Fréttablaðið - 29.06.2011, Page 26
KYNNING − AUGLÝSING MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2011
SS Gólf ehf. að Kársnes braut 100 í Kópavogi
sér hæfir sig í lagningu flot- og epoxy- gólf-
efna og stein teppa.
Fyrirtækið SS Gólf ehf. var stofnað árið 2005 og hefur haslað sér völl í lagningu gólfefna fyrir matvælaframleiðslu, til dæmis í fiskvinnslu og
sláturhúsum. Einnig hafa gólfefnin frá SS Gólfum
reynst vel í bílskúrum, á svölum, hjá lyfjafyrirtækj-
um, í iðnaðarhúsnæði, eldhúsum og víðar.
Fyrirtækið sérhæfir sig í lagningu flot- og epoxy-
gólfefna auk steinteppa. Epoxy-efni eru fúgulaus gólf-
efni með hátt efnaþol. Þau henta vel á gólf þar sem
álag er mikið, en lokað yfirborðið kemur í veg fyrir að
óhreinindi komist ofan í gólfið. Þannig er það auðvelt
í þrifum og hentar vel á stöðum þar sem hreinlæti þarf
að vera í góðu lagi, til dæmis í framleiðslueldhúsum
og á spítölum.
Steinteppin eru einnig vinsæl og henta vel í sýn-
ingarsölum, verslunum, skrifstofum, á stigagöngum
og öðrum stöðum sem þurfa slitsterk gólfefni. Stein-
teppin bjóða upp á möguleika á fjölbreytni en þau eru
til í ýmsum litum og kornastærðum frá tveimur milli-
metrum upp í tólf millimetra.
Framkvæmdastjóri SS Gólfa er Sigurður Sigurðs-
son og leiðir hann vel valinn hóp starfsmanna fyrir-
tækisins. Margir starfsmannanna hafa allt að 25 ára
reynslu í faginu og hafa unnið við lagningu gólfefna
bæði hérlendis og erlendis. Nánari upplýsingar má
nálgast á vefsíðunni www.ssgolf.is
Henta vel á bílskúrsgólf,
verslanir og fiskverkanir
Steinteppin bjóða upp á
möguleika á fjölbreytni en
teppin eru til í ýmsum
kornastærðum og litum.
Starfsmenn SS Gólfa
hafa langa reynslu af
lagningu gólfefna.
Gólfefnaval leggur áherslu á heildarlausn á hreinsi- og viðhaldsvörum fyrir park-
et. Við höfum fundið mikið fyrir
því undanfarið að fólk velur að
endurnýja parketgólfin sín með
slípun og lökkun í stað þess að
rífa þau upp og leggja ný. Sumir
kjósa að breyta um lit á gólfinu en
aðrir velja hefðbundið lakk,“ segir
Gunnar Þór Jóhannesson hjá Gólf-
efnavali.
Gólfefnaval flytur inn viðhalds-
vörur fyrir allar gerðir parkets frá
Bona í Svíþjóð. Bona hefur að leið-
arljósi að vinna með og framleiða
eins umhverfisvænar vörur og nú-
tímatækni býður upp á.
Gunnar Þór segir viðhalds- og
hreinsivörur frá Bona sífellt að
sækja á. „Fólk er æ betur upp-
lýst um hvað sé gott fyrir það og
þess nánasta umhverfi. Tækni í
framleiðslu umhverfisvæns lakks
hefur aukist, það er slitsterkt og
ekki eins lyktarmikið og marg-
ar aðrar gerðir lakks. Við bjóðum
fólki að starfsmenn Gólfefnavals
komi í heimahús eða fyrirtæki,
þar metum við ástand parketsins
og leggjum síðan til hvað hægt sé
að gera og hvað sé hagkvæmast
að nota á parketið. Þá eru einnig
fáanleg efni eins og Bona Refres-
her og Bona Freshen Up sem fólk
getur sjálft borið á parketið til að
fríska upp á rispað og snjáð gólf og
endur unnið gljáann á því án þess
að slípa það,“ útskýrir Gunnar Þór.
„Ef viðargólfið er hins vegar illa
farið bendum við á fagmenn sem
hafa fengið kennslu í meðferð
þeirra efna sem Gólfefnaval býður
upp á,“ heldur Gunnar Þór áfram.
„Með þar til gerðum tækjabúnaði
frá Bona getum við boðið upp á
nánast ryklausa parketslípun eða
99,7% rykfrítt umhverfi. Rykfrí
parketslípun sparar fólki og fyrir-
tækjum líka mikla vinnu við þrif
eftir að parketið hefur verið slíp-
að og lakkað. Það er mun ódýrara
að endurslípa parketið en kaupa
nýtt,“ segir hann.
Bona-ræstingarlínan er hluti
af vöruþekkingu sem byggist á
yfir 90 ára reynslu Bona í meðferð
viðargólfa. Sápan er pH-hlutlaus
og umhverfisvæn. Hana má í raun
nota á alla hluti heimilisins s.s.
hurðir, gler, innréttingar, málaða
veggi og að sjálfsögðu á parketið
og önnur gólfefni. Nýtt á Íslandi
er Bona-spreymoppan sem er
þægileg í notkun og er ætluð til að
auðvelda öll gólfþrif og gera þau
ánægjulegri. „Bona-spreymopp-
an er ávallt tilbúin og ekki þarf
lengur að blanda sápu eða standa
í vatnsburði. Eða eins og einn við-
skiptavinurinn okkar sagði: „Ég
þurfti að velja á milli þess að ráða
mér konu til að þrífa hjá mér eða
finna önnur úrræði, vegna gikt-
ar í höndunum. Eftir að ég kynnt-
ist Bona-spreymoppunni ræð ég
sjálf við að þrífa allt,“ sem er ein-
mitt hugmyndin á bak við Bona-
spreymoppuna,“ segir Gunnar
Þór. „Með Bona-spreymoppunni
tryggir þú ávallt að lítið magn af
vatni fari á yfirborð parketsins.“
„Allar vörur frá Bona fást hjá
okkur í Gólfefnavali, Vatnagörð-
um 14,“ segir Gunnar, „en ræst-
ingavörurnar fást einnig í Hag-
kaupum Garðabæ, Skeifunni,
Kringlunni og í Smáralind“.
Gamalt verður sem nýtt
Parketgólf slitna með tímanum rétt eins og hver önnur gólfefni. Gólfefnaval hefur um
langt árabil boðið upp á heildarlausn í slípun og lökkun með umhverfisvænu parketlakki.
Sífellt fleiri kjósa að endurslípa gamla parketið í stað þess að rífa það af og kaupa nýtt.
EPOXYGÓLFEFNI
fyrir gólf sem mæðir mikið á...
Helena Ýr Gunnarsdóttir er starfsmaður
Gólfefnavals. MYND/VILHELM