Fréttablaðið - 23.09.2011, Side 28

Fréttablaðið - 23.09.2011, Side 28
6 föstudagur 23. september Alexía Björg Jóhannesdóttir leik- kona hefur slegið í gegn í hlutverki Nonna Bö í leiksýningunni Uppnámi sem sýnd er í Leikhús- kjallaranum. Hún segist vera Hólmari og Hafn- firðingur og er komin af ætt Víkurgötuvarganna. Viðtal: Sara McMahon Myndir: Anton Brink É g er fædd í Stykkis- hólmi, fallegasta bæ á Íslandi, og bjó þar fyrstu sjö árin, flutti svo í skamman tíma á Ísafjörð og eftir það ól ég mann- inn í Hafnarfirði og er því Hafn- firðingur og Hólmari. Stykkis- hólmur er mér þó sérstaklega kær og þar á ég mjög stóra fjöl- skyldu. Pabbi á tíu systkini og þau voru kölluð Víkurgötuvargarnir því þau ólust upp á Víkurgötu,“ segir Alexía Foreldrar hennar búa nú í Búð- ardal þar sem pabbi hennar starf- ar sem lögreglumaður og mamma hennar vinnur við grunnskólann. Alexía á tvo eldri bræður sem hún segist hafa orðið óspart fyrir barðinu á þegar hún var yngri. „Annar bróðir minn er bóndi og rekur býli með hestum, hænum, rollum og hvað eina en hinn bróðir minn er verslunarstjóri í bænum. Þannig að við systkinin höfum öll valið okkur mjög ólíkan starfvett- vang.“ SETTI UPP TÍSKUSÝNINGAR Alexía fékk snemma mikinn áhuga á leiklist og gekk til liðs við unglingadeild Leikfélags Hafnar- fjarðar þegar hún var fjórtán ára. Hún starfaði svo innan leikfélags- ins í níu ár eða allt þar til hún hóf nám í leiklist við Arts Educati onal í London. „Þegar ég var yngri tók ég þátt í öllum skólaleikritum og fannst athygli hreint ekki leiðin- leg. Ég gat verið alveg óþolandi þegar vinir foreldra minna komu í heimsókn og hélt þá tískusýning- ar fyrir þá. En ég smitaðist fyrst af alvöru af leiklistarbakteríunni þegar ég gekk til liðs við Leikfélag Hafnarfjarðar og ég held að tími minn þar hafi verið ofsalega góður grunnur fyrir leiklistarnámið.“ Arts Educational hélt prufur hér á landi og var Alexía ein af sex Íslendingum sem fengu inn- göngu í leiklistardeild skólans. Hún varð sér úti um lán fyrir nám- inu og hélt því næst út á vit ævin- týranna. „Kennararnir lögðu mjög mikið upp úr því að við lærðum enskuna almennilega og töluð- um með almennilegum breskum hreim. Við vorum í endalausum aukatímum til að ná almenni- legum tökum á tungumálinu. Ég man að á öðru árinu mínu skipaði rússneskur kennari mér að læra muninn á framburði s, sh og z yfir helgina. Ef ég næði því ekki yrði ég aðeins sett í hlutverk þjónustu- stúlkunnar á lokaárinu. Þannig að ég eyddi helginni í að þylja upp „She sells sea-shells by the sea- shore. The sea-shells she sells are sea-shells I‘m sure“ og náði þessu að lokum,“ rifjar Alexía upp. Að útskrift lokinni ákvað hún að dvelja áfram í London og reyna fyrir sér í leiklistinni þar. „Mán- uðina eftir útskrift var ég verk- efnalaus leikkona sem vann á kvöldin á sveittum enskum bar. Lífið í London var allt öðruvísi eftir útskrift. Bekkurinn minn hafði splundrast í allar áttir og allt í einu var maður einn eftir, dapur og ein- mana að vinna á bar og þá ákvað ég að flytja heim.“ DRAUMAHLUTVERKIÐ EKKI BUNDIÐ VIÐ KYN Við heimkomuna beið hennar hlutverk í leikritinu Saumastof- unni og síðar setti Alexía upp sýn- inguna Riðið inn í sólarlagið ásamt bekkjarsystur sinni. Sýningin fékk góða dóma en fékk þrátt fyrir það dræma aðsókn. „Við sem stóðum að sýningunni enduðum með tvær milljónir í mínus. Við vorum ung og gröð á þessum tíma og þráð- um ekkert annað en að leika. Við fórum í samstarf við Borgarleik- húsið en fengum enga styrki og enduðum því í brjáluðum mínus þegar sýningin stóð ekki undir sér. En maður sér ekki eftir því að hafa sett sýninguna upp. Pening- ur er bara peningur.