Fréttablaðið - 23.07.2011, Qupperneq 50
23. júlí 2011 LAUGARDAGUR26
Yndisleg eiginkona mín, móðir
okkar, tengdamóðir, amma, dóttir,
tengdadóttir og systir
Ása Líney Sigurðardóttir
viðskiptafræðingur
Árbakka 9, Selfossi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi aðfaranótt
20. júlí. Útförin fer fram frá Selfosskirkju
fimmtudaginn 28. júlí kl. 13.30.
Þorgrímur Óli Sigurðsson
Linda Rós Pálsdóttir Dagur Gunnarsson
Sigrún Hanna Þorgrímsdóttir Anton Scheel Birgisson
Sigurður Ingi Þorgrímsson Særós Ester Leifsdóttir
Kristófer Dagsson
Tómas Dagsson
Líney Hekla Antonsdóttir
Pálína Jóhannesdóttir
Ingibjörg Þorgrímsdóttir
og systkini hinnar látnu
Yndislega eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Róshildur Stefánsdóttir
Ljósuvík 14, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi aðfaranótt
fimmtudagsins 21. júlí.
Birkir Þór Gunnarsson
Gunnar Birkisson Jóhanna Þórhallsdóttir
Stefán Hjálmar Birkisson Margrét Björk Kjartansdóttir
Dagný Björk Stefánsdóttir Steindór Hjartarson
Aron Birkir Stefánsson
Hanna Björt Stefánsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
systir og amma,
Stefanía Auðbjörg
Halldórsdóttir
frá Stykkishólmi,
Laugateigi 36, Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 9. júlí sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Innilegar kveðjur og þakkir sendum við starfsfólkinu
á Hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir hlýhug og umhyggju
í hennar garð.
Dagbjört Hafsteinsdóttir Sveinn Jónsson
Halldór Hafsteinsson Lilja Hannibalsdóttir
Edda Hafsteinsdóttir
Svanhvít Hafsteinsdóttir Níels Ingólfsson
Kristján Jón Hafsteinsson Rósa Guðný Gestsdóttir
Vilhjálmur Hafsteinsson Þórdís Guðmundsdóttir
Hilmar Hafsteinsson Guðbjörg Hákonardóttir
Ingibjörg Hafsteinsdóttir Bjarni Ágústsson
Lilja Halldórsdóttir
barnabörn og fjölskyldur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Birna Guðrún
Friðriksdóttir
fyrrum húsfreyja
á Melum í Svarfaðardal,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn
25. júlí kl. 13.30.
Svana Friðbjörg Halldórsdóttir Arngrímur V. Baldursson
Anna Kristín Halldórsdóttir Grétar Baldursson
Soffía Halldórsdóttir
Friðrik Heiðar Halldórsson
Þóra Vordís Halldórsdóttir
ömmu- og langömmubörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Herdís Guðrún
Ólafsdóttir
Brúnavegi 9, Reykjavík,
andaðist fimmtudaginn 21. júlí á Landspítalanum
við Hringbraut.
Viðar Gunnarsson Guðbjörg Bergs
Ómar Þór Gunnarsson Guðný Ólafsdóttir
Ástríður Ólöf Gunnarsdóttir Kjartan Hrafn Helgason
Bjarni Matthías Gunnarsson Hulda Björk Erlingsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
GUÐLAUGUR ARASON rithöfundur og leiðsögumaður á afmæli í dag.
„Það er gott að geta hlegið.“61
Merkisatburðir
1183 Sturla Þórðarson (Hvamm-Sturla) dó 58 ára. Hann var
höfðingi og goðorðsmaður, ættfaðir Sturlunga.
1808 Enska skipið Salomine, sem er með 20 fallbyssur, kom til
Reykjavíkur og rændi fjárhirslu landsins.
1929 Jarðskjálfti varð í Brennisteinsfjöllum austan Krýsuvíkur
og er talinn hafa verið 6,3 stig. Skemmdir urðu á húsum í
Reykjavík og víðar.
1986 Andrés prins, hertogi af York gekk að eiga Söru Ferguson í
Westminster Abbey.
2009 Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands, lagði
formlega fram aðildarumsókn Íslands að Evrópusamband-
inu.
