Fréttablaðið - 16.09.2011, Blaðsíða 24
4 föstudagur 16. september
Laugavegi 83
Kjólar margar gerðir
Verð 3.500 kr.
Disney Superman galli
Fleiri gerðir
Verð 1.790 kr.
Aladin-buxur
Verð 2.700 kr
Nýtt kortatímabil
Elva Björk Barkar-
dóttir er nýkomin heim
eftir ársdvöl í Kostaríku
þar sem hún var við nám
í Friðarháskóla Sam-
einuðu þjóðanna. Elva
hefur mikinn áhuga á
mannréttindum og talar
um dýravernd, ólíka
menningarheima og
fegurðarsamkeppnir við
Föstudag.
Viðtal: Álfrún Pálsdóttir
Myndir: Vilhelm Gunnarsson
E
lva Björk ólst upp í Breið-
holti en flutti í Garða-
bæinn á táningsárunum.
Hún nam lögfræði við
Háskóla Reykjavíkur og
er þessa dagana að leggja lokahönd
á mastersgráðu sína. Fyrir einu ári
gerði hún hlé á náminu í HR og fékk
inngöngu í Friðarháskóla Samein-
uðu þjóðanna þar sem hún stund-
aði mastersnám í alþjóðalögum og
mannréttindum.
KOSTARÍKA
„Ég var ekki lengi að ákveða að
flytja út enda hef ég kannski allt-
af verið svolítið fiðrildi í mér. Ég
heyrði fyrst af skólanum í gegnum
vinkonu mína, Þurý Björk sem var
nýbúin að sækja um skólann. Ég var
fljót að heillast af náminu, skólan-
um og ekki síst staðsetningunni,“
segir Elva, en skólanum er skipt í
nokkrar deildir en meginmarkmið
þeirra allra er að vinna saman í átt
að friði og halda uppi þeim grund-
vallarmarkmiðum sem finna má í
sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Elva segir að hún hafi verið fljót
að aðlagast umhverfinu í Kostaríku
þó það hafi vissulega tekið á að vera
langt í burtu frá fjölskyldu og vinum.
Kostaríka er gjarnan kallað Sviss
Mið-Ameríku og engin tilviljun að
landið hýsi Friðarháskólann.
„Kostaríka er dásamlegt land og
fólkið er yndislegt. Landið er her-
laust sem er óvanalegt á þessum
slóðum og stjórnvöld kjósa frekar
að eyða fjármunum sínum í heil-
brigðiskerfið, sem er mjög gott á
miðamerískan mælikvarða,” segir
Elva og bætir við að Kostaríka sé
líka mjög framarlega í endurvinnslu
og umhverfisvernd, sem kom henni
skemmtilega á óvart.
„Það eru flokkunarkerfi út um allt,
meira að segja í afskekktum fjalla-
þorpum var verið að flokka ruslið.
Það fannst mér frábært að sjá.“
NÁMIÐ
Í skólanum lagði Elva stund á al-
þjóðalög og mannréttindi en hún
hefur ávallt haft sterka réttlætis-
kennd, sem dró hana í lögfræðina
til að byrja með.
„Eftir að ég lauk grunnnámi í lög-
fræði hóf ég störf hjá SP-fjármögn-
un. Það starf var góður skóli fyrir
mig en ég var þó alltaf ákveðin í að
halda áfram námi og ég ákvað að
setjast aftur á skólabekk. Ég stóð
á ákveðnum tímamótum og lang-
aði að einbeita mér að því sem ég
hafði ástríðu fyrir og skipti í raun
algjörlega um stefnu. Ég fór úr við-
skiptalögfræði í alþjóðalögfræði
með áherslu á mannréttindi. Ég
er mjög ánægð með þá ákvörðun,“
segir hún sannfærandi en í Kosta-
ríku voru það samnemendur henn-
ar sem höfðu mestu áhrifin á hana.
Alls stunda 192 nemendur nám við
skólann og eru þeir frá 55 löndum.
„Það gaf mér mikinn innblástur
að kynnast fólki frá ólíkum menn-
ingarheimum og gott að ræða
við fólk sem hafði áhuga á svip-
uðum málefnum en með ólíkan
bakgrunn.“
MANNRÉTTINDI
Elva skrifaði lokaritgerðina sína í
skólanum um ríkið Palestínu og á
því mannréttindabarátta Palest-
ínumanna hug hennar allan.
„Ég hef lengi haft áhuga á mál-
efnum Palestínu og finnst það sem
þar á sér stað vera skólabókardæmi
um óréttlæti. Hvernig tilveruréttur
fólks og grundvallarmannréttindi
SPENNT AÐ TAKA
NÆSTA SKREF
Fiðrildi í sér Elva Björk Barkardóttir er nýkomin heim
eftir ársdvöl í Kostaríku þar sem hún var við nám í
mannréttindum og alþjóðalögum við Friðarháskóla
Sameinuðu þjóðanna.
FR
É
TT
A
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
E
LM
Fylgstu með
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband:
Sigríður Dagný í síma 512 5462 eða sigridurdagny@365.is
föstudagur
Tíska, fegurð, hönnun,
lífið, fólkið, menning
og allt um helgina framundan
Ég er þeirrar skoðunar að maður eigi
aldrei að sjá eftir neinu og standa með
því sem maður hefur gert.