Fréttablaðið - 29.06.2011, Page 10

Fréttablaðið - 29.06.2011, Page 10
29. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR10 Landsbankinn fjármagnar byggingu hótels á Akureyri Við óskum Eignasamsteypunni og Icelandair Hótel til hamingju með opnun nýs hótels á Akureyri. ATVINNUMÁL Alcoa og Norðurál, sem starfrækja álverin á Reyðarfirði og á Grundartanga, þurftu að hafna mörg hundruð manns sem sóttu um sumarvinnu í álverunum í sumar. Fimm sóttu um hvert starf sem Fjarðaál auglýsti. Norðurál tak- markaði auglýsingar um störf við Vesturland vegna aðsóknar undan- farinna ára. Í sumar eru um eitt hundrað ungmenni í sumarvinnu í álverinu á Reyðarfirði en 165 hjá álverinu á Grundartanga. Elín Jónsdóttir, sérfræðingur í mannauðsteymi Fjarðaáls, segir að fyrirtækinu hafi borist um 500 umsóknir. Flestar hafi verið frá framhalds- og háskólanemum á aldrinum átján til 25 ára. Sex af hverjum tíu koma af Austurlandi en 40 prósent úr öðrum landshlutum. „Þessir krakkar koma víðs vegar að en þau eiga flest teng- ingu hingað á svæðið. En þetta er gríðarlegur fjöldi sem sýnir þess- ari vinnu áhuga,“ segir Elín. Hún segir jafnframt að á umsækjendum sé að heyra að litla vinnu sé að fá og margir njóti þess að hafa unnið áður hjá fyrirtækinu. Mikið er talað um samfélagsleg áhrif þess að stór fyrirtæki rísi. Elín segir að þessu megi finna stað enda sé alltaf viss hópur sem íleng- ist eftir að hafa unnið í álverinu með skóla. „Sumir verða um kyrrt af því að það er erfiðara fyrir marga að fara í skóla þar sem þeir njóta ekki sama stuðnings frá for- eldrum sínum og þeir gerðu fyrir hrun.“ Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir að sumarstörf hafi aðeins verið auglýst á Vesturlandi en reynsla liðinna ára sýni að þegar auglýst sé á landsvísu sæki fimm til sex um hvert starf. Þrátt fyrir takmarkaðar auglýsingar sóttu vel yfir 300 manns um 165 sumarstörf hjá fyrirtækinu. Stefna Norðuráls er að starfsfólk komi sem mest úr nágrannabyggð- um en um 80 prósent starfsmanna eru búsett á Akranesi, í Borgar- nesi og nærsveitum. Þessi stefna nær einnig yfir ráðningar sumar- starfsfólks. „Þessi störf hjá okkur eru umset- in enda möguleiki á ágætis tekjum yfir sumarið,“ segir Ragnar sem bætir við að hluti starfsfólksins hafi menntað sig í beinu sambandi við sumarstörf í álverinu og skili sér seinna sem menntaðir fastráðn- ir starfsmenn. svavar@frettabladid.is Ásókn í störf hjá álverunum Fimm manns sóttu um hvert laust sumarstarf hjá álveri Alcoa á Reyðarfirði. Bæði Alcoa og Norðurál þurfa að vísa skólafólki frá í hundraðavís. Fjórir af hverjum tíu sem fá vinnu í Fjarðaáli koma úr öðrum landshlutum. STÓRIR VINNUSTAÐIR Sumarvinna er ekki sjálfsögð eins og kemur fram í fjölda umsókna um sumarstörf álveranna á Reyðarfirði og á Grundartanga. SAMSETT MYND/RÓSA NÁTTÚRA Hvítabjörninn sem var felldur í Rekavík á Hornströndum í byrjun maí var ríflega þriggja ára gömul birna. Hún var við það að verða kynþroska; 95 kíló og 173 sentimetrar að lengd. Birnan var skotin úr þyrlu Landhelgisgæslunnar tæpum sex tímum eftir að hún sást fyrst á vappi í fjörunni í Hælavík. Björn- inn var fluttur samdægurs til Reykjavíkur og afhentur Náttúru- fræðistofnun Íslands. Karl Skírnisson, dýrafræðing- ur á Tilraunastöðinni á Keldum, sá um rannsóknir á dýrinu ásamt fleirum. Birnan er talin hafa fylgt móður fram á seinni hluta vetrar 2010 en eftir það hafi hún þurft að standa á eigin fótum. Gróflega áætlað nam fituforði birnunnar ekki nema um fimm prósentum af líkamsþyngd sem telst óeðlilega lítið miðað við árstímann. Útilok- að er að þessi óverulegi fituforði hefði nægt birnunni til að tímgast í ár. Krufning leiddi ekkert annað óeðlilegt í ljós. Birnan hafði ekkert étið áður en hún var felld en nokkrar gráleit- ar vængfjaðrir, væntanlega af fýl, fundust í maga og nokkrar bringu- fjaðrir af svartfugli fundust aftast í meltingarveginum. Það bendir til þess að birnan hafi ekki verið alveg nýkomin í land. - shá Hvítabjörninn sem var felldur í Rekavík reyndist illa haldinn miðað við árstíma: Grindhoruð þriggja ára birna HÆLAVÍKURBANGSINN Nokkrar fugls- fjaðrir fundust í maga og meltingar- færum birnunnar. MYND/LHG DANMÖRK Um 65 þúsund dönsk börn bjuggu við fátækt árið 2009 og hefur þeim fjölgað stórlega frá árinu 2002. Þetta kemur fram í frétt danska ríkisútvarpsins. Samkvæmt Efnahagsráði verka- lýðshreyfingarinnar óx hlutfall fátækra barna um 51 prósent. Viðmið OECD, sem notuð eru í þessari könnun, skilgreina heim- ili sem fátækt ef tekjur þess eru undir 50 prósentum af meðal- tekjum. Aukningin er rakin til þess að styrkir og framlög til tekjulágra hafa lækkað. - þj Kanna fátækt í Danmörku: Fjölgun í hópi fátækra barna NOREGUR Nýjum lögum um fyrir- tækjaskatt á Svalbarða er ætlað að koma í veg fyrir að stórfyrirtæki nýti sér eyjuna sem skattaskjól. Hingað til hefur skatthlutfallið verið 16 prósent í stað 28 prósenta eins og gerist á meginlandi Nor- egs, en nú mun sérstaki skattur- inn einungis gilda um fyrirtæki með árstekjur undir 10 milljónum norskra króna. Aftenposten nefnir fyrirtækið Seadrill. Á vegum þess er einn starfsmaður á Svalbarða og sér um útleigu á tveimur olíubor- pöllum. Á síðasta ári sparaði sú starfsemi um 85 milljónir norskra króna í skattgreiðslur, um 1,8 milljarð íslenskra. - þj Skattabreytingar í Noregi: Svalbarði ekki skattaparadís SKATTASKJÓL Svalbarði verður ekki eins aðlaðandi fyrir stórfyrirtæki eftir breytingar á skattalögum. LEITAR AÐ JARÐSPRENGJUM Jórdönsk kona leitar að jarðsprengjum nálægt landamærum Sýrlands, þar sem stefnt er að því að hreinsa 104 kílómetra langt svæði alveg af sprengjum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.