Fréttablaðið - 18.08.2011, Side 46
18. ÁGÚST 2011 FIMMTUDAGUR14 ● fréttablaðið ● menningarnótt
Urban Utd. er hópur leikmanna
sem hafa staðið að því að lífga
upp á Hlemmsvæðið í sumar
með tilraunainnsetningum
og viðburðum sem eiga sér
stað í kringum þær. Síðasti
viðburðurinn mun eiga sér
stað á Menningarnótt.
Á meðal þeirra sem standa að baki
verkefninu er Hilmar Gunnarsson
arkitekt, Ólafur Ólafsson hönnuð-
ur og Spessi ljósmyndari. „Efni-
viðurinn hefur verið allt það sem
Hlemmsvæðið hefur upp að bjóða
og þjónustuaðilum hefur gefist
tækifæri til að bjóða fram þjónustu
sína í borgarlandinu og á torginu
við biðskýlið á Hlemmi svo myndast
hefur skemmtileg stemning bæði
fyrir farþega strætó og aðra borg-
ara,“ segir Hilmar Gunnarsson.
Framlag Urban Utd. er hluti af
verkefninu Torg í biðstöðu sem
hefur verið starfrækt í samvinnu
við Reykjavíkurborg í sumar. „Á
Hlemmi má sjá þversnið borgar-
búa og ákveðna mynd af borgar-
lífinu, sem er mjög ánægjuleg. Um-
ræðan um Hlemm hefur því miður
verið frekar neikvæð og við vild-
um fá svolitla sól í hana og ekki
síst út frá menningarlegu sjónar-
horni. Í sumar hafa erlendir ferða-
menn verið áberandi á Hlemmi og
haft skemmtileg áhrif á verkefnið
og við höfum áhuga á að endurtaka
það að vetri til þar sem almennir
borgarar eru meira áberandi og sjá
hvernig það kemur út.“
En dagskráin á Menningar-
nótt verður spennandi. „Urban
Utd. verður með sveitatónlist og
heybagga í biðskýlinu á Hlemmi,
tape-artistar sem kalla sig Apear
Collective skreyta umhverfið og
mæta með Dj með sér, við fáum
að upplifa örtónleika með fjöl-
mörgum tónlistarsnillingum eins
og Óskari Guðjónssyni saxófón-
leikara og Guðlaugi Kristni drauga-
bana og gítarskáldi, hljómsveit-
irnar Brother Grass og Mogadon
troða upp, Snorri Ásmunds fremur
gjörninginn Við erum, Páll Hauk-
ur og Kolli verða með innsetningar
og gjörninga, Torfi á Hár horninu
býður rakstur á Hlemmtorginu,
svo fátt eitt sé nefnt, “ segir Hilm-
ar og er strax farinn að hlakka til.
Dagskráin stendur yfir milli klukk-
an 13 og 18, en nánari upplýsingar
um dagskrána er hægt að nálgast á
facebook-síðu Urban Utd. - uhj
Hittumst á Hlemmi
Ólafur Ólafsson hönnuður, Hilmar Gunnarsson arkitekt og ljósmyndarinn Spessi
standa að baki Urban Utd. en hópurinn hefur staðið að því að lífga upp á Hlemm-
svæðið í sumar. MYND/SPESI
„Við ætlum að vera með listasýn-
ingu í Hjartagarðinum,“ segir
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,
annar eigenda Framkvæmda félags
listamanna, Frafl, sem setur upp
listaviðburði í Hjartagarðinum
á Menningarnótt í samvinnu við
Gogoyoko. Fjórir listamenn munu
vinna að listaverki í garðinum
á Menningarnótt. „Það eru þau
Árni Már Erlingsson, Sindri Snær
Sveinbjargar-Leifsson, Sunna Ben
og Baldvin Einarsson. Við viljum
gera Hjartagarðinn líflegri og
auka menningarlegt gildi hans til
framtíðar.“
Harpa segir að fólk hafi komi
saman í Hjartagarðinum og málað
veggina. „Það er náttúrulega alveg
frábært, en það hefur samt stund-
um verið svolítið losaralegt hver
á að mála hvar. Fólk hefur talið
þetta vera graffití eða krass,“ út-
skýrir Harpa sem segir listamenn-
ina ætla að skapa heilsteyptari
mynd í Hjartagarðinum. „Graffití-
ið mun halda sér en listastemning-
in verður víðtækari. Það verða til
dæmis gerðir skúlptúrar.“
Settir verða upp tónleikar í
Hjartagarðinum meðan á list-
sköpuninni stendur. „Sýningin
opnar klukkan tvö og tónleikarn-
ir byrja í kjölfarið,“ segir Harpa
en þar munu fjölbreyttir tónlistar-
menn koma fram. „Svo erum við
með fjóra aðra viðburðastaði um
Reykjavík þar sem önnur atriði
verða í gangi,“ upplýsir Harpa og
telur upp: „Pop-up verslun verður
til dæmis í porti Maclands. Reyk
Veek verða á Faktorý, svo verða
tónleikar á Hemma og Valda og
Ellefunni.“ - mmf
Hjartagarðurinn lifnar
við á Menningarnótt
Árni Már Erlingsson og Harpa Fönn Sigurjónsdóttir segja að markmiðið sé að gera
eitthvað sem muni endast í Hjartagarðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þeir á veitingastaðnum Dill
Restaurant kunna svo sannar-
lega að leika við bragðlaukana
og það verður þeirra framlag á
Menningar nótt. Ólafur Örn Ólafs-
son, annar eigenda veitingastaðar-
ins, ætlar að standa úti við grillið,
jafnvel þótt það rigni, og matreiða
krækling frá Stykkishólmi ofan í
gesti og gangandi.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við
tökum sjálfstætt þátt í Menningar-
nótt Reykjavíkur og við hlökkum
mikið til. Það er svo yndislegt að
vera hérna í Norræna húsinu en við
ætlum engu að síður að færa okkur
út fyrir húsið og vera í nánd við
gróðurhúsið okkar. Þar ætla ég að
tína nokkrar af þeim jurtum sem
við höfum verið að rækta og elda
með kræklingunum. Þetta verð-
ur því eins konar tilraunaeldhús í
náttúrunni,“ segir Ólafur brosandi
og bætir við að matargerð Dills sé
ekkert venjuleg. Hún sé upplifun.
En það er engin veisla án tón-
listar. ,,Ég hef fengið vin minn,
Eyjólf Þorleifsson, sem heldur úti
djassbandinu Eyland, til þess að
spila undir í þessari matarveislu.
Músíkin er svona fúsjón, tilvísun,
popp, rokk og jafnvel hipp hopp.
Það verður því virkilega góð úti-
stemning við gróðurhús Dillsins.“
Munngælur og músík
Ólafur Örn Ólafsson á Dill matreiðir ofan í gesti Menningarnætur.
Björg Þórhallsdóttir,
söngkona
Verð aðeins 11.700 krónur með gistingu, dagskrá og fullu fæði.
Nánari upplýsingar á www.kfum.is - Bókanir í síma 588 8899
Krydd í
tilveruna
Kvennaflokkur í Vindáshlíð 26.-28. ágúst 2011
Trúin er alþjóðleg
Sr. Sigrún Óskarsdóttir
Hannyrðir og sköpunarkraftur
Herdís Egilsdóttir
Salsa frá Baðhúsinu
Meðal dagskrárliða:
Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is
Er vagninn rafmagnslaus
Frístunda rafgeymar í miklu úrvali
?
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
ÞAÐ ERU
ENGIN HÖFT Í
VIÐSKIPTUM
Á VÍSI