Fréttablaðið - 23.07.2011, Side 70
23. júlí 2011 LAUGARDAGUR46
MORGUNMATURINN
„Undanfarið hef ég fengið mér
AB mjólk og sett út á hana
morgunkorn og banana.“
Þórunn Erna Clausen leikkona
„Ég var skíthræddur um að ég hefði slasað
mig alveg hrikalega,“ segir Jóhannes Haukur
Jóhannesson leikari.
Jóhann hræddi sjálfan sig og 500 leikhúsgesti
á sýningu Hársins á fimmtudagskvöldið þegar
hann féll úr kaðli í upphafi sýningarinnar. „Ég
byrja á að standa á efri palli og syngja. Því
næst sveifla ég mér með kaðli niður á sviðið. Í
þetta sinn hef ég farið of geyst í sveifluna. Ég
fór upp í ljósraufarnar hinum megin þannig að
það kom lykkja á kaðalinn og ég missti takið,“
segir Jóhannes en fallið var þrír metrar.
„Ég datt af sviðinu og niður á gólf og stöðv-
aðist við áhorfendabekkinn. Þar lá ég bara
grafkyrr og viss um að ég hefði slasast alvar-
lega. Ég var í algeru sjokki,“ segir Jóhannes en
áhorfendur tóku andköf og mátti heyra saumnál
detta á meðan Jóhannes lá á gólfinu.
„Matti Matt varð vitni að þessu öllu saman
af sviðinu og var fyrstur til að hlaupa að mér
og athuga hvort allt væri í lagi með mig,“ segir
Jóhannes, sem kom sjálfum sér á óvart þegar
hann stóð upp heill á húfi undir lófaklappi
áhorfenda og kláraði sýninguna þar sem frá
var horfið.
„Svona eftir á að hyggja varð mér til happs
hvað ég er kominn í gott form eftir tökurnar
á myndinni Svartur á leik. Fyrir myndina var
ég líka í brjáluðum æfingabúðum hjá Mjölni og
lærði hjá þeim að detta án þess að verða fyrir
meiðslum,“ segir Jóhannes og gantast með það
að hann geti farið að snúa sér að áhættuleik í
framtíðinni.
Jóhannes sveiflaði sér í kaðlinum á sýningu
strax daginn eftir fór svo sannarlega varlega.
- áp
Féll þrjá metra í miðri sýningu
VAR SKÍTHRÆDDUR Jóhannes Haukur Jóhannesson féll
úr kaðli á sýningu á Hárinu í Hörpunni á fimmtudags-
kvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Ég og fjölskylda mín eldum allt-
af lunda á Þjóðhátíð og höfum
oft boðið fólki upp á hann. Í ár
þarf maður að halda aðeins að
sér höndum og bjóða fyrst sínum
nánustu,“ segir Magnús Braga-
son, lundaverkandi í Vestmanna-
eyjum.
Lundaveiði hefur verið bönn-
uð í Vestmannaeyjum og því
hafa Eyjamenn þurft að bregða
á það ráð að fá lunda að norðan
til að menn fái góðgætið fyrir
Þjóðhátíð, en reyktur lundi
er ómissandi á veisluborðin í
tjöldum Eyjamanna um versl-
unarmannahelgina. Að sögn
Páls Scheving Ingvarssonar,
formanns Þjóðhátíðar-
nefndar, er lundinn ómiss-
andi hluti af hátíðarhöld-
unum og sjálfur borðar
hann lunda með bestu
list enda sé hann
afbragðsmatur.
Magnús Braga-
son segir lítið
um lunda en
hann varð sér
þó úti um ein-
hverja fugla
til að geta við-
haldið hefð-
i n n i . „ É g
náði að klóra
saman nokk-
ur hundruð
fugla að norðan
en veiðin hefur
verið mjög lítil í
ár vegna veður-
sældar í júlímán-
uði. Það má aðeins
veiða fuglinn í háf
og það þarf ákveð-
inn vind til að hann
fljúgi en þar sem vind-
ur hefur verið rólegur í
júlí hefur lítið veiðst af lunda,“
útskýrir hann.
Magnús segir veiðina svipaða
í ár og undanfarin tvö sumur.
Aðspurður segist hann þó styðja
veiðibannið í Vestmannaeyjum af
heilum hug. „Maður vill gjarnan
halda hefðinni gangandi en vill
ekki að gengið sé of nærri stofn-
inum, ég vil að hann fái að njóta
vafans, þannig að tilfinningarn-
ar eru blendnar. Lundinn hefur
þó sést í meiri mæli hér í Eyjum
en undanfarin ár en líklega þarf
stofninn nokkur ár í viðbót til að
geta rétt almennilega úr kútn-
um.“
sara@frettabladid.is.
MAGNÚS BRAGASON: NÁÐI AÐ KLÓRA SAMAN NOKKUR HUNDRUÐ FUGLA
Eyjamenn með allar klær úti
í lundaleit fyrir Þjóðhátíð
LÍTIÐ UM LUNDA Eyjamenn hafa þurft að verða sér úti um
lunda að norðan vegna veiðibanns í Vestmannaeyjum. Páll
Scheving Ingvarsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, segir
lundann ómissandi hluta af hátíðinni.
„Þetta var einfaldlega áskorun sem ég gat ekki skorast
undan,“ segir Hilmar Björnsson, nýráðinn dagskrárstjóri
sjónvarpstöðvarinnar Skjár einn.
Eins og Fréttablaðið greindi frá sóttu margir um starf-
ið en Kristjana Thors Brynjólfsdóttir hefur gegnt starf-
inu undanfarin ár. Hilmar hefur verið sjónvarpsstjóri
Skjás Golfs undanfarna mánuði en hann hefur mikla
reynslu úr fjölmiðlaheiminum. Til dæmis var hann sjón-
varpsstjóri hjá Sýn og seinna Stöð 2 Sport og hann sá um
útsendingar Ríkissjónvarpsins frá HM í knattspyrnu í
fyrrasumar.
„Það er fyndið að segja frá því að á síðasta ári var ég
að vinna hjá öllum sjónvarpsstöðvum landsins á rúmu
ári,“ segir Hilmar, sem tekur formlega við nýja starfinu
á mánudaginn.
Hilmar boðar ekki miklar breytingar en leggur áherslu
á að halda í þá 25 þúsund áskrifendur sem stöðin hefur nú
þegar. „Ég er með fullt af hugmyndum en á eftir að skoða
hverjar þeirra ég get framkvæmt. Það er þekkt dæmi að
góð íslensk dagskrárgerð selur áskriftir og ætla ég því
að vera með allar klær úti í þeim efnum,“ segir hann og
bætir við að Skjár einn ætli sér að virða sinn áhorfenda-
hóp, sem flestir eru að leita eftir ódýrri afþreyingu.
„Við sjáum gríðarlegan uppgang í Skjá Frelsi, þar sem
fólk getur horft á þættina þegar þeim hentar. Þá eru
áhorfendur í rauninni sínir eigin dagskrárstjórar.“ - áp
Reynslubolti ráðinn dagskrástjóri
NÝTT STARF Hilmar Björnsson er nýr dagskrárstjóri Skjá eins
og er með fullt af hugmyndum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Uppspretta
vellíðunar
Hverabraut 1 | 840 Laugarvatn | fontana@fontana.is | Sími: 486 1400
Opið
alla daga
kl. 11–22
NÁTTÚRULEGT
HVERAGUFUBAÐ
GLÆSILEGAR
BAÐLAUGAR
Nánari upplýsingar:
www.fontana.is
„Við erum bara búnir að fara á
hnefanum í gegnum þessa mynd,“
segir Elvar Gunnarsson, kvik-
myndagerðarmaður og höfundur
kvikmyndarinnar Einn.
Elvar útskrifaðist úr Kvik-
myndaskóla Íslands árið 2005
og hóf að vinna hjá skólanum í
kjölfarið. „Ég var deildarstjóri í
Kvikmyndaskólanum en ég hætti
til þess að gera þessa mynd,“
segir Elvar.
Myndin fjallar um Helga,
íslenskan listamann, sem býr
inni á góðvini sínum, konu hans
og barni. Helgi ákveður að fram-
leiða sína fyrstu kvikmynd sem
byggð er á hans eigin ævi, en
framleiðendur myndarinnar
krefjast handritsbreytinga. Um
leið og Helgi fer að breyta vissum
hlutum í handritinu, fara hlutirn-
ir að skila sér í hversdagslíf hans
og af stað fer atburðarás sem
Helga gat ekki órað fyrir.
Elvar segist hafa verið lengi
að velja í hlutverkin, en myndin
ku vera rómantísk, svört gaman-
mynd og í senn söngva- og dans-
mynd. „Ég ákvað að fá aðallega
fersk andlit og var svolítinn tíma
að finna þau. Eftir mikla leit fann
ég Arnþór Þórsteinsson, sem fer
með aðalhlutverkið í myndinni,“
segir Elvar, en þetta er fyrsta
kvikmynd Arnþórs. Með önnur
hlutverk fara þau María Ell-
ingsen og Darren Foreman, en
Darren fór með hlutverk í sjón-
varpsþáttunum The West Wing
og hefur kennt við Kvikmynda-
skóla Íslands frá árinu 2007. - ka
Íslensk söngva- og
dansmynd á leiðinni
FRUMSÝND Í JANÚAR Elvar Gunnarsson er höfundur íslensku kvikmyndarinnar
„Einn“ sem frumsýnd verður í janúar. Myndin er gamanmynd og í senn söngva- og
dansmynd. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN