Fréttablaðið - 23.09.2011, Page 31
Kynningarblað Íslenskt hugvit, lífrænt og náttúrulegt,
fitubrennsluefni, vinsæl vörumerki, ströng gæðaskilyrði, gott úrval
VÍTAMÍN
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2011
&BÆTIEFNI
Við höfum verið umboðsað-ilar fyrir Hydroxycut-fitu-brennsluefnin í tíu ár og
hafa þau verið vinsælustu fitu-
brennsluefnin á Íslandi allar götur
síðan. Fyrir nokkrum árum kom á
markað erlendis ný og sterkari út-
gáfa sem heitir Hydroxycut Hard-
core. Hún var leyfð alls staðar í Evr-
ópu en það var ekki fyrr en í síðasta
mánuði sem við fengum samþykki
matvælaeftirlitsins eftir að hafa
lagt fram alls kyns gögn og sann-
anir um að það væri fullkomlega
hættulaust. Það er nú viðurkennt
af Heilbrigðiseftirlitinu, Lyfjaeftir-
litinu og Matvælastofnun eins
og önnur fæðubótarefni sem við
seljum,“ segir Svavar Jóhannsson,
eigandi Fitness Sport.
Fyrir þremur árum lét Svav-
ar gera Gallup-könnun þar sem í
ljós kom að 70 prósent þeirra sem
notuðu fitubrennsluefni völdu
Hydroxycut. „Síðustu ár hefur
síðan verið mikill áhugi fyrir
Hydroxycut Hardcore, en það er
vinsælasta fitubrennsluefnið í
Bandaríkjunum og margir þekkja
til þess. Það er því gaman að geta
loksins haft það á boðstólum.“
En hvernig virkar efnið? „Það
eykur hitastig líkamans og þar af
leiðandi eykst grunnbrennslan,
sem þýðir á mannamáli að fólk
brennir f leiri hitaeiningum en
ella. Fólk léttist að jafnaði um hálft
til eitt kíló á viku. Um leið dregur
efnið úr matarlyst og sykurlöngun,“
útskýrir Svavar.
Fitness Sport, sem er til húsa að
Faxafeni 8, er þrettán ára gömul
verslun. „Þó að það teljist kannski
ekki hár aldur erum við með þeim
elstu í bransanum, enda er fæðu-
bótarbransinn ekki gamall hér á
landi. Við flytjum inn fæðubótar-
efni, æfingatæki og allt sem snýr
að líkamsrækt. Þá erum við með
heildverslun og seljum vörur okkar
um allt land.“
Svavar segir starfsmenn Fitness
Sport leggja ríka áherslu á að leið-
beina viðskiptavinum með hvern-
ig sé best að nota vörurnar. „Fólk
langar kannski að kaupa kreatín,
prótín eða fitubrennsluefni til að
hjálpa sér í ræktinni en veit ekki
hvernig er best að taka það inn.
Fólk hefur mismunandi markmið
og vilja sumir þyngjast á meðan
aðrir vilja léttast. Við ráðleggjum
fólki hvenær best er að taka efnin
inn og hvernig er best að gera það
með tilliti til æfinga og mataræðis.“
En er nauðsynlegt að taka inn
fæðubótarefni? Er ekki alveg eins
hægt að borða næringarríkan mat?
„Ég er einmitt oft spurður að þessu
og svarið er nei, það er ekki nauð-
synlegt að taka inn fæðubótarefni.
Það er hægt að fá það sem til þarf úr
matnum en því miður er matar æði
flestra ekki nærri því jafn næring-
arríkt, og umfram allt prótín ríkt,
og það var fyrir nokkrum áratug-
um þegar fólk borðaði mun meiri
fisk, egg og kjöt. Nú er mun meira
um næringarsnauðan mat og því
getur verið nauðsynlegt fyrir þá
sem æfa mikið að bæta við sig. Það
er hægt að ná sama árangri með
því að borða góðan mat en það
tekur lengri tíma. Fæðubótarefn-
in flýta fyrir árangrinum og eru því
skemmtilega hvetjandi.“
Fæðubótarefnin
flýta fyrir
árangrinum og eru því
skemmtilega hvetjandi.
CELLTECH
Vinsælasta
kreatínblandan
okkar og það allra
besta ef ætlunin
er að styrkjast og
byggja upp vöðva
á methraða.
MUTANT MASS
Þyngingarprótín
fyrir þá sem eiga
erfitt með að bæta
á sig þyngd eða
eru að stíga upp úr
veikindum og þurfa að
ná upp þreki og styrk.
ISOSTAR
Kolvetnablanda í
hæsta gæðaflokki fyrir
hlaupara, göngufólk
og alla þá sem þurfa
að komast í gegnum
langar og erfiðar
æfingar.
MYOFUSION
Hreint prótín
með frábæru
bragði. Hentar vel
eftir æfingu eða í
stað máltíðar. Til-
valið til að búa til
hollustudrykk.
HYDROXYCUT
HARDCORE
Söluhæsta
brennsluefni í heim-
inum síðastliðin 10 ár.
Algengt þyngdartap
er 1-2 kíló á viku.
Hydroxycut
Hardcore
loksins fáanlegt
á Íslandi
Fitubrennsluefnið Hydroxycut Hardcore, sem er söluhæsta
brennsluefni í heimi, er nú fáanlegt í Fitness Sport.
Nokkur ár hefur tekið að fá það samþykkt en nú eru öll
tilskilin leyfi fyrir hendi.
Svavar leggur ríka áherslu á að segja viðskiptavinum hvernig á að nota vörurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM