Fréttablaðið - 29.06.2011, Síða 23

Fréttablaðið - 29.06.2011, Síða 23
GÓLFEFNI MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2011 Kynningarblað Parket Dúkar Korkur Teppi Marmari Flísar Álfaborg hefur í aldarfjórðung selt landsmönnum gólfefni og bíður nú nánast allar tegundir, svo sem flísar, parket, teppi og dúka. Spennandi sumartilboð eru í versluninni um þessar mundir og margir sem koma í verslunina eru að huga að gólfefni utandyra. Gólfefnaúrvalið hjá Álfaborg er afar fjöl-breytt en Kolbeinn Össurarson, einn af eigendum Álfaborgar, leggur áherslu á að verslunin bjóði upp á allar tegundir gólf- efna en ekki bara flísar, þótt vissulega séu þær í miklu úrvali. „Í dag seljum við flísar, parket, teppi, dúka og öll algengustu gólfefni, í öllum verðflokk- um; bæði afar ódýr sem og dýrari vandaðar gerðir,“ segir Kolbeinn en sumargólfefnin eru í aðalhlutverki um þessar mundir enda ekki margir mánuðir hérlendis sem hægt er að nota í að flísaleggja utanhúss. „Algengt er að fólk sé að flísaleggja svalir, verandir, tröppur og þess háttar fleti og þar bjóðum við upp á fullt af góðum lausnum, bæði í flísum og undirefnum. Í þessum fram- kvæmdum er nauðsynlegt að nota vatnsvarn- arefni, til að verja eignina og koma í veg fyrir að úrfellingar myndist.“ Í flísalagnir utanhúss býður Álfaborg upp á mikið úrval gegnheilla flísa, en þær eru heppi- legri en glerjaðar þar sem þær verða ekki jafn hálar. „Svo eru grasteppin okkar gríðarlega vinsæl á sumrin, en þau eru til í mismunandi breiddum og við sníðum þau einnig eftir þörf- um fólks. Grasteppin eru vinsæl á svalirnar og henta þeim vel sem leggja ekki í það að flísa- leggja, en steinninn verður miklu skemmti- legri með grasteppinu og gefur ákveðna nátt- úrustemningu.“ Grasteppin eru á sumartil- boði, kosta 1.450 krónur fermetrinn. Sumarbústaðafólk er margt hvert að huga að gólfefnum í bústaðinn og í þeim efnum hefur Álfaborg margt að bjóða. „Algengt er að fólk velji flísar með viðaráferð, sem líta út eins og parket, á bústaðinn. Þá er líka töluvert um að fólk vilji viðarparket og svo er plastparket- ið alltaf að verða vinsælla og vinsælla, sérstak- lega það sem lítur út eins og gólfborð.“ Að lokum minnist Kolbeinn á óvenju gott til- boð á Tarkett-viðarparketi sem stendur yfir, þriggja stafa eik á 3.990 krónur fermetrinn. „Það er frábært verð fyrir sænskt gæðaparket með viðarlæsingu og mjög slitsterku lakki.“ Allt á gólf á einum stað „Algengt er að fólk flísaleggi svalir, verandir, tröppur og þess háttar fleti og þar bjóðum við upp á fullt af góðum lausnum, bæði í flísum og undirefnum,“ segir Kolbeinn Össurarson, einn af eigendum Álfaborgar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FLÍSAR ÚTI OG INNI Gegnheilar flísar eru góð lausn á svæði, bæði utan- og innandyra, þar sem mikið mæðir á, svo sem á svölum, veröndum og bílskúrum. Álfaborg er með gott verð á gegnheilum flísum, í stærðinni 30x30, en þær kosta aðeins 1.990 krónur fermetrinn og eru til í tveimur litum. Einnig er Álfaborg með öll efni sem nota þarf til flísalagna utanhúss. Starfsfólk Álfaborgar ráðleggur fólki við valið, en passa þarf að nota rétt efni við erfiðar aðstæður eins og utandyra. VINSÆLT Á GÓÐU VERÐI FRÁ TARKETT Woodstock harð/plastparket frá Tarkett er mjög vinsælt gólf- efni á góðu verði, aðeins 2.890 fermetrinn. Þrír litir eru til á lager hjá Álfaborg. Þeir eru hefð- bundin eik, hvíttuð eik og dökk eik. Woodstock er 8 millimetra þykkt og er í háum styrkleika- flokki, AC4 Class 32, og er því bæði hentugt fyrir heimilið og atvinnuhúsnæðið. Einstaklega auðvelt er að leggja efnið, þar sem því er smellt saman bæði á langhlið og í enda. viðarparket Verðdæmi: Eik 3ja stafa kr. 3.990 m2 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.