Fréttablaðið - 23.09.2011, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.09.2011, Blaðsíða 8
23. september 2011 FÖSTUDAGUR8 Fyrirlestur Christopher Vasey Örlög og víðtæk lögmál sköpunarverksins 27. september 2011 kl. 20:00 Radisson Blu Saga Hotel v/Hagatorg, 107 Reykjavík Erindið verður flutt á ensku Aðgangseyrir 500 kr. Skipuleggjandi: Christof.Leuze@leuze.de Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum Arges PROFESSIONAL Einfasa rafstöð HD3800 Bensín m/rafstarti 3,2KW 87.900,- Ryk/blautsuga 15 lítrar HKV 1000w 18.900,- Slípirokkur HDA 436 1050w 7.490,- Rafhlöðuborvél, HDA2544 17.900,- Rafmagnsborvél, HDA 310 11.990,- 1 Hvað er Árni Johnsen að láta endurbyggja við Skálholt? 2 Hversu lengi hafa lögreglumenn verið án kjarasamninga? 3 Hvert er sögusvið nýrrar bókar Ólafs Jóhanns Ólafssonar? SVÖR 1. Þorláksbúð. 2. Tæpa 300 daga. 3. Sveitin Toscana á Ítalíu. IÐNAÐUR Félagið Soley Minerals vill leyfi frá Orkustofnun til að kanna hvort vinna megi seguljárn og fleiri málma af hafsbotni við Suðurland og í Héraðsflóa. Soley Minerals er dótturfélag ástralska námuvinnslufélagins Thielorr Sarl. Samkvæmt skýrslu Soley Minerals til Orkustofnunar hyggst félagið verja fimm árum til að kanna hvort seguljárn sé hér í vinnanlegu magni. Áætlað- ur kostnaður þau fimm ár er 800 til 2.200 milljónir króna. Félagið hyggst fá alþjóðlega fjárfesta að verkefninu og skrá síðan félagið í Kauphöllina. Soley Minerals ætlar að beita þeirri aðferð að sjúga upp sand af hafsbotni og ná seguljárninu úr honum með seglatækni. Vinn- anlegt magn er sagt þurfa að vera tíu prósent úr þeim sandi sem soginn er upp. Þegar sjálf vinnsl- an sé komin í gang sé áætlað að ná upp 250 þúsund tonnum af sandi í hverjum mánuði og vinsa úr honum um 25 þúsund tonn af málmi. Seguljárnið er ætlað til útflutn- ings. Nefnir Soley Minerals vax- andi hráefnisþörf til stálfram- leiðslu. Sérstaklega er bent á hin rísandi efnahagskerfi í Kína og á Indlandi. Ástralska fyrirtækið segir að hið gríðarlega magn af basalt- grjóti sem hér sé hafi hátt hlutfall af seguljárninu sem ber fræði- heitið magnetite. Málmurinn ber- ist með fljótum landsins til sjávar og brotni þar niður í þá stærð sem hentugt sé að vinna. Stærstu agn- irnar sem vinna á séu 3 millimetr- ar í þvermál. Hugsanleg vandamál segir Soley Minerals meðal annars vera að skilyrði í sjónum séu of erfið, að vinnanlegt magn seguljárns sé of lítið og að sandurinn sé of þéttur í sér til þess að hægt sé að beita áðurnefndri uppsogsaðferð. Vinnslan sjálf verður á pramma og utan netalaga, í minnst 115 metra fjarlægð frá stórstraums- fjöruborði. Eftir að málmurinn hefur verið skilinn frá er sand- inum skilað aftur á hafsbotninn. Málminum verður síðan annað- hvort komið fyrir á geymslu- pramma eða í landi þar til hann verður fluttur mánaðarlega á markað ytra. Heildarmagnið sem Soley Min- erals vill vinna af hafsbotni hér er þrjú hundruð milljónir tonna af málmi á einni öld. Reiknað er með að vinnslan standi í átta mánuði ár hvert. Unnið verði í Héraðsflóa á vorin og haustin þar sem meira skjól sé og fyrir utan Suðurland í fjóra mánuði þar á milli. „Skilningur okkar er sá að magnið af sandinum undan suð- urströndinni sé í raun ótakmark- að og að þykkt sandsins þar sé meiri en eitt hundrað metrar,“ segir í skýrslu Soley Minerals, sem kveðst hafa hug á að sækja um einkaleyfi til fjörutíu ára með möguleika á framlengingu ef niður staðan af rannsóknartíma- bilinu reynist hagfelld. „Verkefnið getur mögulega haft veruleg áhrif á íslenska hagkerf- ið,“ segir Soley Minerals. Útlit sé fyrir að störf skapist fyrir á bilinu fimmtíu til tvö hundruð manns eftir stærð verkefnisins sem síðan muni hafa ýmis margföldunar- áhrif. Jafnvel verði hægt að koma hér á laggirnar stálbræðslu þegar fram líða stundir. „Slík verksmiðja myndi framleiða lággæða stál sem síðan yrði flutt til Evrópu til frek- ari vinnslu í stálbræðslum þar.“ Sótt er um rannsóknarleyfið á grundvelli laga um eignarrétt ríkisins á auðlindum á hafsbotni. Tiltekin eru fjögur svæði undan suðurströndinni og eitt við Hér- aðsflóa. gar@frettabladid.is Seguljárn á hafsbotni dregur til sín Ástrala Ástralskt fyrirtæki vill leyfi frá ríkinu til að rannsaka hvort hagkvæmt sé að vinna seguljárn af hafsbotni við Ísland. Áætlar fyrirtækið að flutt verði út 25 þúsund tonn á mánuði í heila öld. Allt að tvö hundruð störf verði til hér á landi. FIMM VINNSLUSVÆÐI Ætlunin er að vinna seguljárn á Héraðsflóa þegar veður eru vályndari á haustin og vorin en undan suðurströndinni á sumrin. MYND/SOLEY MINERALS AÐFERÐIN Soga á sand af hafsbotni og skilja seguljárnið frá með seglum áður en sandinum er dælt aftur niður á botn. MYND/SOLEY MINERALS TILRAUNAPRAMMI Nota á litla pramma við sýnatökur fyrstu árin. 1 5 2 6 3 7 4 8 9 1 Sog á sjávarsandi á vinnslupramma 2 Vinnsla á sandi 3 Afgangssandi skilað aftur á hafsbotn 4 Geymsla málma 5 Vinnsluprammi 6 Sjávarborð 7 Sjórinn 8 Hafsbotn 9 Sjávarsandur Vinnsluaðferð fyrir sjávarsand Vinnsla seguljárns við strendur Íslands Svæði A Svæði B Svæði C Svæði D Svæði E STUÐNINGUR SKAPAR SIGURVEGARA INENDURSKINSMERK VITUNDARVIKA 18. - 25. SEPTEMBER ENDURSKINSMERKI KAUPUM ja takkATHYGLI FRAMKVÆMDIR Kirkjuráð hefur farið fram á að framkvæmdir við svonefnda Þorláksbúð við Skál- holtskirkju verði stöðvaðar tíma- bundið. Samtök áhugamanna um upp- byggingu Þorláksbúðar hafa unnið að gerð búðarinnar á tóftum eldri byggingar og var farið að hilla undir verklok. Kirkjuráð fékk hins vegar athugasemdir varðandi bygg- inguna, meðal annars frá afkom- endum Harðar Bjarnasonar, hönn- uðar Skálholtskirkju. Í viðtali við Fréttablaðið í gær sagði Áslaug, dóttir Harðar, að hún og bróðir hennar væru andsnúin byggingu búðarinnar svo nálægt kirkjunni. Á fundi kirkjuráðs í fyrra- kvöld samþykkti ráðið í ljósi athugasemdanna „að málið verði kannað hvað varðar deiliskipu- lag, höfundarréttindi vegna Skál- holtsdómkirkju, hvaða heimildir sveitarstjórn hefur veitt til fram- kvæmdanna og önnur atriði sem áhrif kunna að hafa“. Því var þeim tilmælum komið á framfæri að framkvæmdir við búðina yrðu stöðvaðar á meðan athugun færi fram. - þj FRESTA FRAMKVÆMDUM Kirkjuráð vill að framkvæmdum við Þorláksbúð verði frestað á meðan skorið er úr vafamálum sem tengjast þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Vafamál eru enn til staðar varðandi heimildir og leyfi við endurbyggingu Þorláksbúðar við Skálholtskirkju: Kirkjuráð vill fresta framkvæmdum við Skálholt VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.