Faxi - 01.12.1963, Side 6
og myndarleg, hún lézt fyrir aldur fram.
Dóttir þeirra Guðnýjar og Þorsteins auk
fleiri barna var Helga fósturdóttir Helgu
og Guðna á Vatnsnesi, síðar Jóhanna og
Bjarnfríður, hón giftist Fal Guðmundssyni
útgerðarmanni í Keflavík, en hann var
einnig að nokkru leyti alinn upp á Vatns-
nesi. Helga er nú ekkja og býr í húsi sínu
á Vatnsnesvegi 17.
Þá er ótalin enn ein fósturdóttir þeirra
Helgu og Guðna en það er Guðjóna Sæ-
mundsdóttir kona Sigurðar bónda í As-
garði á Garðkskaga Kristjánssonar. Hún
ólst að öllu leyti upp á Vatnsnesi. Dóttir
hennar er Björg kennari kona Ragnars
kennara Guðleifssonar í Keflavík.
Fleiri börn voru þar til skemmri dvalar
og mun Vatnsnesheimilið, í tíð þeirra
Helgu og Guðna, sjaldan eða aldrei hafa
verið barnlaust.
Einkasonur þeirra Vatnsneshjóna var
Sigfús Jóhann fæddur 23. mai 1884 í
Bakkakoti í Leiru.
Hann tók við jörð og búi af foreldrum
sínum, er þau voru orðin aldurhnígin,
gátu þau þá dregið sig út úr amstri dag-
anna og undu því hlutskipti vel. Jóhann
sonur þeirra var yndi þeirra og augasteinn,
enda ágætur sonur. Gæfan var þeim svo
hliðholl að gefa þeim þá ágætustu tengda-
dóttur, sem hugsast gat, Bjarnfríði Sig-
urðardóttur, sem ennþá býr á Vatnsnesi.
Er það allra manna mál, sem hana þekkja
fyrr og síðar að þar fari góð og göfug kona,
hógvær, háttprúð og festuleg stillingar-
kona.
Jóhann var dugnaðarmaður, mikilvirk-
ur til allra starfa og ágæt skytta. Hann
græddi út stærðartún niður í móunum
fyrir ofan Litla-Vatnsnes, var sú nýrækt
mikið stærri en gamla Vatnsnestúnið. Jó-
hann setti einnig á stofn timburverzlun og
rak hana af dugnaði og fyrirhyggju. Þá
rak hann einnig mótorbátaútgerð svo sem
faðir hans. En Guðni var einn þeirra er
sameinuðust um fyrsta mótorbátinn, sem
kom til Keflavíkur, svo og einn af stofn-
endum sparisjóðsins þar.
Bjarnfríður á Vatnsnesi er fædd í Innri-
Njarðvík 20. ágúst 1889. Voru foreldrar
hennar Sigurður Jónsson og kona hans
Sigríður Bjarnadóttir, höfðu þau gifzt 26.
nóv. 1887. Þau fluttu brátt að Þórukoti í
Ytri-Njarðvík og voru þar leigjendur eða
sem þá var kallað húsfólk, en Sigríður var
alsystir bóndans í Þórukoti, Þorleifs Bjarna-
sonar, merkismanns, voru þau börn Bjarna
Bjarnasonar er bjó í Tjarnarkoti við Innri-
Njarðvík og konu hans Guðrúnar Árna-
dóttur bónda í Stapakoti, f. 1783, d. 16.
nóv. 1843, Kárasonar.
Sigurður faðir Bjarnfríðar var borgfirð-
ingur, fæddur 17. sept. 1851 á Tandraseli,
Borgarhreppi í Mýrasýslu. Faðir hans var
Jón bóndi þar, hreppstjóri, skáld og al-
þingismaður f. 21. nóv. 1808, d. 9. apríl
1862, Sigurðsson. Móðir Sigurðar var Guð-
björg Sigurðardóttir vinnukona í Tandra-
seli f. 27. maí 1829 í Stapaseli í Stafholts-
sókn, dóttir Sigurðar bónda þar, Jónsson-
ar og konu lians Valgerðar Þorgeirsdóttur.
Kona Jóns hreppstjóra í Tandraseli var
Guðrún Teitsdóttir frá Fremri-Hrafna-
björgum í Hörðudal. Hvort hún hefur
ávítað bónda sinn er ekki vitað, en í hús-
freyjusessi sat hún eftir sem áður og tveim
dögum eftir að sveinninn fæddist tók hún
hann í arma sína og hélt honum undir
skírn, síðan tók hún barnið til fósturs.
En Guðbjörg fór næsta vor frá Tandra-
seli.
Þau Sigríður Bjarnadóttir og Sigurður
Jónsson bjuggu nú í Þórukoti og varð
fjögurra barna auðið, tvö þeirra dóu í
æsku. Yngstur var Jón. Sumarið 1898 fór
Sigurður í kaupavinnu upp í Borgarfjörð.
Á heimleið um haustið kom Sigurður við
á Akranesi, heimsótti hann Valgerði há'f-
systur sína sem bjó þar. Þá veiktist hann
af lungnabólgu og andaðist þar 12. sept.
1898, fór útför Iians fram á Akranesi 24.
sept. Albróðir Sigríðar og Þorleifs í Þóru-
koti var Arni bóndi í Vogi á Mýrum.
Kona hans var Rannveig Sigríður Helga-
dóttir dbrm. i Vogi, Helgasonar. Þau
Vogahjón buðu nú Sigríði fóstur fyrir Jón
son hennar og fór hún með hann að Vogi
þá þegar en Bjarnfríði tóku þau Þóru-
kotshjón Þorleifur og Gróa og ólu hana
upp eins og sín börn. En Sigríður var á
vist með bræðrum sínum ýmist í Vogi
eða Þórukoti þar til hún fluttist að Vatns-
nesi til Bjarnfríðar dóttur sinnar og átti
þar heima þar til yfir lauk.
Gömlu Vatnsneshjónin, Guðni Jónsson
og Helga Vigfúsdóttir létust bæði á Vatns-
nesi, Guðni 28. nóv. 1922 og Helga 25.
júní 1929. Hafði hjónaband þeirra verið
með afbrigðum gott.
Jóhann Guðnason á Vatnsnesi andaðist
18. nóv. 1946 í híls'ysi er varð á leiðinni
milli Reykjavíkur og Kef’.avíkur.
Fósturdætur Bjarnfríðar og Jóhanns eru:
Sigríður Jónsdóttir, bróðurdóttir Bjarn-
fríðar, frú í Keflavík, gift Jóhanni Hjart-
arsyni húsasmið í Keflavík, og Kristín
Guðmundsdóttir kona Guðmundar Ofeigs-
sonar skrifstofustjóra í Reykjavík.
1
FLUGVALLARLEIGAN SF.
GÓNHÓL, YTRÍ-NJARÐVÍK - - SÍMÍ 1950
162 — F A X I