Fréttablaðið - 23.07.2011, Side 58
23. júlí 2011 LAUGARDAGUR34 34
menning@frettabladid.is
SUMARTÓNLEIKAR VIÐ MÝVATN Í REYKJAHLÍÐARKIRKJU í kvöld klukkan 21. Andri
Björn Róbertsson syngur við píanóundirleik Kristins Arnar Kristinssonar. Efnisskrá tónleikanna er afar fjöl-
breytt, allt frá íslenskum Sprengisandi til evrópskra ljóða og amerískra söngleikja.
Skáldsaga Halldórs Laxness,
Sjálfstætt fólk, heldur áfram að
heilla lesendur. Á dögunum kom
út ný sænsk
þýðing á verk-
inu og hefur
útgáfan vakið
mikla athygli.
Gagnrýn-
andi Express-
en, Pér Wirtén,
fagnar nýju
þýðingunni
mjög: „Í nýrri
þýðingu Inge Knutsson glitrar
[sagan] sem bæði fögur saga
og hryllileg. Guð minn góður,
þvílík saga sem hann skrifaði,
Íslendingurinn.“
Og Peter Viktorsson á Kristi-
anstadbladet er ekki að skafa
utan af því: „Eftir nokkurra
tíma lestur virðist einkunnin
„meistaraverk“ sem þýðandinn
Inge Knutsson gefur í eftirmála
sínum engar ýkjur, aldrei slíku
vant.“
- fsb
Fögur og
hryllileg
HALLDÓR LAXNESS
Fergusonbókin hans Bjarna
Guðmundssonar safnstjóra
á Hvanneyri sló í gegn
þegar hún kom út árið 2009.
Nú hefur Bjarni skrifað
aðra bók álíka skemmtilega.
Hún fjallar um Farmal.
„Vélar frá hinu virta heimsfyrir-
tæki, International Harvester
Company, hafa sennilega komið
við sögu á hverjum einasta bæ
á Íslandi með beinum hætti eða
óbeinum – alveg frá því fyrstu
hestaverkfærin komu um fyrri
aldamót,“ byrjar Bjarni spjallið
um nýútkomna bók sína Alltaf er
FARMALL fremstur. „Fyrsta trak-
torabylgjan sem skellur á um 1930
er að miklu leyti rekin áfram af
vélum frá International Harvester.
Þá kaupa búnaðarfélögin Farmal-
traktora og þar með hefst jarð-
vinnsla í sveitum. Síðan komu
blessaðar ýturnar þegar skurð-
gröfur höfðu búið til alla haug-
ana og þegar ýturnar voru búnar
að slétta og stækka túnin þá var
kallað á litla traktora til að létta
heyvinnuna. Þar kemur Farmall
við sögu en var kannski að sumu
leyti sleginn út af Ferguson fjórum
til fimm árum seinna. Þetta er nú
svona tímalega samhengið.“
Farmal-dráttarvélarnar höfðu
það fram yfir Ferguson að þær
voru fljótt framleiddar í ýmsum
stærðum að sögn Bjarna. „Það kom
til af því að vestur í Kanans landi,
þar sem þær voru smíðaðar, voru
menn snemma orðnir þjálfaðir í að
lesa markaðinn og buðu vélar sem
þjónuðu mismunandi bústærðum.
Sá sæli Farmal Cub sem hér var
gríðarlega vinsæll var svar Inter-
national Harvester við þörfum tób-
aksbænda í Suðurríkjum Banda-
ríkjanna sem áður höfðu haft einn
múlasna eða annað dráttardýr og
þurftu bara örfá hestöfl. Síðan
kom í ljós að Farmal Cub féll eins
og hönd í hanska fyrir bændur uppi
á Íslandi.“
Talið berst að jarðýtunum.
Bjarni segir þær hafa verið eins og
Kólumbusaregg (einföld en snjöll
lausn á vandamáli) fyrir Íslend-
inga. „Ýturnar urðu að pop-up
bylgju á fáum árum upp úr 1940.