“ Alexía er nú verkefnabundin hjá Borgarleikhúsinu og tekur þátt í tveimur uppsetningum í leikhús- inu í vetur, Beðið eftir Godot og Kirsuberjatrénu. „Það eru átta ár síðan ég útskrifaðist og allt í einu núna er allt að gerast, þannig að það eru spennandi tímar fram undan. Beðið eftir Godot er mikil klassík og við Sólveig Guðmunds- dóttir fengum þá hugmynd að Pörupiltarnir okkar myndu setja þá sýningu upp,“ segir Alexía og á þar við pörupiltana Nonna Bö og Dóra Maack sem koma fram í Uppnámi sem sýnt er í Þjóðleik- húskjallaranum út september. Spurð út í sitt fyrsta stóra hlut- verk segir Alexía það hafa verið aðalhlutverkið í Frúnni frá hafinu eftir Henrik Ibsen, en sýningin var jafnframt útskriftarsýning henn- ar frá Arts-ED. „Mér þykir ofsalega vænt um það hlutverk enda barð- ist ég mikið fyrir því. Við þurftum að fara í prufur fyrir sýninguna og eftir tveggja vikna bið var lista skellt upp á vegg þar sem fram kom hver átti að leika hvaða hlut- verk. Margir fóru að gráta en ég grét af gleði og öskraði af ham- ingju. Þetta var svolítið eins og sena úr kvikmyndinni Fame.“ Aðspurð segist Alexía ekki eiga sér neitt draumahlutverk og tekur fram að persóna pörupiltsins Nonna Bö hafi opnað fyrir henni áður óþekktar víddir innan leik- listarinnar. „Draumahlutverkið þarf ekki endilega að vera kven- hlutverk, ég gæti allt eins leikið karlmann. Þannig að möguleik- arnir eru óendanlegir,“ segir hún og brosir. SONURINN SVER SIG Í VÍKURGÖTUVARGSÆTTINA Alexía giftist alþingismanninum Guðmundi Steingrímssyni við fal- lega athöfn í sumar. Parið á saman tveggja ára gamlan son auk þess sem Guðmundur á sjö ára dóttur frá fyrra sambandi. Systkinin eru að sögn Alexíu mjög ólík og mun sonurinn sverja sig í Víkurgötu- vargsættina svokölluðu. „Systk- inin eru mjög ólík en bæði mikl- ir snillingar. Edda Liv er hvers manns hugljúfi og ofsalega góð stór systir. Jóhannes Hermann er aftur á móti mikill vargur en líka rosalega ljúfur og mikið fyrir faðmlög. Hann er reyndar svolítill kraftakarl og slasar mig stundum óvart með faðmlögunum. Um dag- inn gaf hann mér blóðnasir eftir eitt faðmlagið og á meðgöngunni rifbeinsbraut hann mig því hann sparkaði svo fast.“ NONNI BÖ OPNAÐI NÝJAR V BJART FRAMUNDAN Alexía Björg Jóhannesdóttir, leikkona, tekur þátt í tveimur uppsetningum í Borgarleikhúsinu í vetur, Beðið eftir Godot gegn í hlutverki pörupiltsins Nonna Bö í leiksýningunni Uppnám. ROSEBERRY Nýtt og áhrifaríkt efni fyrir þvagfærin ROSEBERRY inniheldur þykkni úr trönuberjum ásamt hibiscus og C-vítamíni. Þessi þrívirka blanda hefur reynst vel við þvagfæravandandamálum. 2-3 töflur á dag fyrir svefn Fæst í apótekum heilsu- búðum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Innflutningsaðili: Öflugt þrívirkt fæðubótarefni sem slegið hefur í gegn á Norðurlöndunum Ranka ráðagóða Til þess að halda sér frá þvagfæra- vandamálum er m.a. gott að drekka nóg af vatni, hreyfa sig reglulega, þrífa sig vel eftir klóset tferðir og eftir samlíf. KYNNINGARAFSLÁTTUR til 31. ágúst nk. 20% Þegar ég var yngri tók ég þátt í öllum skólaleikritum og fannst athygli hreint ekki leiðinleg. Ég gat verið alveg óþolandi þegar vinir foreldra minna komu í heimsókn og hélt þá tískusýningar fyrir þau.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.