Fréttablaðið - 23.09.2011, Síða 52
23. september 2011 FÖSTUDAGUR28
Miðasala í síma 563 4000 - www.gamlabio.is
Frumsýnt í kvöld Frumsýnt í októberForsala miða hefst í dag
Opnunarafsláttur út vikuna
EITT FALLEGASTA LEIKHÚS
REYKJAVÍKUR OPNAR Í KVÖLD
GÓÐA SKEMMTUN Í VETUR!
28
menning@frettabladid.is
Nemendaleikhús Listahá-
skóla Íslands frumsýnir
Á botninum eftir Maxim
Gorkí í Smiðjunni í kvöld
í leikstjórn Rúnars Guð-
brandssonar.
Rúnar Guðbrandsson leikstjóri
leikritsins Á botninum segir
leikrit Maxims Gorkí eiga brýnt
erindi við samtímann, þrátt fyrir
að vera rúmlega aldargamalt.
„Sama hvernig veröldin þróast
og tímarnir breytast eru alltaf
einhverjir á botninum. Verkið
sýnir heim hinna heimilislausu
og þeirra sem hafa orðið útundan
í harðri lífskjarabaráttu heims-
ins.“ Leikritið, sem sýnt er í leik-
gerð Megasar, verður frumsýnt
í Nemendaleikhúsi Listaháskóla
Íslands í kvöld og er fyrsta upp-
færsla vetrarins af þremur hjá
Nemendaleikhúsinu.
„Leikritið er byggt upp af
sterkum mannlýsingum og sam-
skiptum ólíkra persóna. Hlut-
verkin eru sautján talsins og er
ekkert eiginlegt aðalhlutverk í
sýningunni. Hlutverkin eru frem-
ur jöfn og vegna fjölda þeirra fá
mörg leikaraefnin að glíma við
tvö mismunandi hlutverk,“ segir
Rúnar.
Útskriftarhópurinn telur tíu
verðandi leikara. Þeir eru Hjört-
ur Jóhann Jónsson, Kolbeinn Arn-
björnsson, Olga Sonja Thoraren-
sen, Ólöf Haraldsdóttir, Pétur
Ármannsson, Saga Garðarsdóttir,
Sara Margrét Nordahl, Sigurður
Þór Óskarsson, Snorri Engilberts-
son og Tinna Sverrisdóttir.
Leikritið Na-dné, þýtt Á botn-
inum, var frumsýnt í Listaleik-
húsinu í Moskvu 18. desember
1902 í leikstjórn
Konstantíns
Stanislavskí. Á
liðinni öld hefur
verkið verið
leikið reglulega
um heim allan
og verið útsett
fyrir leiksvið,
sjónvarp og
hvíta tjaldið.
Leikverkið
hefur verið sett upp tvívegis af
atvinnumönnum hér á landi. Fyrst
í Þjóðleikhúsinu árið 1976, þar sem
listrænir stjórnendur voru fengn-
ir frá Sovétríkjunum. Sú sýning, í
leikstjórn Viktors Strinzhov, þótti
marka tímamót. Verkið bar þá
heitið Náttbólið í þýðingu Halldórs
Stefánssonar.
Haustið 1995 setti Íslenska leik-
húsið verkið á svið í Lindarbæ í
leikstjórn Þórarins Eyfjörð. Þýð-
ing var í höndum Megasar og verk-
ið kallað Í djúpi daganna. Þar lét
ný kynslóð íslenskra leikara að
sér kveða, líkt og nú í uppsetningu
Nemendaleikhússins.
Björn Halldór Helgason sér um
tónlist og hljóðmynd, Eva Signý
Berger hefur umsjón með leik-
mynd- og búningahönnun og Egill
Ingibergsson annast lýsingu og
tæknistjórn. Sýningin hefst klukk-
an átta í kvöld í Smiðjunni, leik-
húsi Listaháskólans við Sölvhóls-
götu 13. hallfridur@frettabladid.is
TÍU LEIKARAEFNI LIFA Á BOTNINUM
RÚNAR
GUÐBRANDSSON
LEIKHÓPUR NEMENDALEIKHÚSSINS Verkið leggur áherslu á samskipti sterkra og ólíkra persóna, sem allar lifa á botninum.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 23. september 2011
➜ Tónleikar
20.30 Bubbi Morthens heldur tónleika
í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Miðaverð er
kr. 2.500.
21.30 Svissneska hljómsveitin
Bluegrass Gang heldur tónleika á Café
Rosenberg. Miðaverð er kr. 1.500.
22.00 Tónleikar með Pétri Ben og
Eberg á Faktorý. Miðaverð er kr. 1.500.
22.00 Kvikmyndahátíðin Riff stendur
fyrir tónleikum á Bakkusi, þar sem raf-
tónlist og myndlist sameinast. Þeir sem
koma fram eru Þóranna Björnsdóttir,
Barbara Ellison, Sigtryggur Egilsson,
Máni Sigfússon og hljómsveitin Stillupp-
steypa. Aðgangur er ókeypis.
23.30 Hljómsveitin Vax heldur tónleika
á Vesturslóð í Edinborgarhúsinu á
Ísafirði. Miðaverð er kr. 1.200.
➜ Leiklist
19.00 Leikverkið Fjalla-Eyvindur er
sýnt í Rýminu á Akureyri. Miðaverð er
kr. 2.900.
19.00 Sýningin Hárið er sýnd í salnum
Norðurljós í Hörpu. Miðaverð er kr.
3.950.
20.00 Leiksýningin Alvöru menn er
sýnd í Austurbæ. Miðaverð er kr. 3.500.
22.00 Sýningin Uppnám með Pöru-
piltum og tvíeykinu Viggó og Víóletta
er sýnd í Þjóðleikhúskjallaranum. Miða-
verð er kr. 2.900.
➜ Námstefna
13.00 Námstefnan Lærum og leikum
með hljóðin er haldin á Grand Hóteli.
Bryndís Guðmundsdóttur, talmeina-
fræðingur, fjallar um undirbúning fyrir
rétta hljóðmyndun og hvernig megi
styrkja undirbúningsfærni fyrir lestur.
Aðgangseyrir er kr. 7.500 en ókeypis
aðgangur fyrir börn.
➜ Erindi
12.00 Dr. Rosa Balfour, fræðimaður
og ráðgjafi við European Policy Centre í
Brussel, heldur erindi í stofu 201 í Odda
í Háskóla Íslands.
➜ Sýningar
10.00 Sýningin Sæta langa sumardaga,
með verkum grafíska hönnuðarins Þór-
dísar Claessen verður opnuð á Mokka.
Sýningin mun standa til 20. október.
➜ Doktorsvörn
13.30 Erla Hulda Halldórsdóttir ver
doktorsritgerð sína Nútímans konur.
Menntun kvenna og mótun kyngervis á
Íslandi 1850 til 1903. Doktorsvörnin fer
fram í Hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla
Íslands.
➜ Kvikmyndir
22.00 Í tilefni kvikmyndahátíðarinnar
Riff er myndin Dead Snow sýnd á
Prikinu. Ókeypis aðgangur.
➜ Kvikmyndahátíð
14.00 Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í
Reykjavík, RIFF, sýnir fjölda kvikmynda í
Bíói Paradís. Nánari upplýsingar á riff.is.
➜ Tónlist
22.00 Plötusnúðurinn KGB þeytir
skífum á Kaffibarnum.
22.00 DJ Atli Kanilsnúður spilar á
Faktorý.
23.00 DJ Hashi stjórnar tónlistinni á
Bakkus.
23.00 DJ Krúsi þeytir skífum á Prikinu.
➜ Fyrirlestrar
12.05 Hönnuðurinn Yurko Gutsulyak
heldur fyrirlestur í Opna listaháskólan-
um, í stofu 113 í Skipholti 1. Fyrirlestur-
inn er á ensku og eru allir velkomnir.
14.00 Hlynur Hallsson heldur fyrir-
lestur sem ber titilinn Sýningarstjórn og
samfélagsrýni í Ketilhúsinu í Listagilinu
á Akureyri. Aðgangur er ókeypis.
➜ Eldri borgarar
9.30 Korpúlfarnir, samtök eldri borgara
í Grafarvogi standa fyrir sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug og listasmiðju á
Korpúlfsstöðum sem hefst kl. 13.30.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
VEGNA MIKILLAR AÐSÓKNAR hefur verið ákveðið að framlengja sýningu Önnu Hallin og Olgu Bergmann í Kling og Bang galleríi um
eina helgi. Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 25. september. Anna og Olga deila sameiginlegum áhuga á þróunarkenningum, líffræði, erfða-
fræði, vistkerfum og félagslegri hegðun og hafa allt frá árinu 2003 unnið verk og sýningar í samstarfi. Á sýningunni sem þær kalla Gárur eru óræðar
postulínsverur í aðalhlutverki. Kling og Bang gallerí er til húsa að Hverfisgötu 42 og opið fimmtudaga til sunnudaga milli klukkan 14 og 18.