ÞETTA GERÐIST: 23. JÚLÍ 1950
Hátíð í endurreistu Borgarvirki
Fjölmenn hátíð var haldin í klettavíginu Borgarvirki
í Vestur-Húnavatnssýslu þennan dag árið 1950.
Tilefnið var að gagngerum endurbótum á hleðslum
þess var lokið og það hafði verið endurreist í sinni
fornu mynd.
Borgarvirki er mannvirki sem talið er vera frá land-
námsöld. Það er hlaðið af manna höndum milli
Vesturhópsvatns, Víðidalsár og Hóps. Það mun hafa
verið ætlað til landvarna, ef víkinga bæri að af sjó.
Það var Húnvetningafélagið í Reykjavík sem gekkst
fyrir endurhleðslunni. Kristján Eldjárn þjóðminja-
vörður hafði eftirlit með verkinu. Virkið er talið með
merkustu fornminjum hér á landi.
timamot@frettabladid.is
Nýr rósagarður var vígður í Laugar-
dalnum í Reykjavík 21. þessa mánað-
ar á vegum Garðyrkjufélags Íslands,
Reykjavíkurborgar og Yndisgróðurs.
Þar er meðal annars safn rósa sem
Jóhann Pálsson fyrrverandi garð-
yrkjustjóri hefur kynbætt. Jóhann
fagnaði áttræðisafmæli á vígsludaginn
og metur ljósu punktana við aldurinn.
„Ég man svo langt aftur í tímann
og er búinn að upplifa svo margt.
Ég man eftir kreppunni, hernáminu,
þegar sjónvarpið kom og tölvurnar en
það sem mér finnst einna skemmti-
legast eru gróðurfarsbreytingarnar
sem mér hefur auðnast að sjá á þess-
ari ævi. Þegar ég var að byrja að upp-
lifa náttúruna í kringum mig þá fannst
mér rofabörð og nakin holt vera eðli-
leg fyrirbrigði í þessu landi. Svo komst
ég að því að þetta var að nokkru leyti
mannanna verk eins og reyndar ger-
ist víða. En nú vaxa hér skógar með
yfir 20 metra háum trjám og maður
sér þessa miklu grósku sem landið býr
yfir þegar það fær að njóta sín. Þetta
hefur mér fundist ævintýri.“
Jóhann kveðst hafa haft auga fyrir
gróðri alla tíð en þó var það annað
en grasafræðin sem í byrjun heillaði
hann sem námsfag. „Ég fór í fyrsta
leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1950
og eftir það í Dramaten, leiklistarskóla
konunglega leikhússins í Stokkhólmi.
Frá því ég byrjaði í leiklistarskóla og
þar til ég hætti sem atvinnuleikari liðu
16 ár en þá gat ég ekki hugsað mér að
halda áfram svo ég las menntaskóla-
fög utan skóla og það passaði til að
þegar því lauk var líffræðideildin að
byrja í Háskólanum. Eftir hana var
ég í Uppsalaháskóla í sjö ár í doktors-
námi í grasafræði og þegar ég átti
að fara að ljúka því var mér boðið að
verða forstöðumaður Lystigarðsins
á Akureyri. Það var spennandi starf
og eftir tæp sjö ár þar fékk ég stöðu
sem garðyrkjustjóri Reykjavíkur. Það
var óskaplega gaman að fá að vinna
hér í borginni, taka þátt í að byggja
upp Grasagarðinn, Húsdýra- og fjöl-
skyldugarðinn í Laugardalnum og
svo baðstaðinn í Nauthólsvík sem
var lokaverkefni mitt sem yfirmaður
garðyrkjudeildar. Allt ævintýralega
skemmtilegt.“ gun@frettabladid.is
JÓHANN PÁLSSON GRASAFRÆÐINGUR: OPNAÐI RÓSAGARÐ Á ÁTTRÆÐISAFMÆLI
GAMAN AÐ SJÁ ÞÁ MIKLU
GRÓSKU SEM LANDIÐ BÝR YFIR
FYRRVERANDI GARÐYRKJUSTJÓRI Jóhann í eigin garði í Grafarvoginum en yfir áttatíu rósir hafa
bómgast þar, það sem af er sumri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR