Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1963, Blaðsíða 7

Faxi - 01.12.1963, Blaðsíða 7
Félag barnakennara á Reykjanesi 2 5 ára Félag barnakennara á Reykjanesi minntist 25 ára afmælis síns með samkvæmi í Aðalveri í Kcflavík, sunnudaginn 24. nóvember. Samkvæmið hófst með borðhaldi klukkan 8 e. h. og sátu það kennarar af fé- lagssvæðinu, en það nær yfir öll Suðurnes sunnan Hafnarfjarðar. Formaður félagsstjómar, Hermann Eiríksson, stýrði liófinu en ritari félagsins. Hallgrímur Th. Björnsson flutti minni afmælisbarnsins. Auk þeirra tók til máls við þetta tækifæri, heiðursgestur félagsins, Bjarni M. Jónsson námsstjóri, er flutti því heillaóskir. Er hin bráðsnjalla ræða námsstjórans einnig birt hér í blaðinu. Meðan setið var undir borðum léku þeir Guðmundur Norðdahl og Erlingur Jónsson á píanó og fiðlu samkvæmisgestum til mikillar ununar. Karl Steinar Guðnason sá um skemmtiþátt. — Eftir að borð voru upp tekin var stiginn dans til kl. 1 og skemmtu allir sér mjög vel. í tilefni af afmælinu bárust félaginu blóm og hlýjar kveðjur, sem veizlu- stjóri las upp og þakkaði. Þótti afmælishóf þetta takast vel og vcra hið ánægju- legasta. Hallgrímur Th. Björnsson rekur þróunarsögu félagsins í afmælishófinu 24. nóvember síðasliðinn Háttvirta samkoma, ágæti námsstjóri, Bjarni M. Jónsson, kæru stéttarsystkini og aðrir góðir gestir! Mér hefur verið falið að rifja hér upp 1 stórum dráttum ævisögu afmælisbarns- ms, Félags barnakennara á Reykjanesi, sem nú er réttra 25 ára og sá fyrst dagsins Ijós haustið 1938. Þar sem ég er einn af stofnfélögum þessa ágæta félagsskapar, er mér einkar Ijúft að verða við þ essum tilmælum og fá þannig tækifæri til að ganga á vit liðinna daga og rifja upp hugstæðar minningar fra fundarhöldum og öðru félagsstarfi 'nnan þessara vébanda. Fyrst er þá þar til að taka, að sunnu- daginn 30. októ'ber 1938, boðuðu skóla- stjorarnir, Guðmundur Guðmundsson í Keflavík og Valdimar Össurarson í Sand- gerði, til fundar í Keflavík alla starfandi kennara á Reykjanesi sunnan Hafnar- fjarðar. Á þessum fundi mættu kennarar ór Sandgerði, Garði, Keflavík og Höfn- um. Var fundarefni fyrst og fremst að ræða möguleika á stofnun kennarafélags íyrir kennara í Gullbringusýslu sunnan Hafnarfjarðar. Fundarstjóri á fundi þessum var Guðm. Guðmundsson, ritari Valtýr Guðjónsson, e» framsögu í málinu hafði einn aðal- hvatamaðurinn, Valdimar Össurarson. — Upplýst var á fundinum, að kennarar úr Hrindavík og af Vatnsleysuströnd hefðu tjáð sig reiðubúna að taka þátt í félags- stofnuninni, enda þótt þeir ekki gætu niætt á þessum fundi. Hallgrímur Th. Björnsson. Að loknu erindi Valdimars og nokkrum umræðum um málið, var félagið stofnað og eftirtaldir menn kosnir í stjórn: Guð- mundur Guðmundsson, Valdimar Össur- arson og Valtýr Guðjónsson. Skipti stjórn- in þannig með sér verkum, að Guðmund- ur varð formaður, Valdimar ritari og Val- týr gjaldkeri. Ef marka má af fundargerðum félags- ins, virðist hafa verið full þörf fyrir slíkan félagsskap, því til viðbótar við sjálfa fé- lagsstofnunina, sem mörgum kynni að hafa þótt vera ærið nóg fundarefni, voru þrjú veigamikil og merkileg mál rædd á fundinum. Framsögu í öllum þessum mál- um hafði Valdimar. I fyrstu framsögunni sagði hann frá því, að á kennaraþingi þá um vorið hafi verið samþykkt að halda ári síðar upp á 50 ára afmæli kennarasam- takanna í landinu eða vorið 1939 og hefði í því sambandi verið rætt um að kennarar víðs vegar um landið yrðu hvattir til að taka þátt í þessum hátíðahöldum, t. d. með því, að skólar þeirra sýndu muni á væntanlegri skólasýningu í Reykjavík, sendu þangað fimleikaflokka eða söng- flokka. Vildi Valdimar að kennarar á Suðurnesjum reyndu að undirbúa skóla sína til einhverrar þátttöku í þessum fyrir- huguðu hátíðahöldum. Tóku fundarmenn undir þetta og töldu æskilegt að af því gæti orðið, en drógu þó jafnframt mjög í efa að það mundi takast, og þá fyrst og fremst vegna fámennis í skólunum. Er málið hafði verið rætt nokkuð, bar Valdi- mar fram eftirfarandi tillögu, sem var sam- þykkt samhljóða: — Geri að tillögu minni, að skólar á Reykjanesi geri tilraun til þess að taka þátt í sameiginlegri skólasýningu á 50 ára afmælishátíðinni á næsta ári og kjósi tvo men-n til þess að athuga möguleika á því og sjá um framkvæmdir, ef nægilegt sýn- ingarefni er fyrir hendi og skólarnir fá sérstaka stofu á sýningunni. — Samkvæmt tillögunni voru þeir Valdi- mar og Valtýr kosnir. Þess má svo geta hér, að af þátttöku í þessari sýningu af hálfu skólanna hér á Suðurnesjum varð aldrei, sem eingöngu stafaði af því, að þegar til kom, var sýn- ingin upp færð á annan hátt en búizt hafði verið við. Þetta var námsgreinasýning (fag- sýning) en ekki sérsýningar einstkra skóla eða skólahéraða. Annað málefni þessa fyrsta fundar fé- lagsins var um kvikmyndir í skólum. Kom Valdimar þar fram með allnýstárlega hug- mynd, þá, að allir skólar á Reykjanesi sunnan Hafnarfjarðar sameinuðust um að fá eina kvikmyndavél til afnota fyrir skól- ana. Benti framsögumaður á þrjár leiðir til að fá þetta fram: l.Að fá styrk til kaup- anna úr Thorkillii-sjóði, 2. Að taka sýn- ingargjald, 3. Að fá styrk af viðbótar- skemmtanaskattinum til kaupanna. Hafnfirðingar höfðu þá fengið sýning- arvél og benti formaður félagsins á þá leið, F A X I — 16?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.