Þær leystu menn úr viðjum vanda
sem skurðgröfurnar höfðu skapað,
opnuðu vegi milli héraða og ruddu
snjó að vetrinum. Menn kunna sér
varla læti. Ýturnar drynja um allar
sveitir og herfa mönnum flög og
nýræktir.“
Bjarni segir Farmal-vélarnar
hafa enst vel þegar þess sé gætt
við hvaða harðneskju þær bjuggu
hér á landi, samanborið við þægi-
leg akurlönd vestanhafs sem voru
aðalviðfangsefnið. „Nú þegar
bylgja endurgerðaráhuga ríður
yfir þá finna menn margar Far-
mal-vélar í góðu standi hjá hirðu-
fólki víða um land. Ég veit um
einn Farmal A frá fimmta ára-
tugnum sem enn í dag gengur til
sinna tilteknu heyverka.“
gun@frettabladid.is
Komu við sögu á hverjum bæ
HEYSKAPUR á Hvítanesi í Skilmannahreppi laust eftir 1950. Farmal A er látinn draga.
MYND/ÚR BÓKINNI ALLTAF ER FARMAL FREMSTUR.
SAFNSTJÓRI LANDBÚNAÐARSAFNSINS Bjarni Guðmundsson kann að segja sögur af
vinsælum vélum. MYND/ÚR EINKASAFNI
Ungt fólk í Selinu
Kammertónleikar verða í Sel-
inu á Stokkalæk þriðjudaginn
26. júlí kl. 20. Þar mun ungt
tónlistarfólk láta til sín taka.
Fram koma þær Gróa Margrét
Valdimarsdóttir og Geirþrúður
Ása Guðjónsdóttir fiðluleikar-
ar, Þóra Margrét Sveinsdóttir
víóluleikari, Ásta María Kjart-
ansdóttir sellóleikari, Sólborg
Valdimarsdóttir og Kristján
Karl Bragason píanóleikarar
auk Þórunnar Völu Valdimars-
dóttur messósópran. Flutt-
ur verður píanókvintett eftir
bandaríska tónskáldið David
Cutright og annar eftir Robert
Schumann. Þá verður flutt
verkið Chanson Perpetuelle op.
37 eftir Ernest Chausson fyrir
messósópran, strengjakvartett
og píanó.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 23. júlí 2011
➜ Tónleikar
14.00 Á Sumartónleikum í Skálholti
mun Elín Gunnlaugsdóttir flytja erindi
í Skálholtsskóla. Verk eftir hana verða
flutt á tónleikum kl. 15 í Skálholtskirkju.
Aðgangur er ókeypis.
15.00 Chet Baker tribute band leikur
ljúfa bossanova-tóna utandyra á tón-
leikum veitingahússins Jómfrúarinnar.
Aðgangur er ókeypis.
20.30 Kristján Pétur Sigurðsson með
tónleika í Verksmiðjunni á Hjalteyri.
Sérlegir aðstoðarmenn eru Guðmundur
Egill Erlendsson og Birgir Sigurðsson.
Aðgangur er ókeypis.
➜ Opnanir
14.00 Systkinin Guðrún Ólafsdóttir og
Brandur Ólafsson opna samsýningu í
Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri
undir heitinu Nostalgia Tourist. Allir
velkomnir.
14.00 Opnun á systrasýningu þeirra
Jóhönnu Friðfinnsdóttur og Drafnar
Friðfinnsdóttur heitinnar í Ketilhús-
inu á Akureyri. Listaverk til sölu. Allir
velkomnir.
15.00 Listakonan Erna G.S. opnar
sýningu sína Remix Móment 2009 í
Deiglunni, Listagilinu á Akureyri. Allir
velkomnir.
20.00 Opnun á sýningu Baldurs
Björnssonar Myrklósett: Black Log /
Blakkir Logar í Gallerí Klósetti, Hverfis-
götu 61, Reykjavík. Allir velkomnir.
➜ Uppákomur
Menningarveisla Sólheima bíður upp á
tónleika með Jazztríói Sunnu Gunnlaugs
í Sólheimakirkju og námskeið um nátt-
úruljósmyndun í Sesseljuhúsi eftir þtón-
leikana. Aðgangur er ókeypis.
Sunnudagur 24. júlí 2011
➜ Gjörningar
16.00 Pálína frá Grund frumflytur
gjörning sinn Hverra manna, sem sam-
inn er í tilefni sýningarinnar Góðir
Íslendingar í Gerðarsafni, Kópavogi.
Aðgangseyrir er kr. 500.
➜ Tónleikar
16.00 Anna Guðný Guðmundsdóttir
og Snorri Sigfús Birgisson leika fjórhent
sónötu í C-dúr eftir Mozart á píanó á
Gljúfrasteini. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
Lesendur okkar
eru á öllum aldri
með ólíka
sýn á lífið
– og við þjónum
þeim öllum
Allt sem þú þarft