Fréttablaðið - 05.07.2011, Síða 18

Fréttablaðið - 05.07.2011, Síða 18
Sportlif.is leitar að fólki til að taka þátt í Boot Camp-keppninni 2011 sem er hluti af Þrekmótaröðinni og verður haldin í Mosfellsbæ 27. ágúst. Sportlíf stefnir á að vera með tvö fimm manna lið. Leitað er að fólki í góðu formi og getur það öðlast frían þátttökurétt í mótinu. Bókin Íslenskar lækningajurtir eftir Arnbjörgu Lindu Jóhanns- dóttur, nálastungu- og grasa- lækni, hefur verið endurútgefin. Í nýrri útgáfu hefur kynningu á kín- verskri læknisfræði verið bætt við. „Kínverskar lækningar eru önnur leið til sjúkdómsgreiningar en hin hefðbundna vestræna leið. Kínverska kerfið á í raun miklu betur við jurtir,“ útskýrir Arn- björg Linda en hún nam kínversk- ar lækningar í Englandi eftir að hafa menntað sig í nálastungu- og grasalækningum þar ytra. „Ég fór út í kínverska læknis- fræði til að öðlast betri skilning á viðfangsefninu en kínverska kerfið er elsta kerfi sem jurtir hafa verið greindar eftir,“ útskýrir Arnbjörg. Í bókinni yfirfærir hún kín- versku fræðin á flestar íslensku jurtanna og útskýrir eiginleika hverrar jurtar bæði samkvæmt kínverska kerfinu og því vest- ræna. „Þetta er í fyrsta sinn sem kínversk læknisfræði er kynnt á íslensku máli,“ segir Arnbjörg. Bókin er skreytt bæði teikning- um og ljósmyndum. Hverri jurt er lýst og hvar hún vex, hvaða hlutar hennar eru nýttir og hvenær á að tína hana. Þá eru lýsingar á hvern- ig á að búa til te, bakstra eða krem úr jurtunum. Nánari upplýsingar um kín- verska læknisfræði eru á síðunni nalastungur.is. heida@frettabladid.is Góð áhrif íslenskra jurta Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir, nálastungu- og grasalæknir, hefur yfirfært kínverskar lækningar á íslenskar jurtir. Í endurútgefinni bók hennar, Íslenskar lækningajurtir, er að finna þann fróðleik. Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir, nálastungu- og grasalæknir, yfirfærði kínversk fræði á íslenskar jurtir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Vallhumall Notkun: Gott er að drekka vallhumalste í byrjun flensu eða kvefs. Þá hefur hann löngum verið tal- inn ein besta jurtin sem hér er völ á til að græða sár en þá er unnið smyrsl úr blómunum. Kínversk fræði: Vallhumall er styrkjandi fyrir lifur og hjarta yin. Jurtin leiðréttir lifrar qi og hefur þannig krampalosandi áhrif víða í líkamanum. Vall- humall er einnig kælandi og er þess vegna góður í upphafi flensu eða hálsbólgu þar sem hiti fylgir og særindi. Íslenskar lækningajurtir bls 89. Neglur gegna því hlutverki að hjálpa til við að grípa utan um hluti og með- höndla þá. Þær vernda einnig fremsta hluta fingra og táa, sem er afar næmur. Enn frem- ur gera neglur okkur kleift að klóra aðra líkams- hluta og virka því eins og klær margra dýrategunda. Heimild: Visindavefur.is FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI MENNING ÚTSALA HAFIN! Dúnmjúkar brúðargjafir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.