmynda og hreyfi-
mynda sem hann hafði meðal ann-
ars tekið af sér og barninu.
- jss
ÓLAFUR HELGI
KJARTANSSON
Meintur barnaníðingur í Eyjum laus í um ár eftir að barnaníðsmyndir fundust:
Lögregla gæti hafa gert mistök
BANDARÍKIN Christine Lagarde
hefur verið útnefnd fram-
kvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, fyrst
kvenna.
Tilkynnt var
um ákvörð-
unina í gær,
eftir að Banda-
ríkin og Rúss-
land höfðu lýst
yfir stuðningi
við hana. Ríki
eins og Kína,
Indland og
Brasilía studdu hana einnig. Í til-
kynningu frá sjóðnum segir að
bæði Lagarde og keppinautur
hennar um stöðuna, Mexíkóinn
Agustin Carstens, hafi verið vel
hæf.
Lagarde hefur verið fjármála-
ráðherra Frakklands í fjögur ár,
og mun taka við stjórnartaumun-
um hjá AGS hinn 5. júlí. - þeb
Christine Lagarde skipuð:
Yfirmaður AGS
fyrst kvenna
CHRISTINE
LAGARDE
KJARAMÁL Samninganefndir SFR
– stéttarfélags í almannaþjónustu
og Fríhafnarinnar skrifuðu undir
nýjan kjarasamning í gær. Hann
er á svipuðum nótum og þeir
samningar sem stéttarfélagið
hefur gert að undanförnu.
Kjarasamningurinn framleng-
ist til 31. janúar 2014 og felur í sér
krónutölu- eða prósentuhækkan-
ir, eftir því hvað gagnast félags-
mönnum betur. Eftir á að greiða
atkvæði um samninginn. - kóp
Nýir kjarasamningar nást:
SFR semur við
Fríhöfnina
FRÍHÖFNIN Atkvæðagreiðslu um nýjan
samning lýkur klukkan 11 hinn 5. júlí.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Maður sem lést í slysi við íshelli
í Kverkfjöllum á mánudag hét
Jesus Martinez Barja. Hann
var 51 árs spænskur ríkisborg-
ari, búsettur í Hafnarfirði.
Hann lætur eftir sig þrjú börn.
Maðurinn var ásamt sex sam-
löndum sínum í íshellinum í
Kverkfjöllum þegar ís hrundi á
hann með þeim afleiðingum að
hann lést.
Lést þegar ís
hrundi á hann
Hálendisvegir opnaðir
Nú er orðið opið um Dómadalsleið
F225 og upp í Lakagíga F206. Einnig
er búið að opna veginn um Kaldadal
550 og svokallaða Þríhyrningsleið
sem er hluti af F910 fyrir austan.
SAMGÖNGUMÁL
KJARAMÁL „Menn eru ennþá að
ræða saman og vonandi boðar
það eitthvað gott,“ segir Kjart-
an Jónsson framkvæmdastjóri
Félags íslenskra atvinnuflug-
manna. Kjaradeila flugmanna
hjá Icelandair var rædd hjá
Ríkis sáttasemjara í gærkvöldi og
var fundi ekki lokið þegar Frétta-
blaðið fór í prentun.
Í gærkvöldi var gert ráð fyrir
að ekkert flug Icelandair yrði
fellt niður í dag vegna yfirvinnu-
banns flugmanna sem raskað
hefur flugi undanfarna daga. - þeb
Samningafundur fram á kvöld:
Flug á ekki að
raskast í dag
FERÐIR Starfshópur um samgöng-
ur í Vatnajökulsþjóðgarði, sem
skipaður var í vor vegna deilna
sem staðið hafa um stjórnunar-
og verndaráætlun Vatnajökuls-
þjóðgarðs, er farinn í sumarfrí.
Stefnt var að því að hópurinn
skilaði tillögum í júní en hann
fékk frest til haustsins.
„Það sem ákveðið var í stjórn-
unar- og verndaráætlun stendur
óbreytt í sumar,“ segir Þórður
H. Ólafsson, framkvæmdastjóri
Vatnajökulsþjóðgarðs. Með áætl-
uninni var ýmsum leiðum lokað,
meðal annars fyrir umferð öku-
tækja og reiðhesta. - mmf/ sjá Allt
Deilur um umferð í þjóðgarði:
Lokanir í gildi
út sumarið
SPURNING DAGSINS
KAUPSTAÐARSALAT MEÐ GRILLUÐUM HUMRI
Kaupstaðarsalat með
grilluðum humri, mangó,
melónum, jarðarberjum,
grænmeti og speltbrauði. Vel
útilátin og seðjandi máltíð!
www.fruberglaug.is
100 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið
HÓPKAUP.IS Í DAG
í krafti fjöldans
hópkaup.is
990 kr. GILDIR Í 24 TÍMA
1.990 kr.
Verð
50%
Afsláttur
1.000 kr.
Afsláttur í kr.