Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.07.2011, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 05.07.2011, Qupperneq 19
PALLURINN ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2011 Kynningarblað Lausnir, ráð, nýjungar, notalegheit. Steypustöðin ehf. var stofnuð árið 1947 og hefur því starfað við góðan orðstír í meira en 60 ár. Fyrirtækið framleiðir stein- steypu í mannvirki og hellur af öllum stærðum og gerðum. „Við kappkostum að bjóða bestu hellur sem völ er á innanlands og þótt víðar væri leitað,“ segir Bene- dikt Guðmundsson, markaðs- og sölustjóri fyrirtækisins, og útskýrir nánar í hverju sérstaðan felst. „Yfir- leitt eru hellur framleiddar í einu lagi. Okkar eru aftur á móti sam- settar úr tveimur lögum, grófu og sterku undirlagi úr íslenskum fylli- efnum og þunnu, sléttu og öflugu yfirlagi úr graníti sérinnfluttu frá Noregi. Yfirborðið er mjög veðrun- arþolið og hindrar að vatn eigi að- gang að hellunni og er einnig frá- bær vörn gegn nagladekkjum vegna graníthörkunnar.“ Fyrir vikið segir Benedikt hell- urnar frá Steypustöðinni vandað- ar, fallegar og endingargóðar. „Ekki er óþekkt að samsettu efnin brenni af yfirborðni hellna og þær verði dökkar, veðraðar og slitnar á fáein- um árum. Okkar framleiðsluaðferð snarminnkar líkur á slíku. Nýverið keyrði ég til dæmis inn í hverfi sem hafði verið hellulagt með hellum frá okkur fyrir tæplega fjórum árum og þær litu allar út fyrir að vera ný- komnar af brettinu.“ Risi á íslenskum markaði Framleiðsla hellnanna fer öll fram í Hafnarfirði þar sem fyrirtæk- ið rekur eina fullkomnustu verk- smiðju sinnar tegundar í heim- inum, að sögn Benedikts. „Þar fer jaframt fram framleiðsla á álags- hellum fyrir götur og hraðahind- arnir. Durasplitt-möl og granítsand- ur frá Noregi er meðal annars notað í hellurnar sem eru steyptar í einu lagi og þar af leiðandi eru þær sér- lega slitþolnar. Malbikunarstöðvar beita þessu gjarnan þar sem er mikið álag sökum þunga og nagladekkja.“ Verksmiðjuna keypti Steypu- stöðin árið 2003, en rekur að auki öfluga söludeild fyrir steypur, garð- lausnir og múrvörur að Malara- höfða 10 í Reykjavík, Hringhellu 2 Hafnarfirði og að Hrísmýri 8 á Sel- fossi. Nýjasta viðbótin er útstöð í Helguvík, í húsakynnum aflagðr- ar steypustöðvar sem fyrirtækið leigði til nokkurra ára. „Við vorum að opna þar og eykur stöðin þjón- ustustig við okkar kúnna á Suður- nesjum ásamt því að þjónusta fyrr- um viðskiptavini stöðvarinnar,“ út- skýrir Benedikt og bætir við að til standi að opna söludeild fyrir múr- vöru og hellur á næstu dögum. „Við erum klárlega langstærsti innflutn- ings- og söluaðili á múr á íslenskum markaði í dag og koma vörurnar frá Rescon Mapei í Noregi og eru þekkt- ar fyrir gæði, svo sem styrk og veðr- unarþol.“ Spurður hvernig salan á hellum fari af stað í ár, segir Benedikt hana komna langt fram úr væntingum. „Hún er búin að vera dúndurgóð í júní og það sem af er júlí enda sum- arið sá tími sem menn hella sér út í hellulagnir, garðverk og þess háttar,“ bendir hann á léttur í lund og getur þess að hjá Steypustöðinni sé jafn- framt boðið upp á ókeypis lands- lagsráðgjöf. „Hér eru tveir sérfræðingar, Inga Rut Gylfadóttir og Björk Guð- mundsdóttir, landslagsarkitektar frá Forma, sem veita ráðleggingar alla þriðju-, miðviku- og fimmtu- daga milli klukkan 9 og 17. Ráðgjöfin hefur verið mjög vel nýtt og ég mæli með að fólk panti sér tíma í síma Steypustöðvarinnar 4400-400 þar sem upppantað hefur verið hálfan mánuð fram í tímann og erum við að bæta við fleiri dögum til að mæta þörfinni og skapa viðskiptavinum framúrskarandi þjónustustig.“ Bestu hellur sem bjóðast Gæði, ending og gott útlit. Með þeim hætti lýsir Benedikt Guðmundsson, markaðs- og sölustjóri Steypustöðvarinnar, fjölbreyttu úrvali hellna sem fyrirtækið hefur framleitt um árabil. „Við kappkostum að bjóða bestu hellur sem völ er á innanlands og þótt víðar væri leitað,“ segir Benedikt Guðmundsson, markaðs- og sölustjóri Steypustöðvarinnar ehf. MYND/HAG Steypustöðin selur ýmsar gerðir af sérhannaðri steypu, meðal annars mynstursteypu og vörur í hana. „Við erum með allar græjur sem þarf í gerð hennar, stimpla og gúmmímottur, og nauðsynleg efni, lita- og hersluefni í yfirborðið og lakkið sem lokar því á eftir,“ útskýrir Benedikt Guðmunds- son. „Nokkur öflug múrfyrirtæki eru í samstarfi við okkur og sjá um að vinna verkin (sjá www. steypustodin.is). Vinna við mynstursteypu er vandasamt verk og þarf sérþjálfaða fagmenn í það svo vel til takist.“ Hann segir góða reynslu komna á mynstruðu steypuna. „Fyrstu plönin sem við steyptum fyrir meira en 20 árum eru sem ný þetta löngu síðar.“ MYNSTURSTEYPA „Umskiptin eru ótrúleg. Gamlar og þreyttar hellulagnir og plön eru eins og ný eftir þessa með- ferð,“ segir Benedikt um við- haldsefni sem Steypustöðin selur frá breska fyrirtækinu Pics. Hann nefnir til sögunnar olíuhreinsi, mosaeyði og sápusýru sem virkar á hvíta kalkútfellingu sem kemur úr sementinu á hellum og pöllum. „Þegar búið er að bera efnin á er farið yfir með þvottvél, en þær leigjum við út ásamt fylgihlutum,“ segir hann og bætir við að eftir þvott og lökkun með Picseal loði hvorki olíublettir né tyggjó við steypt plön eða hellur. „Eftir lökkun eykst ending á hellum um allt að fimm ár.“ NÝTT ÚTLIT Á GÖMUL PLÖN Allar hellur Steypustöðvarinnar eru framleiddar samkvæmt viðurkenndum stöðlum. 4 400 400

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.