Fréttablaðið - 16.09.2011, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Heilsudagar karla verða haldnir í Vatna-
skógi um helgina en þeir eru ætlaðir körlum
á aldrinum 17 til 99 ára. Tilgangurinn er að
styrkja líkama, sál og anda. Meðal dagskrár-
liða eru golfmót, innibolti, Müllersæfingar og
vinna í þágu Vatnaskógar. Sjá nánar á www.
kfum.is.
M
jólkurfræðingurinn
Þórarinn Þórhalls-
son hefur verið ötull
í vöruþróun undan-
farin ár. Hann stofnaði Osta-
húsið í Hafnarfirði fyrir nítján
árum, en það er þekkt fyrir
ýmsar nýjungar á markaði, eins
og ostarúllur og ýmsa eftirrétti.
Nýjustu afurðir Ostahússins eru
smurostar með fersku íslensku
grænmeti. „Hugmyndin kvikn-
aði fljótlega eftir að við sam-
einuðumst Í einum grænum,
dótturfélagi Sölufélags garð-
yrkjumanna, fyrir nokkrum
árum, en fljótlega eftir það sett-
um við fyllta sveppi með rjóma-
osti á markað. Okkur langaði að
blanda ostinum og grænmetinu
frekar saman og úr varð að við
réðumst í gerð smurostanna,“
segir Þórarinn.
Hann segir að vitanlega séu
til smurostar með papriku og
sveppum á markaði en að þeir
séu oftast unnir úr þurrkuðu
grænmeti og jafnvel grænmeti í
duftformi. „Í íslensku smurost-
unum er grænmetið ferskt. Það
hefur ekki verið reynt áður og er
ekki vitað um sams konar vöru á
markaði í Evrópu.“
Þórarinn segir bragðgæðin
ótvíræð en hlutfall grænmetisins
er um tuttugu prósent í ost-
inum. Þórarinn vill þó ekki
eigna sér allan heiðurinn og
segir mjólkurfræðinginn Jakob
Bjarnason einnig hafa lagt mikið
af mörkum.
Hann segir að smurostarnir
séu tilvaldir í alls kyns matar-
gerð og séu einnig góðir ofan á
kex og brauð.
Grænmetisbragðið skilar sér
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fiskur
6–800 g af íslensku spergilkáli
4 stk. íslenskar gulrætur
1 dós 180g af sveppasmurosti frá
Ostahúsinu
600 g af fiski að eigin vali
ólífuolía
salt og pipar
Hellið ólífu-
olíunni á
pönnu, dreifið
skornu græn-
metinu jafnt
yfir. Dreifið
smurostinum
í litlum bitum yfir grænmetið. Setjið
lokið yfir og eldið um stund við
lágan hita þar til grænmetið er orðið
meyrt. Raðið fiskbitunum ofan á
grænmetið og kryddið. Setjið lokið á
og eldið áfram við lágan hita í um
það bil tíu mínútur.
Kjúklingur
4 kjúklingabringur
1 rauð íslensk paprika
1 græn íslensk
paprika
1 gul íslensk paprika
4 íslenskar gulrætur
1 dós 180g papriku-
smurostur frá Ostahúsinu
matreiðslurjómi
ólífuolía
kjúklingakrydd eftir smekk
Hellið ólífuolíu í botninn á eldföstu
móti. Skerið kjúklingabringurnar
niður og raðið í mótið og kryddið.
Skerið grænmetið niður og dreifið
yfir kjúklinginn. Setjið paprikuostinn
í pott með matreiðslurjóma og
bræðið við lágan hita. Hellið yfir
grænmetið og kjúklinginn. Bakið
í ofni við 180°C í um það bil 30
mínútur.
FISKUR MEÐ SVEPPASMUROSTI
og kjúklingur með paprikusmurosti HVOR RÉTTUR FYRIR FJÓRA
Smurostur með fersku íslensku grænmeti er nýjasta afurð Þórarins Þórhallssonar hjá Ostahúsinu.